Íslendingur


Íslendingur - 07.08.1980, Blaðsíða 1

Íslendingur - 07.08.1980, Blaðsíða 1
Frá Blaðstjórn fslendings Frá 1. ágúst s.l. er Kristinn G. Jóhannsson fyrrverandi skóla- stjóri í Ólafsfirði ráðinn rit- stjóri íslendings. Kristinn er borinn og barnfæddur Akur- eyringur, en hefur lengstan hluta starfsaldurs síns búið í Ólafsfirði þar sem hann var fyrst kennari en síðar skóla- stjóri Gagnfræðaskólans á staðnum s.l. 18 ár. Auk sinna föstu starfa þar tók hann mikinn þátt í félagsmálum og hefur m.a. átt sæti í bæjarstjórn Ólafsfjarðar í 6 ár. Blaðstjórn íslendings býður Kristin velkominn til starfa og væntir góðs af störfum hans í jágu blaðsins. Nýjwti forseta fagnað Hinn nýkjörni forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, tók við embætti föstudaginn 1. ágúst s.l. við hátíðlega athöfn. í ræðu sem hr. Sigurbjöm Einarsson biskup flutti við þetta tækifæri, sagði hann m.a.: „Það eru jafnan tímamót, þegar nýr forseti lýðveldisins tekur við embætti. Vér hugsum með virðingu og heilli þökk til fráfarandi forseta, og þeirra annarra, sem hafa skipað þessa stöðu í landi hér hingað til. Vér biðjum Guðogtreystum Guði til þess að sama gifta fylgi forsetadómi á íslandi áfram alla stund. Til þess vilja allir landsmenn leggja sitt fram, sína hollustu og skilning, sitt hlýja þel og fyrirbæn. Forseta- skiptin eru að því leyti sérleg tímamót að þessu sinni, að það er kona, sem við tekur. Þess skal hún hvorki njóta né gjalda. Hún er maður. Sjálf hefur Vigdís Finnbogadóttir réttilega minnt á það, að íslenska orðið maður tekur til beggja kynja jafnt. Mennsk vera er hvorki starfskraftur né önnur ónefna eða ónáttúra, heldur blátt áfram maður. Sú manneskja, sem Guð skapaði í sinni mynd, er karl og kona.“ íslendingur óskar hinum nýja forseta allrar gæfu og heilla í ábyrgðarmiklu starfi hans um leið og þakkir eru færðar fráfarandi forsetahjónum, dr. Kristjáni Eldjárn og frú Halldóru, fyrir forkunnargóð störf þeirra í þjóðarþágu sl. 12 ár. Forseti fslands, Vigdís Finnbogadóttir. Áfyktim bœndqfundarins: Fóðurbætisskatturinn skaðlegur og með öllu óþarfur Ekki séð hvernig bœndur eiga aðfjármagna rekstur búa með slíkri skattheimtu Sl. þriðjudagskvöld efndi Búnaðarsamband Eyjafjarðar til almenns bændafundar frammi á Freyvangi til þess að ræða hin nýju viðhorf í framleiðslumálum landbúnaðar- ins, eftir að fóðurbætisskatturinn hefur verið lagður á. Landbúnaðarráðherra, Pálmi Jónsson, og formaður Framleiðsluráðs, Ingi Tryggvason, voru frummælend- ur, en umræður stóðu fram til þrjú um nóttina. Þá var eftirfarandi ályktun samþykkt með þorra atkvæða gegn 6, en einhverjir voru horfnir heim af fundinum, sem alls sóttu á þriðja hundrað manns. ÍDAG • H. Bl. skrifar leiöar- ann, sem fjallar um ríkisstjórnina. • / opnu er grein frá Ólafsfirði sem heitir:Af fólki, fiski og fram- kvœmdum í Ölafsfirði og er bœrinn þar kynnt- ur í máli og myndum. ' # > • íþróttir eru á bls. 6 að venju og er þar sagt frá úrslitum í Islandsmót- inu, Norðurlandsriðli, í yngri flokkunum, en þar stóðu Þórsarar sig mjög vel. „Almennur bændafundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar, haldinn