Íslendingur - 18.04.1984, Blaðsíða 1
16. TBL. 69. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984
AKUREYRI
Þessa mynd tók Fríðþjófur úr flugvél, sem sleikti Hlíðarfjall. Þar verður sitthvað á seyði um páskana.
Landsmót í Hlíðarfjalli
Um páskana verður Skíðamót
fslands 1984 í Hlíðarfjalli og
verður niótið sett kl. 20 í Höll-
inni á miðvikudagskvöld.
Keppnin hefst svo daginn eftir,
en mótið stendur í fjóra daga.
Því lýkur i Sjallanum á sunnu-
dagskvöid, en þá verða formleg
mótsslit. Á meðan á mótinu
stendur verður haldið Skíða-
þing og verður það í félagsmið-
stöðinni í Lundaskóla.
Um páskana verður einnig
Páskamót Flugleiða og Flug-
leiðatrimm, en jafnframt má
svo ekki gleyma Trimmlands-
keppninni á skíðum, sem enn
er í fullum gangi.
Á fimmtudag verður keppt í
svigi kvenna, stórsvigi karla og
skíðagöngu, á fóstudag verður
boðganga auk Skíðaþings,
laugardag verður svo svig
karla, stórsvig kvenna og skíða-
stökk.
Síðasta daginn verður siðan
flokkasvig karla, kvenna og
skíðaganga í nokkrum aldurs-
flokkum.
Lyfturnar verða opnar frá kl.
9-18 alla dagana. Rútuferðir í
Hlíðarfjall verða kl. 9, 10, 11,
12.30, 13.30, 14.30 og niðureftir
hálftíma seinna alla dagana.
KEA mun leggja upp
laupana í Kaupangi
A morgun
flœðir
bjórinn!
í kvöld verða á söniu stundu
opnaðir tveir veitingastaðir, sem
bjóða munu upp á sams konar
veitingar og það heldur sjaldséð-
ar. Þetta eru bjórstofur Sjallans
og H-100.
Bjórstofa Sjallans verður til að
byrja með í anddyri Sjallans, en
að undanförnu hefur verið unn-
ið af kappi við að innrétta kjall-
ara hússins, þar sem reynt verð-
ur að skapa kráarstemmningu.
Þaulvanur leikmyndamálari og
smiður sjá um það verk.
Baukurinn verður nafnið á
bjórstofunni í H-100, sem verður
á fyrstu hæð.
Á báðum stöðum verður opn-
að kl. 18 og á boðstólum verður
fyrst og fremst bjórlíki staðanna,
Fékk bógt
fyrir um-
Hyggjuna
Við á „sveitablöðunum” þykj-
umst oft verða útundan, þegar
hið opinbera og stór fyrirtæki
auglýsa í blöðum. En stundum
getur þetta snúizt við og hug-
rakkir menn bjóða miðstýring-
unni í Reykjavík byrginn.
Þannig auglýsti Vegagerð
ríkisins hér á Akureyri útboð á
vegaframkvæmdum austan við
Víkurskarð í Fnjóskadalnum á
dögunum og auglýsingin ein-
göngu birt í Akureyrarblöðunum.
Út af þessu mun víst allt hafa
orðið vitlaust fyrir sunnan og
viðkomandi umdæmisverkfræð-
ingur fengið bágt fyrir.
Höfðu sumir hortugir sunnan-
menn það í ílimtingum, að það
hefði verið jafngott að kynna
þetta útboð í gegnum „sveitasím-
ann,” eins og þeir komust að
orði.
Okkur á fslendingi þykir þetta
gott hjá umdæmissverkfræðingn-
um. Ekki veitir af því, að heima-
menn fái þau fáu verkefni, sem til
falla á þessum síðustu og verstu
tímum. I þessu sambandi er rétt
að minna á það, að mörgum þótti
súrt í broti að missa fyrsta
áfanga Leiruvegar í verktaka-
fyrirtæki austur á Egilsstöðum.
Fyrir 1. júní n.k. verður KEA að
rýma húsnæði það, sem nú hýsir
matvörudeild kaupfélagsins í
Kaupangi við Mýrarveg, þar sem
áður var Kjörbúð Bjarna. Samn-
ingar tókust ekki um leiguna.
