Íslendingur - 18.04.1984, Blaðsíða 6
6
Jslcudroaur
MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984
Jslcuðinöur
7
Útgefandi:
Ritstjóri:
Auglýsingastjórh
Ritstjórn, sími:
Auglýsingar, sími:
Askriftargjald:
Lausasala:
A uglysinga verö:
Prentun:
islendingur hf
Halldór Halldórsson (ábm.)
Kristin Ottesen
21501
21500
kr. 130á ársfjórðungi
kr lOemtakíð
kr. 130 dálksm.
Tækmdeild Islendmgs
og Dagsprent
Ár að baki
Fyrir ári sídan var kosningabaráttunni fyrir alþingis-
kosningarnar aó Ijúka. Sjálfsagt hafa ýmsir háttvirtir
kjósendur veriö orónir ruglaðir í ríminu þegar yfir
lauk. Þótt Sjálfstæöisflokkurinn ynni góöan sigur og
bætti viö sig verulegu fylgi, tókst ekki aó ná þaö
miklum þingstyrk aö dygöi til stjórnarmyndunar meö
hvaða öörum flokki eða flokksbroti sem var. Afleiö-
ingin varó stjórnarsamstarf viö Framsókn þar sem
báóir uróu aó slaka nokkuð til, ef þeir á annaó borö
vildu ekki hlaupa frá þeirri ábyrgö aö stjórna landinu.
Hvernig hefur sjálfstæóismönnum svo gengið aö
ná fram sínum, nú ársgömlu kosningaloforðum, er
eðlileg spurning. Eitt stendur vissulega upp úr. Þaö
hefur tekist að berja niður veröbólguna án þess aö
til teljandi atvinnuleysis hafi komiö. Þaö geta allir
gert sér þaö í hugarlund að þaö hefur ekki alltaf
verið létt fyrir framsóknarmenn að þurfa aö fram-
kvæma „leifursókn íhaldsins.”
Annað stórt atriöi er það aö smám saman er aö
skapast á ný traust annarra þjóöa og erlendra
manna á íslendingum í utanríkismálum, í viðskiptum
og í samningum t.d. varöandi orkusölu og sameign í
fyrirtækjum. Þaó má telja mjög góöan árangur eftir
alla niöurrifs- og rógsstarfsemi undanfarinna ára.
Viö munum fyrst nú fara aó sjá afrakstur endur-
vakins trausts á okkur sem viðræöu.hæfum mönnum.
Þá má ekki gleyma því aö mörg þýðingarmikil
skref hafa verið stigin til aö endurskipuleggja opin-
beran rekstur. Menn skyldu ekki vanmeta þýöingu
þess aö opinber fyrirtæki hafa þegar veriö seld, aö
vísu hvorki mörg né mjög stór, en þaö verður fleira
gert á næstunni til aö snúa frá hinum stööugt
vaxandi ríkisafskiptum síðustu ára. í þessum efnum
er rétt aö minnast þess aö ekki er aóeins viö tregóu
samstarfsflokksins að eiga, heldur líka andspyrnu
ýmissa embættismanna „kerfisins” og stofnana
þess.
Því er ekki aó neita aö í sumum málaflokkum
gengur hægar aö efna fyrirheitin en mörgum sjálf-
stæðismönnum líkar. Fyrst er kannski aö telja aö þaö
voru vonbrigði aö skatta tókst ekki að lækka á þessu
ári. Þó aó á því finnist eðlilegar skýringar, að
skattbyrðin er jafnþung og áður, fyrst og fremst við-
skilnaður síðustu stjórnar, þá ber aö stefna að því að
skatta megi lækka þegar á næsta ári. Annar fleinn í
holdi er vandi húsbyggjenda sem enn hefur ekki
tekist aö leysa á viðunandi hátt. Menn sjá nú aö það
var fullmikil bjartsýni aö ætla að hægt væri aö auka
fjárstreymi til íbúðabygginga á sama tíma og verð-
bólgunni væri náó niður. Það er samt sem áöur
staðfastur ásetningur sjálfstæðismanna að efna sín
loforó í þessum efnum eins fljótt og auóiö er. Á
meðan verður aó finna ráö til aö leysa brýnustu
vandamálin.
í þriöja lagi valda ríkisfjármálin nokkrum
áhyggjum. Þaö veittist ósköp auðvelt á hinum
síöustu „Hrunadans-árum” að láta ríkissjóö bera sig,
annars vegar með því aö taka erlend lán og hins
vegar meö því aö sölsa undir sig drjúgan skerf af
veróbólgubruðli almennings. Þaö getur verið aö
draga verói úr einhverri þjónustu, jafnframt því aó
draga úr framkvæmdum og yfirbyggingu kerfisins,
en þaö er betri kostur en eyðsluskuldasöfnun.
