Íslendingur


Íslendingur - 07.08.1980, Page 2

Íslendingur - 07.08.1980, Page 2
Fóðurbætis- skatturinn Framhald af bls. 1. minnkandi framleiðsla og auk- inn kostnaður við kjarnfóður- notkun. 5. Samhliða þessu er síðan tekið hæsta innvigtunargjald á mjólk sem nokkurntíma hefur verið tekið, þrátt fyrir það að búmarkskerfið á að koma til framkvæmda á árinu sem ætti að draga mjög úr þörfinni fyrir verðjöfnun á mjólk. Ekki verður séð hvernig bændur eiga að fjármagna rekstur búa sinna með slíkri skattheimtu og til viðbótar því er útborgun á framleiðsluein- ingu nú lægri en hún nokkurn- tíma hefur verið. Fundurinn telur eðlilegra að tekin verði upp skömmtun á kjarnfóðri á afurðaeiningu og umframmagn síðan skattlagt. Ekki verður talið skynsamlegt að safna í sjóði í þjóðfélagi með 60% verðbólgu, jafnvel þó að- eins sé til þriggja mánaða. Fundurinn leggur áherslu á að útreikningi á búmarkskerfi verði hraðað, þannig að hver framleiðandi viti um það fram- leiðslumagn, sem hann má framleiða, og geti nú þegar hagað framleiðslu sinni á þann veg, sem honum er hagstæðast í samræmi við búmarkið. Fundurinn harmar að hlaup- ið skuli úr einu í annað með stjórnunaraðgerðir, sem gerir kröfur til forráðamanna land- búnaðarins að framleiðslu- stefnan sé ljós og stjórnunar aðgerðir einnig, þannig að bændur geti hagrætt rekstri sín- um í samræmi við það. í>að eina, sem þér þurfið að muna. er að þér verðið að muna. að þér getið ekkert munað. o o -II-----H_ K'tokiu* — Snúðu við og eltu þennan vagn, mamma. Úr Glerárgili Umhverfískynning á Akureyri Bæjarland Akureyrar og næsta nágrenni býður upp á meiri fjöl- breytni í náttúrufari en flesta grunar. Það er því engin brýn þörf að þeysa í önnur héruð til að skoða fagurt landslag, at- huga fuglalíf, grös eða steina. Þótt ýmsu hafi verið raskað í umhverfi bæjarins er enn til mikils að vinna, að vernda þær náttúruminjar sem enn er heil- legar og beina byggðarþróun á heillavænlegar brautir. Með hliðsjón af þessum stað- reyndum hefur Náttúrugripa- safnið ákveðið að gangast fyrii skoðunarferðum um bæjar- landið og næsta nágrenni þess austan fjarðar. Verða þessar skoðunarferðir á Iaugardögum um næstu helgar, og hefjast kl. 2 síðd. Þetta eru að sjálfsögðu gönguferðir, og verða menn að notast við eigin bíla til að kom- ast á staðinn eða frá honum. (Ef veður er slæmt falla ferð- irnar niður.) Fyrsta ferðin verður laugar- daginn 9. ágúst, til alhliða náttúruskoðunar í Glerárgili, og hefst kl. 2 við neðstu brúna á Glerá (á Hörgárbraut). Þaðan verður gengið upp með ánni að norðan (vestan) og upp í mynni Glerárdals. Áætlaður tími um 3 klst. f ferðinni gefst sérstakt tæki- færi til að skoða fjölbreyttar jarðsöguminjar, bergtegundir, grös og smádýr. Starfsmenn safnsins, þeir Helgi Hallgríms- son og Jóhann Pálsson, munu leiðbeina um greiningu á jurt- um og öðrum náttúrufyrirbær- um eftir því sem þekking þeirra leyfir. J Laugardaginn 16. ágúst er svo áætluð skoðunarferð í Eyjafjarðarhólma og Vaðla- skóg. Safnast verður saman við Miðbrúna í Hólmunum og litið á jurtir þar, en síðan haldið að Veigastöðum og gengið þaðan niður í skóginn. Auk náttúru- skoðunar gefst tækifæri til að athuga fyrirhugað vegstæði um Leirur og Vaðlareit. Laugardaginn 23. ágúst verður svo alhliða skoðunar- ferð um Akureyrarland og nágrenni í tengslum við aðal- fund SUNN, sem fram fer í Menntaskólanum 23.