Íslendingur


Íslendingur - 03.06.1982, Blaðsíða 7

Íslendingur - 03.06.1982, Blaðsíða 7
í VIKUNNI Akureyrarprestakall. - Messað verður í Akureyrarkirkju næstk. sunnudag kl. 11 f.h. (sjómanna- dagsmessa). Sálmar: 29-26-182 - 357 - 497. - Sjómenn aðstoða við flutning messunnar. Fjöl- skyldur sjómanna eru sérstak- lega hvattar til að fjölmenna. - B.S. Grenivikurkirkja. - Messað á sjó- mannadaginn kl. 10.30 árdegis. Sóknarprestur. Brúðhjón: 29. maí sl. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrarkirkju Guðrún Lilja Harðardóttir, hús- móðir, og Magnús BaldurBergs- son, trésmiður. Heimili þeirra verður að Reynivöllum 4, Akur- eyri. 29. maí sl. voru gefin saman í hjónaband i Minjasafnskirkjunni Inga Hrönn Einarsdóttir, gjald- keri, og Friðjón Guðmundur Jónsson, mjólkurfræðinemi. - Heimili þeirra verður að Tjarnar- lundi 6e, Akureyri. Hjálpræðisherinn, Hvannavöll- um 10. Nk. sunnudag, 6. júní, kl. 17: Fjölskyldusamkoma. Ath. breyttan tima. Erlingur Níelsson talar. Yngri liðsmenn taka þátt með söng og vitnisburði. Allir velkomnir. Orðsending frá Krabbameinsfé- lagi Akureyrar: Félagsmenn eru beðnir um að greiða félagsgjald sitt í ár - kr. 20 - til undirritaðs gjaldkera félagsins á skrifstofu Sjúkrasamlags Akureyrar. Jónas Thordarson. íslandsmótið í knattspyrnu, 4. deild: V8V>'-,vJ' Þegar ekið er um Bretland liggur leiðin um marga vinalega smábæi. Flest eru húsin gömul, en vel við haldið og fólk er hjálplegt og vingjarnlegt. Ökuferð um Bretland er ævintýri Ráðstefna i Varmahlíð í tilefni af 100 ára afmæli búnaðarskólans á Hólum í Hjaltadal efnir Fjórðungssam- band Norðlendinga til ráð- stefnu, um stöðu landbúnaðar, nýjar leiðir í iandbúnaði, bún- aðarfræðslu og tækniþjónustu í landbúnaði. Ráðstefnan er haldin í samráði við forráða- menn búnaðarskólans á Hól- um og f'orystumenn bænda- samtakanna. Ráðstefnan verður sett kl. I2 á hádegi föstudaginn II. júní n.k. í lélagsheimilinu Miðgarði, Varmahlíð og lýkur sanidæg- urs. Fundartími er valinn með það í huga að þeir sem lengra hafa að sækja geti komist sam- dægurs á ráðstefnuna. Ráðstefnan tekur fyrir þrjú meginumræðuefni. Um stöðu landbúnaðarins, um nýjar leiðir í landbúnaði, ennfremur um búnaðarfræðslu og tækniþjón- ustu í landbúnaði. Megintilgangur ráðstefnunn- ar er að varpa á sem skýrastan hátt ljósi á stöðu landbúnaðar- ins í þjóðfélaginu, á markaðs- aðstöðu og nýjar leiðir til að auka fjölbreytni í landbúnaði. Einnig er það tilgangur ráð- stefnunnar að vel^ja athygli á gildi búnaðarfræðslu, uppbygg- ingu búmenntunar á Hólum í Hjaltadal, leiðbeiningastarf- semi, tilraunastarfsemi og sér- staklega uppbyggingu tilrauna- starfsemi á Norðurlandi. Ráð- stefnan er opin öllum með mál- frelsi. Ferðalög milli landa eru fyrir löngu orðin almenningseign. Nýir ferðamöguleikar og auð- veldari ferðalög eru kynnt á hverju ári. Margir vilja því fara á eigin vegum. Ráða ferðinni sjálfir, þótt hópferðir séu skemmtilegar ogáhyggjuminnst ar. En vilji menn á annað borð reyna á mátt sinn og megin hvað ferðalögum viðvíkur er úr mörgu að velja. Eitt af því er ferðaáætlun sem fyrir nokkru hefur verið tekin upp í Bretlandi og heitir á þarlendu ,,Go as you please" eða ,,British Country Wonderer". Þar getur fólk ráðið ferðalaginu gjörsamlega; ákveð- ið ferðina fyrirfram eða breytt útaf ferðaáætlun eftir vild. Ýmsir hafa þann hátt á að gera enga ferðaáætlun heldur setjast niður að kveldi eða að niorgni áðuren lagterupp ogaka um ný svæði, skoða citthvað áðuróséð og óþekkt og gista nýjan stað að kvcldi. Önnur ferðaáætlun er meö járnbrautalestum svonefnd ,,Britrail“ áætlun. Segja má að sé farið með lest þurfi heldur meiri skipulagningu. Annars eru járnbrautalestir í Bretlandi þægilegar og stundvísi mikil. Þeir ferðalangar sem taka bíl á leigu og aka sjálfir, geta átt á hættu að