Íslendingur - 18.04.1984, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984
^lcndinnur
3
Jogginggallar 100% bómull
Stæröir 104-165, verö 597.-
S, M, L, verö 795.-
íþróttaskór
Stærðir 20-30, veró 325 og 335.-
Stærðir 35-41, verö 410.-
Tilvalið til fermingargjafa
CARAVAN bakpoar og svefnpokar.
Opið á laugardögum
kl. 10-12. VISA
Eyfjörð
Hjalteyrargötu 4 sími 22275
Gleðilegt sumar
Þökkum viðskiptin á liðnum vetri
MOL&SANDUR HF.
V/SÚLUVEG - PÓSTHÓLF 618 - 602 AKUREYRI - SÍMI (96)21255
Smásala sími 21730
Sendum í póstkröfu um allt land
Lítið hótelrými
Framhald af forsídu
En ef við lítum á þá stað-
reynd. að sumarvertíðin er stutt
og það er dýrt að halda uppi
rekstri á dauðum vetrartíma, og
þá staðhæfmgu. að bæjaryfir-
völd hafi vanrækt einu perluna.
sem laðað gæti ferðamenn að á
vetrum: Skíðastaði?
„Varðandi þetta, |iá er þaö
mitt viðhorf, að það sé leitt að
það skuli hafa hallað undan fæti
uppi í Hlíðarfjalli, ég er viss um,
að það hefur einhver áhrif á
vetrartúrismann, en þó er það
ekkert síður það, aö það er búið
að byggja upp mjög góða að-
stöðu í nágrenni Reykjavíkur.”
Þú átt við Bláfjallasvæðið?
„Já, það hefur náttúrlega
tekið gífurlega af okkur. En við
þurfum aö koma Hlíðarfjalli í
gott lag, þegar við eigum pening
í það og viö þurfum að eiga
pening í það fíjótlega. Ég hef
veriö því mjög fylgjandi, að eitt-
hvað sé gert uppi í fjalli. Hitt er
annaö mál, að það eru talsvert
mismunandi viðhorf til þessa
máls í öllum flokkum."
En er þetta ekki meirihluta-
flokkunum að kenna? Hafa þeir
sýnt einhvern lit á því að Skiða-
staðir héldu a.m.k. í horfinu?
„Skíðastaðir hafa saralítiö
breytzt á þessu kjörtímabili. Það
hafa að vísu engar viðbætur
verið þar, en þeim hefur ekkert
farið aftur."
En nú kvarta forráðamenn
Skíðastaða yfir fjárskorti?
„Jú, jú. þaö er alveg klárt, að
þessi meirihluti hefur haft þær
áher/.lur. sem hafa gert það, að
menn hafa ekki lagt pening í
Fjallið."
Ertu sáttur við þessar áher/.l
ur?
„Já, ég hef samþykkt þessar
áherzlur híngað til."
Jón vildi minna á. að á Akur-
eyri ríkti ekki algjör kyrrstaða í
hótelmálunum. Hótel K.EA ætti
eftir aö stækka úr 28 herbergjum
upp í 56 herbergi, og væri gert
ráð fyrir, að þessi herbergi verði
komin í gagniö snemma árs
1986.
„Það tekur kúfinn af þessum
vanda," sagði Jón Sigurðarson."
Þá minnti hann á fyrirhug-
aðan fund Ferðamálaráðs ls-
lands hér á Akureyri 12. maí,
þar sem sérstaklega yrði Qallað
um Akureyri sem feröamanna-
bæ, og reynt að átta sig á sterku
og veiku hliðunum hér.
Til þessa fundar er efnt að
frumkvæði atvinnumálanefndar.