-24. ágúst. Verður þá stuðst við rútubíl á milli staða og lagt upp frá M.A. um tvöleytið. Síðasta ferðin verður svo væntanlega gönguferð um Krossanesborgír Iaugardaginn 30. ágúst. Hefst hún við Lóns- brú um kl. 2 og verður gengið niður með Lóninu að Djákna- tjörn og til baka. (Fréttatilkynning.) Léreftstuskurí Kaupum léreftstuskur á hæsta veröi! Skjaldborg hf. Hafnarstræti 67 . Akureyri Vill að aldraðir hafi forgang að Innbænum Blaðinu hefur borist svohljóð- andi lesendábréf: „f tilefni greinar í síðasta tölublaði „íslendings“, „Inn- bærinn ætti að fríkka“, vildi ég koma á framfæri hugmynd, sem ég stundum hef verið að velta fyrir mér, varðandi framtíð þessa bæjarhluta, sem ber að vernda vegna sögulegra minja. Það er að aldraðir bæjarbúar hefðu forgang um búsetu þar, og að til viðbótar þeim húsum, sem fyrir eru, yrðu byggð smá- hús eða raðhús sem féllu inn í umhverfið og sem yrðu leigð á líkan hátt og húsin við dvalar- heimilið Hlíð. Að mínu áliti er þarna land- rými til slíks að vissu marki. Girt yrði meðfram götu. Annars yrðu girðingar innan svæðisins afnumdar. Svæðið allt yrði skipulagt að nýju með gang- stígum og útisvæðum hvers- konar. í brekkunum ofan við yrðu göngugötur með skjóllegum bollum hér og þar og hinir góðu kartöflugarðar fengju meiri heildarsvip umluktir grasgeir- um og trjágróðri sem þarfnast áframhaldandi verndar. Bíl- skúrum og rúmgóðum þvotta- plönum ásamt þjónustumiðstöð yrði komið fyrir austan við götuna. Þetta eru sundurlausir þank- ar leikmanns, sem ekkert þekkir til skipulagsmála bæjarins, og þætti honum fróðlegt að heyra um framtíðaráform þessa bæj- arhluta, skipulag þar og úr- lausnir. Einn aldraður.“ """ AKUREYRARBÆR AUGLÝSIR Frá grunnskólum Akureyrar Eftirtaldar kennarastöður eru lausar til umsöknar: 2 stöður alm. kennara, bókasafnsfræði æskileg. 2 stöður tónmenntakennara. 1 staða kennara við sérkennsludeild. 1/2 staða smíðakennara. Umsóknir berist fyrir 10. ágúst n.k. SKÓLANEFND AKUREYRAR. Póst og símamálastofnunin umdæmi III Akureyri. Staða skrifstofumanns, IV. ritari umdæmisstjóra, er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi B.S.R.B. Umsóknir skulu berast skrifstofu umdæmisstjóra á þar til gerðum eyðublöðum fyrir 29. ágúst 1980. Upplýsingar í síma 96-25610. UMDÆMISSTJÓRI AKUREYRI. u AKUREYRI Almennur fundur í Fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri, verður haldinn fimmtudaginn 7. ágúst n.k. á Hótel Varðborg (2. hæð) kl. 20.30. FUNDAREFNI: Úttekt á stjórnarstefnunni og viðhorf Sjálfstæðis- manna til hennar. FRUMMÆLENDUR Á FUNDINUM VERÐA: Formaður þlngflokks Sjálfstæðlsflokksins Ólafur G. Einarsson og þingmennirnir Lárus Jónsson og Hall- dór Blöndal. Mætið wel og stundvíslega. Stjórn Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri. 2 - ISLENDINGUR

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.