Engum getur dulist aó ríkisstjórnin hefur náö
gagnmerkum árangri á tæpum 11 mánuóum. Á
næstu 20 til 30 mánuðum veróur róóurinn léttari og
árangurinn enn betri.
B.D.
í nýlegu Ijóði, Hungurvaka á friðar-
páskum, segir Matthías Johannessen í
lokin:
Ekkert svangt barn og sjúkt lifír á sam-
vizku annars manns, allra sízt skálds
sem er skítblankt öllum stundum, ekkert
barn, Claes Anderssen.
Það er ekki sérstök ástæöa til aö staldra
viö þaö. aö Matthías er hér að svara
skáldbróöur sínum sænskum. Þaö er
hins vegar ástæða til að veita athygli
hugsuninni í þessum línum og hinu aö
Ijóðið heitir ekki Hungurvaka á páskum
1984 heldur Hungurvika á friðarpáskum.
Þaö er kannski aö lesa of mikiö í þessum
línum að geta sér þess til, að það skipti
máli. að hér er höfðað til friðarpáska. Þá
ætti hugsunin í þessum línum líka að
vera sú, að skítblönk skáld og aðrir, sem
svipað er ástatt fyrir og hafa það sér til
dægrastyttingar nú á páskum 1984 að
hjala um frið, bjarga ekki friönum. Þau
geta haft vonda samvizku vegna atóm-
bombunnar, en það er líka allt og sumt.
Hvort sem Matthías hugsaði þetta og
ætlaði aö segja það, þá er það vel þess
viröi, aö það sé sagt.
Friður og afvopnun
Af ýmsum ástæðum virðist sumum eins
og heimurinn verði friðsamlegri viö það,
að staðsetningu kjarnorkuvopna verði
hætt, jafnvel allri framleiösiu. Aðrir trúa
því að öll vopn þurfi að hverfa til að
friðvænlegt megi teljast. Þá sé von til
þess að þjóðir heimsins leysi deilumál
sín á friösamlegan hátt með samkomu-
lagi eöa úrskuröi dómstóla, sem þar til
eru settir.
Þessi aðferö hefur gengið
ágætlega til aö leysa deilumál þegna í
ríkjum Vesturlanda. En heimsfriðurinn
er friður á milli þjóða. Og þótt þessi
aðferð hefi gengiö ágætlega til að leysa
ágreining milli einstaklinga, þá má vel
hugsa sér, að hún gengi til að leysa
ágreining vestrænna þjóða. En hvað
með þjóðir í öðrum heimshlutum? Dett-
ur einhverjum í hug, að alþjóðlegur
dómstóll leysi deilumál Víetnama og
Friðarpóskar
Kínverja eða Víetnama og Kambódíu-
manna, Sovétmanna og Pólverja svo að
eitthvað sé nefnt? Sú trú, að allar þjóðir
heimsins muni sætta sig viö úrskurði
aljijóðlegra dómstóla, eins og þegnar á
Vesturlöndum gera við eigin dómstóla,
byggir að þeirri forsendu, að allir jarðar-
búar séu í grundvallaratriðum eins. Þeir
sætti sig við sama gildismat, hafi sömu
eða svipaðar þarfir, setji sér í megin-
atriðum sömu markmiöin, þrái sams
konar samfélag manna.
... hjörtum mannanna svipar saman
í Sudanl og Grímsnesinu.
eins og Tómas orðar þar.
Ólíkt gildismat
En það er rétt aö taka vel eftir
orðalaginu hjá Tómasi. Hann segir svip-
ar saman. ekki að þau séu eins og sams
konar. Og þar liggur nefnilega hundur-
inn grafinn. Þessi trú á hið lögformlega,
alþjóðlega samfélag mannanna er eigin-
lega ekki annað en aö gildismat Vestur-
landa, eins og það birtist í veigamestu
stofnunum þeirra er alhæft yfir á allan
heiminn og ekkert tekið tillit til þess, að
siðir, venjur, skoðanir, trúarbrögð og
samfélagsgerð er mjög ólíkt á ólíkum
stöðum á jörðinni. Imyndar nokkur
maður sér, að erkiklerkurinn Khomeni
muni sætta sig vió aðra eins menningar-
lega nauðung og að beygja sig undir
alþjóðlega dómstóla. Uppreisn hans var
meðal annars gerð til að spyrna gegn
vestrænum áhrifum í íran. Ætli þjóðir
Þriðja heimsins kölluðu þetta ekki
menningarlega nýlendustefnu. Fyrir
austan járntjald líta menn á samninga
öðrum augum en okkur er tamt. Vald-
hafar hafa ekki talið vestræna siði sér-
lega eftirsóknarverða, hvort sem um er
aö ræða dægurtónlist eöa mannréttindi.
