Íslendingur


Íslendingur - 03.06.1982, Síða 5

Íslendingur - 03.06.1982, Síða 5
Texti: HELGI JÓNSSON íNUM /IÚLA hættu á snjóskriðum og fyrirsjáanlegum umferðar- töfum) hefur verið horfið frá þessum möguleika, þó hann sé 16% ódýrari en Bríkargil-Vogargjá og 29% ódýrari en Kúhagagil- Vogagjá. Frumrannsóknir. í fyrrasumar rannsökuðu jarðfráeðingar berglög á þessum svæðum. Kom þá í ljós að þau voru mjög hagstæð til vinnslu og rannsóknarborunum verð- ur haldið áfram í sumar. Tekin verða bergsýni og þá fyrst og fremst úr gangna- munnunum og þar í grennd. Eins og íslendingur hef- ur áður sagt frá, kom fram á Alþingi tillaga til þings- ályktunar um fjárútvegun til svonefndra Ó-veg^(Ós- hlíðar-, Ólafsvíkurennis- og Ólafsfjarðarmúla). Steingrímur Hermanns- son, samgönguráðherra, gaf út yfirlýsingu við af- greiðslu vegaáætlunar um sérstaka fjáröflun utan vegaáætlunar til að auka öryggi vetrarumferðar á þessum stöðum. En aðeins 100 þús krónum var út- hlutað til rannsókna á Múlanum. Sú upphæð fer i rannsóknirnar í sumar. Síðan er bara að bíða. TVEIR KOSTIR BESTIR Kort þetta, yfir helstu snjóflóðastaði í Ólafsfjarðar- múla var gert árið 1977. í skýrslu Vegagerðarinnar, sem var gefin út eftir frumrannsóknir á jarðgangnagerð gegnum Múlann, er mælt með kostinum KÚHAGAGIL-VOGA- GJA og lagt til að framhald rannsókna verði miðað við þann kost. Eins og sést á kortinu, yrðu göngin 2,5 km. Gangnamunni í Kúhagagili yrði um 20 metrum neðan við núverandi veg. Kostnaður áœtlaður 80 milljónir. I samtali við Valdimar Steingrímsson, vegaeftir- litsmann i Ólafsftrði, taldi hann þennan möguleika ekki koma tilgreina, vegna snjóflóðahœttu í Vogagjá og nokkrum öðrum stöðum og allt of mikils árlegs kostnaðar við snjóruðning. Samkvæmt mati Valdimars, koma aðeins tveir kostir til greina: KÚHA GA GIL- TÓÚGJÁ (3,1 km) sem vsti möguleiki. Hann liggur nœrri leiðinni KÚHAGAGIL-MÍGANDI, sem Vegagerðin skoð- aði en er 600 metrum styttri og mun ódýrari. Frá Tóugjá er aðstaða til vegagerðar mjög góð. Telur Valdimar að fyrrnefndi kosturinn mvndigegna sama hlutverki og hinn síðarnejndi. Ennfremur hendir Valdimar á kostinn KÚHA GAGIL-KLIF(komið út við brekkurœtur Klifsins). Göngin þar vrðu líklega tæpir 5 km. álengd. Valdimar telur að innan Kúhaga- gils (Ólafsfjarðarmegin og innan Sauðakots, Dalvík- urmegin) séu mestu örðugleikar vegna snjóalaga úr sögunni. Þessir kostir komu ekkifram ískýrslu Vegagerðar- innar og hef 'ur Valdimar bent starfsmönnum hennar á þá. Að sögn Valdimars hefjast framhaldsrannsóknir bráðlega og munu þær verða miðaðar við kostinn Kúhagagil- Tóugjá. „Ef áætlunin, að Ijúka framkvæmdum við jarð- göng í Ólafsfjarðarmúla á nœstu 10 árum, stenst, þá megum við vel við una“, sagði Valdimar að lokum. ,,En þetta eru dýrar framkvæmdir, svo að við verðum aðfara var/ega og fásem best ör vggi út úr þeim.“ Um ástand Múlans í vetur og nú sagði Valdimar: ,,Að vetri til er aldrei hægt að ákveða neinar ferðir fyrirfram. Eins og við vitum öll, er grjóthrun meðan þýtt er og meðan Múlinn er i þessu ástandi, er hann a/drei örugg leið". ÍSLENDINGUR - 5

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.