Íslendingur - 18.04.1984, Qupperneq 5
MEÐVIRUDAGUR 18. APRÍL 1984
Jölcwdinour
5
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Brunavörður
Starf brunavarðar við Slökkvistöð Akureyrar er
laust til umsóknar.
Umsækjendur þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði.
Upplysingar veitir undirritaður.
Umsóknarfrestur er til 4. maí n.k.
Slökkviliðsstjóri.
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Miðvikudaginn 25. apríl kl. 20.00 verða til viðtals
bæjarfulltrúarnir Valgerður Bjarnadóttir og Mar-
grét Kristinsdóttir í fundarsal bæjarráðs.
Bæjarstjóri
ÓDÝWSJA T.F.TÐTN TIL
Bílferjan MF Norröna siglir í sumar milli
íslands, Færeyja, Noregs, Danmerkur og
Shetlandseyja einu sinni í viku. Brottför er frá
Seyðisfirði alla fimmtudaga kl. 12.00 á hádegi
frá 31. maí til 6. september.
Ódýrara gerist það ekki
Þilfarspláss milli Seyðisfjarðar og Pórshafnar
kostar aðeins 4.800 krónur fram ög til baka!
Verðið í 2ja manna lúxusklefa ætti heldurekki
að ofbjóða neinum, því það er aðeins 8.760 kr.
Áætlun
Brottför frá Koma til
fimmtudag Seyðisfirði föstudag Þórshafnar
föstudag Pórshöfn laugardag Hanstholm
laugardag Hanstholm mánudag Þórshafnar
mánudag Pórshöfn mánudag Lerwick
mánudag Lerwick þriðjudag Bergen
þriðjudag Bergen miðvikudag Lerwick
miðvikudag Lerwick miðvikudag Þórshafnar
miðvikudag Pórshöfn fimmtudag Seyðisfjarðar
Athugið að bið verður í Færeyjum á kostnað
farþega á eftirtöldum leiðum: (sland-Noregur
3 nætur, (sland-Lerwick 3 nætur, Danmörk-fs-
land 2 nætur, Lerwick-ísland 2 nætur.
MF Norröna er glæsilegt skip
8000 tonn, 129 metra langt, meðalhraði 20
hnútar og tekur 1050 farþega. Já, MF Norröna
er enginn árabátur. Um borð eru Úrvals
veitingastaðir, barir, reyksalur, næturklúbbur,
diskótek, verslun með tollfrjálsan varning og
leikaðstaða fyrir börnin, svo eitthvað sé nefnt.
Hægt er að velja um gistingu í 2 manna
klefum, 4 manna klefum og hópklefum svo og
á þilfari, en þá hefur farþegi ekki yfir að ráða
kojuplássi, heldur verður að nota sameiginlegar
vistarverur ferjunnar sem dvalarstað.
Verðskrá pr. mann aðra leið:
Fullorðnlr Seyðisfj. Thorshavn Styðlsfj. Seyðlsfj. Hanstholm Seyðlsfj. Hringferð
Piltírspláss (in ko/u) 2 400 3 985 4 400 3 435 8 820
Ko/upliss i hópklefa 2 930 4 710 5 140 4 145 10 240
4 m standárd kleh 3 180 5070 5 450 4 505 10 950
4 m kleh með wc og sturtu 3 400 5495 5 970 4 820 11 5/5.
2 m standérdkleh 3 690 5 795 6 270 5 230 II 655
2m kleh mcð vvc og sturtu 3910 6 770 6 700 5 545 12 285
2m lúxusklefi 4 380 7 180 7 660 6 785 14 175
Farartmkl:
Bifreið, hjólh éðSm 1830 3260 3 750 3 025
Hver m umtrém 5 m 36 5 650 750 605
Faréngursvégn 915 1 6 40 1 860 1495
Mótorh/ól 805 I 055 1 180 1 040
Reiðh/ól 125 2 55 255 255
Námsmannaafsláttur: 25% fyrir einstaklinga,
50% fyrir hópa, 10 manna og stærri.
