Íslendingur - 19.12.1979, Qupperneq 29
Þeir vita það
fyrir vestan
Út er komin hjá Almenna bóka-
félaginu bókin Þeir vita það fyrir
vestan eftir Guðmund G. Hagalín.
Með þessu bindi hefur Hagalín
lokið 9 binda ævisögu sinni, þeirri
lengstu og einhverri fjörlegustu
sjálfsævisögu, sem komið hefur út á
Islandi. í káputexta bókarinnar
segir:
Meginhluti bókarinnar er Isa-
fjarðarárin. ísafjörður var þásterkt
vígi Alþýðuflokksins og kallaður
„rauði bærinn“. Hagalín var þar
einn af framámönnum flokksins
ásamt Vilmundi Jónssyni, Finni
Jónssyni, Hannibal Valdimarssyni
o.fl. Á þessum árum skrifaði
Hagalín auk þess ýmis af meiri-
háttar verkum sínum, svo sem
Kristrúnu í Hamravík, Sturlu í
Vogum, Virka daga og Sögu
Eldeyjar-Hjalta.
Bókin einkennist öðru fremur af
lífsfjöri og kímni, og hvergi skortir
á hreinskilni.
Þeir vita það fyrir vestan er 414
bls. Bókin er prentuð í Prentstofu
G. Bendediktssonar og bundin í
Prentsmiðju Hafnafjarðar.
Orustan um
Bretland
Út er komin hjá Bókaklúbbi
Almenna bókafélagsins bókin Orr-
ustan um Bretland eftir breska
sagnfræðinginn Leonard Mosley í
þýðingu Jóhanns S. Hannessonar
og Sigurðar Jóhannssonar. Þetta er
þriðja bókin í ritsafni AB um síðari
heimsstyrjöldina, en áður eru út-
komnar í sama flokki Aðdragandi
styrjaldar og Leifturstríð
Orrustan um Bretland fjallar í
máli og myndum um framkvæmd
áætlunar Hitlers um töku Bret-
lands.
Texti bókarinnar skiptist í sex
kafla sem heita:
Kreppir að Bretlandi, Sigurlík-
urnar fyrirfram, Dagur arnarins,
Árásin á Lundúnir, I deiglu loft-
árásanna, Á útgönguversinu.
Myndaflokkar bókarinnar heita:
Hitler nartar í Ermasund, Komi
þeir bara;, Heljarmennið Churcill,
Stertimennið Göring, Brottflutn-
ingur úr borgum, Beðið eftir
útkalli, Eldskrín, Herhvöt á heima-
vígstöðvunum, Vængstýfðir ernir
Þýskalands.
Bókin er 208 bls. í stóru broti.
Setningu og filmuvinnu hefur
Prentstofa G. Benediktssonar ann-
ast. Bókin er prentuð í Toledo á
Spáni.
Óskum öllum viðskiptavinum vorum
GLEÐILEGRA JÓLA
og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Vélsmiðjan Atli Atlabúðin
Strandgötu 61 Glerárgötu 34.
Hverja
vantar
vinnii'? I
V II II IM ■
F.S.A.
Staða yfirlæknis í geðlækningum við geðdeild
(T-deild) Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri er laus
til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 12. janúar 1980.
Upplýsingar veitir Ásgeir Höskuldsson, fram-
kvæmdastjóri F.S.A-, sími 96-22100.
Stjórn F.S.A.
TILKYNNING
frá Fiskveiðasjóði íslands
um umsóknir um lán á árinu 1980.
Á árinu 1980 verða veitt lán úr Fiskveiðasjóði íslands
til eftirtalinna framkvæmda í sjávarútvegi:
TIL FRAMKVÆMDA f FISKIÐNAÐI.
Einkum verður lögð áhersla á framkvæmdir er leiða
til aukinnar hagkvæmni í rekstri og bættrar nýtingar
hráefnis og vinnuafls og arðsemi framkvæmdanna.
Ekki verður veitt lán til að hefja byggingu nýrra
fiskvinnslustöðva, eða auka verulega afkastagetu
þeirra, sem fyrir eru á þeim stöðum, þar sem talið er
að næg afköst séu þegar fyrir hendi til vinnslu þess
afla, sem gera má ráð fyrir að til falli í byggðarlaginu.
TIL FISKISKIPA.
Lán verða veitt til skipta á aflvél og til tækjakaupa og
jendurbóta, ef talið er nauðsynlegt og hagkvæmt.
Ekki verða á árinu veitt lán til kaupa á skipum erlendis
frá, en einhver lán til nýbygginga innanlands.
Umsækjendur um lán skulu skila umsóknum sínum á
þar til gerðum eyðublöðum, ásamt þeim gögnum og
upplýsingum sem þarergetið.aðöðrumkosti verður
umsókn ekki tekin til greina (eyðublöðin fást á
skrifstofu Fiskveiðasjóðs, Austurstræti 19, R.vík).
Umsóknarfrestur er til 31. janúar 1980.
Umsóknir er berast eftir þann tíma verða ekki teknar
til greina við lánveitingar á árinu 1980, nema um sé
að ræða ófyrirséð óhöpp.
Allar eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Lánsloforð Fiskveiðasjóðs skal liggja fyrir, áður en
framkvæmdir eru hafnar.
og farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu sem erað líða
ÍSLENDINGUR -29