Íslendingur - 03.06.1982, Side 1
Nýkjörín bæjarstjóm Akureyrar á fyrsta fundi sínum. Vinstri meirihlutinn til vinstri: Hellgi Guðmundsson, Sigfríður Þorsteinsdóttir, Valgerður Bjamadóttir, Úlfhildur Rögnvalds-
dóttir, Sigurður Oli Brynjólfsson og Sigurður Jóhannesson. Hægra megin við borðið þeir fimm fulltrúar, sem skipa minnihluta bæjarstjómar: Freyr Ófeigsson, Sigurður J. Sig-
urðsson, Gísli Jónsson, Gunnar Ragnars og Jón G. Sólnes. Ljósm KG í 1
Gísli Jónsson í umræöum utan dagskrár;
Málefnasamningurinn óljós og ber með
sér mikinn ágreining samstarfsaðila
í upphafi bæjarstjórnarfund-
ar á þriðjudag urðu nokkrar
umræður utan dagskrár um
stefnu hins nýja meirihluta.
Eftir að Sigurður Óli
Brynjólfsson hafði lesið upp
málefnasamninginn tók tii
máls Gísli Jónsson.
Heyrt á götunni
að Ómar Kristvinsson, sem
verið hefur verslunarstjóri í
Hagkaup, muni senn láta af
störfum þar og flytjast til
Hafnarfjarðar,
að Davíð Jóhannsson, sem
verið hefur deildarstjóri í
Vöruhúsi KEA, íhugi að taka
við starfi Ómars, - og mun þá
enn fækka toppunum í Vöru-
húsi,
að Vöruhússtjórinn hjá KEA
sé ekki vinsælasti maður í
byggingunni þar,
að ný bílasala verði opnuð
næstu daga í húsi Stefnis á
Óseyri,
að þar verði salur fyrir tugi
bíla og hyggist eigendur hinn-
ar nýju sölu yfirtaka alian
markaðinn á Norðurlandi,
að Jón Sigurðarson hafiviljað
gera vin sinn Benedikt Ólafs-
son að forðagæslustjóra við
nefndakosningar í bæjar-
stjóm,
að Sigurður Óli hafi talið það
slíkt aivörumál að við vinslit-
um hafi legið milli hans og
Jóns,
að ekki hafi heldur fengist í
gegn að sami Benedikt yrði
gerður að fjallskilastjóra,
að Norðurlandið þeirra Alla-
balla hafi hætt að koma út
eftir kosningar eftir tiltölu-
lega stutta endurnýjun líf-
daga,
að Allaballamir geri ráð fyrir
að koma skoðunum sínum á
framfæri í „Rauða-Degi“ í
gegnum meirihlutasamstarf-
ÍL___________________________
Hann þakkaði Sigurði Óla
þá tillitssemi að sér hefði
verið sýndur samningurinn
nokkru fyrir fundinn. Að
sjálfsögðu þyrfti hann að
bera hann saman við stefnu
Svo sem annars staðar hefur
komið fram hefur Kvenna-
hreyfingin á Akureyri opin-
berast sem nýr vinstri flokk-
ur og endurfætt meirihlutann,
sem féll í kosningunum 22.
f.m. (Sjá leiðara).
Á fyrsta fundi hinna ný-
kjörnu bæjarstjórnar var for-
seti til eins árs kjörin Valgerð-
ur Bjarnadóttir, Jón G. Sólnes
hlaut 4 atkvæði. Helgi Guð-
mundsson var kjörinn fyrri-
varaforseti með 6 atkv., fimm
voru auðir, og Freyr Ófeigs-
son annar varaforseti með sjö
atkv., fjórir auðir.
Kirkjukór Ólafsfjarðar mun
halda upp í þriggja landa söng
ferð næstkomandi mánudag.
Ferðin er bæði hugsuð sem
skemmtiferð fyrir kórfélaga,
svo og sem þátt í vinabæjar-
samskiptum Ólafsfjarðar og
Lovisa í Finnlandi og
Karlskrona í Svíþjóð.
