Íslendingur - 19.12.1979, Side 28
Sigurður Guðmundsson,
prófastur, Grenjaðarstað:
Jólaóskir
J ólafriður
Um jólaleytið sendum við jóla-
kveðjur til vina okkar. Við vonum
að við fáum einnig kveðjur frá
þeim. - Jólaóskirnar eru að venju
stuttar, fáorðar en innihaldsrík-
ar. Við lesum margt á milli lin-
anna. Við gleðjumst er við sjáum
eða heyrum nöfn vinanna sem
mundu eftir okkur. Það fylgir því
sérstakur unaður að fá slíka
kveðju, hvortsem er á jólakorti, i
bréfi eða i útvarpi. - Kveðjurnar
flytja boðskap er gleður. Boð-
skapurinn er um það, að þú átt
vini, sem elska þig, hugsa um
þig, muna eftir þér. - Þegar
kveðjan berst þér, er sem stund-
arkorn rofi ískýjum fyrirgeislum
þeirrar sólar sem áfram heldur
sína braut. Ef til vill hélstu, að
vinir þinir hefðu gleymt þér. En
þá kom kveðjan og tendraði Ijós í
huga þér. Hún varsem votturum
þann kærleika sem var, er og
verður.
Víða um veröld heyrum við um
margskonar eymd. Marga af
mannavöldum. Hvað er að ger-
ast? Hvað um jólakveðjuna til
þeirra er þjást og líða af hungri
og kulda?- Hvar er kærleikurinn
sem er mestur - sterkastur? Er
Guð orðinn minnimáttar ímyrkr-
inu? - Flóttafólkið sem hvorki á
húsnæði né mat- hvað stoðar að
senda þvi kveðju um gleðileg jól,
ef ekki fylgir annað með?
Fáum við ekki kveðju, - jóla-
óskir frá vinum okkar. Við erum
þakklát. Jólaóskir koma og að
ofan. - Eitt andartak Ijómar
himnesk dýrð allt í kring. -
Englarnir syngja um dýrð Guðs.
Lítið barn liggur í jötu. Sá Guð
sem við héldum fjarlægan veitir
okkur þá gleði að vera hluttak-
endur í dýrðinni Drottins. - Við
sannfærumst að hann elskar
mennina frá eilífð til eilifðar. -
Litla barnið íjötunni, jólabarnið -
var kallaður Immanúel, sem
þýðir: Guð er með oss. Og við
skynjum það, að hann sem kom
af himni á jörð er hér og nú með
okkur. - Hann býr meðal okkar.
Við gleðjumst. Sendum jóla-
kveðjur - jólagjafir vinum okkar,
- einnig til þeirra sem við vitum
að eru sannarlega i þörf - gefum
af allsnægtum okkar - þeim er
hungra. - Við öðlumst jólagleð-
ina, fögnum enn meir jólaósk-
inni. - íhjarta okkar býr jólafrið-
ur. Hjarta mannsins þráir frið.
Það þráir frið við Guð, - frið við
menn og frið í sjálfu sér.
Jólin eiga þannig að færa
okkur hinn sanna frið, af þvi að
Jesús á nægan frið og er sjálfur
friður. Við getum meira en taka á
móti jólabarninu i hjörtu okkar.-
Við getum gefið öðrum frið, fært
öðrum það sem vermir og lifgar
hjörtu þeirra. Stuðlað að því að
hann sem jólin eru helguð verði
okkar friður, - eða eins og Páll
postuli segir: Hann er vor friður.
í heiminum hafið þér þrenging,
segir Jesús, en verið óhræddir,
ég hefi sigrað heiminn. Það er og
gleði okkar. Látum boðskap
jólanna búa i hjörtum okkar, - þá
ber tunga okkar boðskapinn og
lofsönginn útmeðalmannanna-
og hjarta okkar fyllist friði, -
hönd okkar verður tæki til að
gleðja og hjálpa. - Látum Ijósið
frá Jesúbarninu loga í huga
okkar, þá skynjum við að:,,Hátið
öllum hærri stund er sú -
himnakonungs fæðing oss er
boðar" Guð gefi okkur öllum
gleðileg jól með sínum friði og
miskunn öllum mönnum.
28 - ÍSLENDINGUR