villast dálítið. Það varir þó sjaldnast lengi því allir vegir eru vel merktir og vega- kort mjög fullkomin. Og svo eru Bretar einstaklega elskulegir heim að sækja og leysa greið- lega úr spurningum ferðalangs, sem hefur villst af réttri leið. Hér er kjörinn ferðamáti fyrir heilar fjölskyldur og eins ef kunningj- ar efna til sameiginlegrar ferð- ar. T.d. ef tvenn hjón taka bíl á leigu og ferðast saman um Bretland. Flogið er til Glasgow cða London þar sem ferðirnar hefjast. Ýmsir hafa þann hátt á að fljúga til London. Leigja þar bíl, aka um England og Skot- land og fara síðan heim frá Glasgow. Skosku hálendin eru mjög eftirsóknarverð fyrir ferða ANNA KRISTINSDÓTTIR, fyrrum húsfreyja í Fellsseli, Köldukinn, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 31. maí. - Jarðarförin verðuraug- lýst síðar. Fyrir hönd ættingja. Sigurlaug Ingólfsdóttir, Ragnar Steinbergsson. menn. Sérstaklega þegar kemur fram á vorið, en í Suður- Englandi er nú þegar komið sumar. í ferðaáætlun Breska Ferðamálaráðsins og Automo- bil Association er yfirleitt gist á litlum hótelum og oft í smærri bæjurn eða borgum. Einnig er víða gistingar á sveitahótelum sem þykir ekki síðra. Fyrir okkur Islendinga sem vanir eru hrjóstrugu landslagi, grjóti og eyðisöndum, seni auðvitað hafa líka sína töfra, eru hinar grænu hæðir Englands og grösugu dalir hreint undur. Víða skipta trjálundir og limgerði löndum. Og hver blettur er ræktaður og nýttur. Hinir gömlu bæir og borgir Bretlands búa yfir miklu seið- magni, og víðast hyar hefur þess verið gætt að gamli stíllinn haldi sér. Flugleiðir og Ferðaskrif- stofurnar kynna nú þær ferða- Á — AKUREYRARBÆR AUGLÝSIR ■.......... DYNHEIMAR óska að ráða stúlku, ekki yngri en 20 ára, til starfa 1-2 kvöld í viku við afgreiðslu og önnur störf. Skilyrði að viðkomandi hafi góða fram- komu og ómældan áhuga á málefnum unglinga. Reynsla af starfi með unglingum kæmi sér vel. Upplýsingar veitir forstöðumaður á skrifstofu Æskulýðsráðs, Ráðhústorgi 3, kl. 10.30-11.30 virka daga og einnig í Dynheimum virka daga kl. 16.30-17.30. Upplýsingar ekki veittar í síma. Forstöðumaður. GOLFKENNSLA Þorvaldur Ásgeirsson verður við golfkennslu að Jaðri 7.-13. júní. Tímapantanir eftir kl. sími 22074. 5 í golfskálanaum, Stjórn G.A. vorin og haustin er minni umferð en yfir hásumarið. En þótt þröngt sé á þingi á vegunt bregst Bretum ekki jafnaðar- geðið og þar brosa menn í um- ferðinni þótt um smávægilegar tafir sé að ræða. Eins og flestir vita aka Bretar enn á vinstri kantinum. Þeirsem búnir voru að taka bílpróf hér fyrir umferðabreytinguna eru örfljótir að venjast vinstri um- ferðinni að nýju og hinir, sem aðeins eru vanir hægri umferð venjast vinstri umferðinni á stuttum tíma. LAUS STAÐA Viö embætti bæjarfógetans á Akureyri og Dalvík og sýslumannsins í Eyjafjarðarsýslu er laus til umsóknar staða skrifstofumanns. Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, mennt- un og fyrri störf óskast sendar undirrituöum fyrir 29. júní n.k. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu, 1. júní 1982. Sveítarstjómarkosningar í Hrafnagilshreppi Eftirtaldir listar verða í kjöri 26. júní 1982 í Hrafnagilshreppi 1. H-listi lagðurfram af fráfarandi II. l-listilagðurframafáhugamönnum hreppsnefnd: umsveitarstjórnarmál: NÖFN: NÖFN: 1. HaraldurHannesson 1. Anna Guðmundsdóttir 2. Eiríkur Hreiðarsson 2. Sigurður Aðalgeirsson 3. Pétur Helgason 3. Þorsteinn Eiríksson 4. Guöný Kristinsdóttir 4. Bjarni Arthursson 5. Ketill Helgason 5. RúnarSigþórsson 6. HörðurSnorrason 6. Birgir Karlsson 7. Þorsteinn Ingvarsson 7. Þórdís Jónsdóttir 8. ÞorgerðurJónsdóttir 8. Bjarki Árnason 9. Sveinbjörg Helgadóttir 9. Anna Guðrún Jónsdóttir 10. ReynirH. Scbiöth 10. Friðrik Kristjánsson Kjðrstjóm. ÍSLENDINGUR - 7

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.