Íslendingur


Íslendingur - 03.06.1982, Page 6

Íslendingur - 03.06.1982, Page 6
KA vann Fram Á fimmtudag í sl. viku fór fram á Laugardalsvelli fjóröi leikur KA í fyrstu deildinni í kantt- spyrnu og voru andstæðingar þeirra Fram. KA-mcnn flugu noröur með bæði stigin og að sögn jieirra. cr leikinn sáu, var þetta eftir atvikum sanngjarn sigur. Ólafur Hafsteinsson skor- aði mark Fram um miöjan fyrri hállleik og var staðan 1:0 fyrir Fram í hálfleik. Á 17. mín. seinni hállleiks jöfnuðu KA- menn úr vítaspyrnu sem Eyjóll- ur tók en Elmar fiskaði. Og þegar um 5 mín voru til leiks- loka skoraöi Gunni (iísla sigur- mark KA cl'tir mikinn einleik. Staðan í 1. deild: ÍBÍ 4 2 1 1 8 5 5 ÍBV 4 2 1 1 6 -4 5 UBK 4 2 1 1 7 -6 5 K A 4 1 3 0 4 3 5 KR 4 1 3 0 2 1 5 ÍA 4 1 2 1 3 2 4 Víkingur 4 1 2 1 6 6 4 Valur 4 1 1 2 4 6 3 Fram 4 0 2 2 4 6 2 ÍBK 4 1 0 3 2 7 2 Úrslit 4. umferðar: Fram KA 1 2 ÍBV-Víkingur 2 2 ÍBK Valur 2- 1 KR-ÍA 0 0 ÍBÍ UBK 3 0 „Opið hús“ á Fræðsluskrifstofu Norðurlands l.augardaginn 5. júní kl. 13.00- 16.00 vcröur „opið hús" á Fræðsluskrilstofu Norðurlands umdæmis eystra l'yrir kennara ogaðra sem áluiga hala áskóla- málum. I>ar verða kynntir cftir- laldir þættir. 1. Ifókasiifn í grunnskóla. 2. Myndbönd í skólasto/um. 3. I ölvur sem hjálpartæki í kennsiu. 4. Starfsemi og viðfangsefni sállræðiþjónustunnar. 5. Starfsemi og viðfangsefni rá ðgjii fa þ jó n ust u n na r. 6. Starfsemi svæðisstjórnar um málefni þroskahcftra. TEpprlrnd Komið og skoðið eitt mesta gólfteppaúrval landsins Yfir 60 gerðir af fyrsta flokks gólfteppum við allra hæfi á verði og greiðslukjörum, sem allir geta ráðið við. Um 35 mismunandi gerðir og litir af dreglum frá 80-140 cm breiðum. BOEN gæöa parketið í mörgum viðarteg. Hinar frábæru Vax-sugur fyrir- liggjandi Téppplhnd Sími 25055 ■ Tryggvabraut 22 ■ Akureyri Kennarar, annað áhugafólk Muniö „opna húsið“ á Furuvöllum 13 laugar- daginn 5. júní kl. 13.00-16.00. Fræðsluskrifstofa Norðurlandsumdæmis eystra Skarí Mar sýnir í Gallery Glompunni Skari Mar, listmálari Irá Hóli, hcldur um þessar mundir sýningu á verkum sínum í Gallery Glompunni. Undanfarin ár hefur Skari Mar verið við framhaldsnám í list sinni í París og New Vork. auk þess sem hann helur farið í námsferðir til London og Mílanó. Áður stundaði Skari Mar listnám hér heima, að hefðbundnum hætti og var um tveggja ára skeið í Amster- dam til að kynna scr nýjung- ar í nýlist, auk þcss að hann kynnti sér vcrk gömlu meistar- anna og þá sér í lagi Rem- brandts. !>að er engum vafa undir- orpið, að með sýningu Skara Mar hefur verið brotið blað í sögu myndlistar á íslandi. Þemað í myndum Skara Mar, eða réttara sagt gegn- umgangandi vísun, má segja að sé óhlutbundin tjáning á hreyfingu skepnunnar í veröld innilokunar og ógnunar. Svipt ingar sálarlífsins koma glöggt fram í teygðum formum óraunhæfs hlutveruleika, sem brotinn er upp með hvössum og blikandi oddlaga spíssum, sem ganga nánast eins og eldingar inná myndsviðið. Ekki fer hjá því að skoðand- inn sjái tengsl. eða hliðstæð- ur í myndum Skara Mar og hollenska meistarans Rem- brandts, þcgar hann rýnirverk in. En hvorugum meistaranna væri greiði gerður með því að líkja myndum þeirra saman. Til þess hafa þeir báðir of per- sónulegan stíl. Hinu er ekki að neita, að Skari Mar hefur margt lært af hollenska meistaranum, eink- um hvaö við kemur notkun Ijóss og skugga. Notkun þcirra á myndrýminu sjálfu er hins- vegar mjög ólík, að ekki sé talaö um rýmis-próblematík- ina í vcrkum hvors fyrir sig. Þar kemurenginn samanburð- ur til grcina. í myndum Skara Mar örlar lítið eitt á innhverfu „faux- naivite". eða útspekúleruðum klaufaskap, en örlun þcssi gelur myndunum sannfærandi slagkralt, og kemur þetta Ijós- ast fram þar sem litirnir skarast við jaðra sveifluform- anna. Litameðferð Skara Mar er gírókoptísk og ætti að vera auðvelt fyrir kunnuga að sjá skyldlcikann við litameðferð Skara Mar annarsvegar og landslagslitasinfóníuna í hans heimasveit. Árið 1981 fékk Skari Mar starfslaun listamanna, auk þess sem hann fékk laun hjá Sveitarlimasambandi Norður- héraða, til að stunda rann- sóknir á eigin ágæti. Sýningu Skara Mar lýkur seinna í þessum mánuði, eða um leið og aðstandendur Gallery Glompunnar fara í sumarfrí. Það er því full ástæða til að hvetja alla vel- unnara fagurra lista aö bregða sér nú í Gallery Glompuna og berja augum þau tímamótandi verk sem þar hanga á veggjum þessa dagana. iVlynd n«. 21 á sýningunni. Því miöur er ekki unnt að birta mynd- ina í litum, en í henni kemur mjög greinilega fram hin gírókoptiska litameðferð listamannsins. RAUPAÐ 0G RISSAD Mynd no. 97 á sýningunni. í niynd inni Spólverk á Þorra kemur vel frain hin óhlutbundna tjáning á hreyfingu skepnunnar. Þessi mynd er tekin af listamanninum að lokinni uppsetningu myndanna. 6 - ÍSLENDINGUR

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.