að Freyvangi 5. ágúst 1980, harmar þá lítt hugsuðu tilraun til stjórnunar á fram- leiðslumálum landbúnaðarins, sem felst i álagningu 200%kjarn fóðurskatts. Fundurinn telur að slík að- gerð valdi bændastéttinni skaða, og sé með öllu óþörf, þar sem aðalfundur Stéttasam- bands bænda 1979, ákvað að taka upp búmarkskerfi, til að stjórna búvöruframleiðslunni í landinu. Til rökstuðnings framan- sögðu vill fundurinn benda á eftirfarandi: 1. Tilgangur búmarkskerfis nú er að draga úr framleiðsl- unni. Telja verður að það hafi þegar borið verulegan árangur. Mjólkurframleiðslan er minni í ár, en á síðasta ári, t.d. var hún 6,8% minni í maí, en í maí 1979. Er vart að búast við að meiri árangur náist í samdrætti á framleiðslu. á fvrsta ári hú- marks þegar tekið er tillit til þess, að ekki hefur verið Ijóst hvenær búmarkið ætti að taka gildi, og að hvaða marki. 2. Kjarnfóðurskattur í þeirri mynd sem hann er nú lagður á, kemur mjög misjafnt niður á bændum m.a. vegna þess að aðstaða fóðursala til blöndunar á fóðri úr innlendu hráefni er misjöfn. 3. Þá stuðlar kjarnfóður- Álagður tekjuskattur á ein- staklinga í Norðurlandsum- dæmi eystra nemur um 6 milljörðum króna, sem er 43,9% hækkun frá álagningunni í fyrra, en þá greiddu íbúar á Norðurl. eystra 4,2 milljarða króna í tekjuskatt.________ skattur mjög eindregið að aukn- ingu í framleiðslu sauðfjár- afurða og verður ekki séð að það sé nein lausn að færa vand- ann á milli búgreina. Hér verð- ur búmarkið að koma til stjórn- unar. Til landsins eru nú að koma hreinsitæki fyrir Kísiliðjuna h.f. í Mývatnssveit og kosta þau um 300 millj. kr. að sögn Hákonar Björnssonar framkvæmdastj. Ætlunin er, að uppsetning hefj- ist upp úr miðjum mánuðinum og að þau komi í gagnið í októ- ber. Hreinsitækin eru fyrir út- blástursloft frá gufuþurrkurun- um, en þau eru keypt af sænsku fyrirtæki, Flakt Fabrikken. Guðmundur Gunnarsson fulltrúi á skattstofunni á Akur- eyri sagði í gær að heildartölur samkvæmt álagningu tekju- skatts, útsvars og eignarskatts næmu um 6 milljörðum króna. Útsvarsálagningin nú nemur um 5 milljörðum 687 milljón- 4. Þeir bændur sem dregið hafa úr framleiðslu sinni vegna fyrirhugaðs búmarks, verða nú fyrir enn auknu tekjutapi vegna kjarnfóðurskattsins. Tekju- skerðing kemur bæði sem - Framleiðslan á þessu ári hefur gengið mjög vel, engar truflanir orðið af völdum nátt- úruhamfara og næg gufa verið til framleiðslunnar. Framleiðsl- an er nú 15% umfram áætlun, en aftur á móti hefur gengið verr að selja þessa viðbótarframleiðslu. Gömlu markaðirnir eru stöðug- ir, en illa hefur tekizt að vinna nýja markaði enn sem komið er að sögn Hákonar Björnssonar. um króna, en í fyrra námu út- svörin 3 milljörðum 645 millj. króna og er hækkunin milli ára 56,02%. Eignarskattsálagning- in nú er samtals 193 milljónir króna, sem er 60,83% hækkun frá i fyrra, en þá var álagningin samtals 120 milljónir króna. Eignarskattur hækkar um 60,8% og tekjuskattur um 44% Framhald á bls. 2. Hreinsitæki fyrir Kísiliðjuna eru að koma til landsins Það er SPARNAÐUR fyrir Norðlendinga að drekka SANA diykki Á

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.