Fyrsli viðkomustaður vcrður
Stokkhólmur. Síðan verður
haldið til Lovisa. Þar mun
kórinn halda konscrta og ferð-
ast svo næstu daga um Finn-
land. 17. júní er ráðgert að kór-
flokkanna fyrir kosningar og
málefnasamning meirihluta-
flokkanna síðastliðið kjör-
tímabil. En við fljótlegan
yfirlestur kæmi í Ijós að hann
væri ákaflega óljós og víða
Ritarar voru kosnir Sigurð-
ur J. Sigurðsson og Sigurð-
ur Jóhannesson.
í bæjarráð til eins árs:
Sigurður Óli Brynjólfsson,
Valgerður Bjarnadóttir, Helgi
Guðmundsson, Gunnar Ragn-
ars og Sigurður J. Sigurðs-
son. Varamenn: Sigurður Jó-
hannesson, Sigfríður Þor-
steinsdóttir, Gísli Jónsson og
Jón G. Sólnes.
Frá öðrum kosningum á
þessum fyrsta fundi bæjar-
stjórnar verður sagt í næsta
blaði.
inn snúi heim á leið, en komi
við í Helsinki og Ábo. Aftur
verður komið við í Stokkhólmi
og síðan farið til Karlskrona í
Svíþjóð. Þar verður dvalið í 2
daga og konsert haldinn. 20.
júní verður farið til Kaup^
mannahafnar og dvalið í 5 daga.
Kórinn hefur æft vel undan-
farnar vikur undir stjórn Soffí-
ar Eggertsdóttur, en þeim til
aðstoöar hafa verið Guömund-
ur Jóhannsson frá Akureyri og
Haukur Guðlaugsson, söng-
málastjóri.
mjög slapplega orðaður.
Hann endurspeglaði djúp-
stæðan ágreining samstarfs-
aðila í atvinnumálum og um
ýmsar mikilvægar fram-
kvæmdir. Hætta væri á að
mörg óskaverkefni fengju
ekki hraðan framgang.
f sambandi við stóriðju
kemur fram í málefnasamn-
ingnum að fulltrúar kvenna-
listans eru andvígir álveri við
Eyjaljörð „eða öðru sam-
bærilegu", en það eru full-
trúar Framsóknar og Al-
þýðubandalags ekki eftir mál
efnasamningnum að dæma
og samþykktu þeir það með
þögninni á fundinum.
í umræðunum reyndu full-
trúar kvennalistans ekki að
gera grein fyrir því hvers
vegna þær hefðu horfið frá
því meginmáli að auglýsa
embætti bæjarstjóra laust til
umsóknar.
Gísli Jónsson vakti í lok
máls síns athygli á þeirri
staðreynd að fráfarandi
vinstri mcirihluti á Akureyri
hefði verið endurreistur, þó
svo að Alþýðuflokkurinn
væri ekki með(Freyr Ófeigs-
son kaus þó forseta og bæjar-
stjóra með meirihlutanum).
Að vissu leyti kæmi kvenna-
hreyfingin í stað Samtak-
anna. Hún hefði nú haslað
sér völl sem vinstri flokkur í
bæjarmálum Akureyrar og
þannig „vandað val“ sam-
starfsmanna sinna eftir föng-
um. Meirihlutinn nú væri
mun veikari að tölunni til en
áður (6 í stað 8) og málefna-
ágreiningur augljós, en von-
andi yrðu framkvæmdir og
störf gyftudrýgri en samning-
urinn gæfi tilefni til að ætla.
Sjálfstæðismenn myndu
ótrauðir vinna að framgangi
sinna stefnumála, hvort held-
ur það væri í minnihluta eða
meirihluta, með þeim starfs-
aðferðum sem þeir teldu
sæma og vera við hæfi, svo
sem þeir hefðu gert í þeim
viðræðum sem fóru fram
áður en hinn nýi vinstri
meirihluti éndurfæddist.
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri
boðar til
FUNDAR
í Kaupangi fimmtudaginn 10. júní kl. 20.30.
FUNDAREFNI:
Viðhorf að loknum bæjarstjórnarkosningum.
Bæjarfulltrúar flokksins mæta á fundinn.
Fulltrúar liölmenniú. stjórnin.
ALLIR GETA
LEIKID SÉR
MEÐ
SVIFDISK v
VINSTRI MEIRIHLUTINN
ENDURFÆÐIST í
BÆJARSTJÓRN AKUREYRAR
Söngför Kirkjukórs Ólafsfjaröar