Allarnánari upplýsingar veita Ferðaskrifstof-
an Úrval í síma 91-26900, Ferðamiðstöð
Austurlands í síma 97-1499 og afgreiðslan
Seyðisfirði í síma 97-2304 og 97-2424.
SMYMLLINE
146 milljónum
minna í laun
Á árinu 1982 vantaði í heild
146,3 milljónir króna á að at-
vinnugreinar á Norðurlandi
greiddu laun iniðað við lands-
meðaltal. Á Norðurlandi vestra
vantaði alls 71,6 milljónir í lands-
ineðaltal sem skiptust þannig
milli greina að 10,1 milljón vant-
aði í frumvinnslugreininum, 25,5
milljónir í úrvinnslugreinunum og
36,0 milljónir í þjónustinni. Á
Norðurlandi eystra, þar sem 74,7
milljónir vantaði í landsmeðaltal-
iið, var skiptingin þannig að 9,0
inilljónir vantaði í frumvinnslu-
greinunum, 24,7 milljónir í úr-
vinnslunni og 41,0 milljón í þjón-
ustugreinunum.
Það kemur ekki á óvart þegar
litið er á útsvarstekjur sveitarfél-
aga á Norðurlandi 1983 að þær
eru undir landsmeðaltalinu sem
bitnar síðan á framkvæmdum á
þeirra vegum.
Meðalútsvarstekjur sveitarfél-
aga á hvern íbúa yfir landið í
heild voru 9.059 kr. árið 1983. Á
Norðurlandi vestra voru þær
hins vegar aðeins 7.387 kr. eða
18,5% undir landsmeðaltalinu
og á Norðurlandi eystra 8.149
kr. eða 10,1% undir landsmeðal-
talinu. Sveitarfélög annarra kjör-
dæma í landinu höfðu að
meðaltali hærri útsvarstekjur á
hvern íbúa en sveitarfélag á
árinu 1983.
Útsvarsálagning í kaupstöð-
um á Norðurlandi var 12,1% af
skattstofni einstaklinga áriö 1983
nema á Dalvík en þar var hún
11,88%. Enginn norðlensku
kaupstaðanna náði meöaltalsút-
svarstekjum á hvern íbúa í
kaupstöðum landsins á árinu
1983 eins og meðfylgjandi tafla
ber með sér. Hefur þróunin farið
stööugt versnandi i þessum
efnum á síðustu árum bæði í
þéttbýli og dreifbýli.
Mcðaliitsvarstckjur á hvcrn íhúa 1983
krónur I rávik frá laiHlsmcóultali
Sauðárkrókur 8.188 - 13.0
SÍ£>liifjöróur 9.335 - 0.9
Olalsfjöröur 8.947 - 5.0
Dalvík 8.098 - 14.0
Akiircvri 8.737 - 7.2
Hi'isavik 8.889 - 5.6
Mcóaltal kaupstaóa 9.416 00.0
Hæstu útsvarstekjur á íbúa
voru á Siglufírði, 9,335 kr. eða
0,9% undir landsmeðaltali en
lægstar voru þær á Dalvík, 8.098
kr., 14% undir meðaltalinu. í
heild vantaði kaupstaði á Norð-
urlandi rúmlega 16 milljónir
króna, á árinu 1983, í útsvars-
tekjur til að ná landsmeðaltalinu
og munar þar mest um Akureyri
sem vantaði rúmlega 9,3 mill-
jónir í meðaltaliö. í heild vantaði
sveitarfélög á Norðurlandi 44
milljónir til að ná landsmeðaltali
útsvarstekna 1983.
Leiðrétting
í síðasta íslendingi slæddist sú
villa inn í frétt um Elísabetu
Geirmundsdóttur, að hún hefði
fæðst í Aðalstræti 15. Þetta er
rangt. Hún var fædd í Aðal-
stræti 36, árið 1915.
Ymislegt
Neyðarvakt tannlækna um páska
Föstudaginn 20. frá kl. 5-6.
Ingi Jón Einarsson, s. 22226.
Sunnudaginn 22. frá kl. 5-6.
Þórarinn Sigurösson, s. 24230.
Mánudaginn 23. frá kl. 5-6.
Regína Torfadóttir, s. 25661.
Tannlæknafélag Norðurlands