Jafnframt mun yfirstjóm kaup-
félagsins hafa gert kauptilboð í
eignina, en Bjami Bjamason,
eigandi húsnæðisins, ekki viljað
selja.
Matvörudeildin í Kaupangi
hefur átt undir högg að sækja og
átt við rekstrarörðugleika að
stríða. Mun verzlunin hafa verið
rekin með tapi að undanförnu.
Er tapið skýrt með æ meiri
ásókn fólks i stórmarkaðina
Hrísalund og Hagkaup.
Eigandi húsnæðisins vildi
hækka leiguna í samræmi við
húsaleiguvísitölu en kaupfélagið
var ekki reiðubúið að greiða
meira en það gerir nú.
Raunar þótti heimildarmönn-
um íslendings það harla ein-
kennilegt, að KEA vildi kaupa
húsnæði matvöruverzlunarinnar
þegar sýnt væri, að hún væri
rekin með tapi.
Samkvæmt upplýsingúm
Magnúsar Gauta, umsjónar-
manns matvörudeilda KEA,
mun ekki í ráði að hefja rekstur
annarrar matvörudeildar þann-
ig, að þeim fækkar úr 11 í 10.
Á hinn bóginn er ekki þar
með sagt, að ekki verði matvöru-
verzlun, þar sem Kjörbúð
Bjarna og matvörudeild KEA
voru, því ýmsir aðilar munu
hafa sett sig í samband við eig-
andann og lýst áhuga sínum á
leigu eða kaupum.
Samkvæmt óstaðfestum
heimildum má gera ráð fyrir, að
frá þessum málum verði gengið
fyrir vikulok og líklegastur til að
hreppa hnossið er Tryggvi Páls-
son hjá Smáranum með meiru.
Lítið hótelrými Þróndur í
{ atvinnumálancfnd hefur að
undanförnu verið fjallað um
ferða- og hótelmál bæjarins og
hvemig auka megi þátt Akureyr-
ar í móttöku á ferðamönnum,
einkum yfir sumartimann, en
jafnframt að vetri tií. Á sama
tíma skýrði Islendingur frá þvi,
að hótelstjórinn á Hótel Varð-
borg hygðist hafa lokað hús um
páskana, fyrstu ferðamannahelgi
ársins. Skýringar hans vom þær,
að það hreinlega borgaði sig ekki
að hafa hótelið opið um páskana.
Að baki athugun atvinnu-
málanefndar á þessum málum
Iiggur m.a. sú grundvallahug-
mynd, að hér á Akureyri sé
skortur á hótelrými yfir sumar-
tíma og úrbóta sé þörf almennt.
íslendingur bar þetta undir
Jón Sigurðarson, formann at-
vinnumálanefndar, og spurði
hvernig þetta viki við honum
sem formanni atvinnumála-
nefndar.
„Það er enginn vafi á því, að
það væri hægt að taka á móti
verulega fleiri ferðamönnum
hérna með auknu hótelplássi og
það gildir yfir allan sumartím-
ann,” sagði Jón.
En hvað þá með orð hótel-
stjórans á Hótel Varðborg, að
hann geti ekki einu sinni treyst
því á fyrstu ferðahelgi ársins, að
hann fái nægilega marga gesti?
„Ég veit það ekki. Eg get
ekkert um það sagt. Það hlýtur
að vera eitthvað sérstakt um
þessa páska, sem ræður því, en
ég skil þetta ekki annars.
En það sem ég er að horfa á,
er þessi raunverulegi ferðatími,
sem byrjar í júni, og stendur
fram í september. Þá er allt
pakkfullt hérna. Eins hefur það
verið um helgar á vetrum, þegar
Götu
eitthvað sérstakt hefur verið um
að vera í bænum, eins og My
Fair Lady í vetur. Þá hefur verið
erfitt að koma mönnum í hús.
Það sem við höfum verið að
segja er, að hótelrýmiö hér í
bænum stendur i vegi fyrir því,
að við fáum aukinn hluta í sum-
artúrismanum. Það hefur í sjálfu
sér ekkert með þessa páskahelgi
að gera.”
Framhald á hls. 3