Það hefur ekki breyzt, svo vitað sé. Eitt
Kremlarunglambið, Júrí Zúkov, 76 ára,
sem er formaður sovézku friðarnefndar-
innar heldur því fram í Newsweek frá
16. apríl að nefndin sé algerlega óháö
stjórnvöldum, hún fái sitt fé frá sovéska
friöarsjóðnum en ekki stjórnvöldum.
Nokkru seinna segir hann: „í júní í
sumar munu Sameinuðu þjóðirnar
halda námskeið fyrir félög óháð stjórn-
völdum með þátttöku utanríkisráöuneyt-
isins og sovézku friðarnefndarinnar.”
En ummæli af þessu tæi eru ekki
skýrasta dæmið um annan skilning Sov-
étmanna á mannréttindum en tíökanleg-
ur er á Vesturlöndum. Andrei Sakharov,
eðlisfræðingur, er einn þeirra, sem kall-
ast andófsmenn og hefur verið í útlegö í
Gorkí, þar sem stjórnvöld vilja halda
honunt. Fregnir hafa borizt af honum
með vinum hans, nú síðast með Natalya
Viktorovna Hesse, sem kom til Vínar-
borgar 5. febrúar s.l. alflutt frá Sovét-
ríkjunum eftir mikinn þrýsting frá KGB.
Hún segir einu sinni frá því að hún hafi
verið í heimsókn í Gorkí hjáSakharov
hjónunum og ákvað að flokka bréfin,
sem þeim bárust. Þegar hún hafði lokið
því tilkynnti hún í heyranda hljóði:
„Þetta er mjög forvitnilegt: 70% eru
kveðjur, 17% eru hlutlaus eða láta ljósi
skilningsleysi og 13% eru hótunarbréf.”
Síðan bætir hún við: „ Afleiðingar
þessara orða, sem sögð voru í hugsunar-
leysi, upphátt, voru mjög óvæntar. Bréf
með kveðjum og yfirlýsingum um vel-
þóknun hættu aö berast. Frá næsta degi
bárust einungis hótunarbréf. Þetta er
vísbending um nákvæma og vel skipu-
lagða hlerun og greiningu allra samtala,
sem áttu sérstað í íbúðinni.”
Hagsmunir og mannréttindi
Ofsóknir og hleranir af þessu tæi eru
ekki brot á mannréttindum í Sovét-
ríkjunum og víöar í veröldinni. Stjórn-
völd, sem koma fram með þessum hætti
við þegna sína. líta á hlutverk sitt allt
öðrum augum en tíökanlegt er á Vestur-
löndum. Það þjónar engum tiigangi að
leggja sömu mælistiku á þau og vestræn
stjórnvöld. Þetta þýöir ekki, að þau séu
ekki jafn fordæmanleg, framferði þeirra
jafn slæmt og áður, einungis aö þau
stjórnast ekki af siöferðisreglum. þeim
eru ekki reistar sömu skorður og vest-
rænt lýðræði reisir sínum stjórnvöldum.
Og í samskiptum viö þau hefur góðvild
og fagurgali lítt dugað gegn þeim til að
koma í veg fyrir, að þau næðu tangar-
haldi á stjórnkerfi annarra ríkja. Ef
skoðuð eru samskipti Sovétríkjanna og
vestrænna menntamanna eða pólitískra
flokka, hefur framferði þeirra mótazt af
því einu, hvað þjónaði hagsmunum
þeirra hverju sinni. í því ljósi ber að
skilja áhuga þeirra nú á friðathreyf-
ingum. Allt tal um frið og afvopnun á
Þessum páskum breytir engu um þetta.
Guðmundur Heiðar Fríniannsson.
Útboð
Framkvæmdanefnd verkalýðsfélaganna á Akureyri
óskar eftir tilboðum í smíði og uppsetningu loftræsi-
kerfis í byggingu sína að Skipagötu 14, Akureyri.
Útboðsgögn eru afhentu á Teiknistofunni sf., Glerár-
götu 34, gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 8.
maí kl. 14.00.
Framköllun
og kopering
á litfilmum (öllum gerðum).
Vöruhús KEA (Sportvörudeild og Hrísalundur 5
niðri) taka á móti litfilmum í framköllun og
koperingu fyrir norðlenska fyrirtækið MYND hf. á
Húsavík.
Þú kemur med filmuna fyrir kl. 3 í dag og færd
myndirnar eftir kl. 3 á morgun.
Verð: kr. 45.- á filmu 4- kr. 10,-
á mynd.
Einnig eftirpöntun á filmum
sem þegar hafa verið fram-
kallaðar, stækkanir 20x35
cm, og hægt að fámyndir
settar á platta.
Við skorum á við-
skiptavini okkar að
reyna þessa norð-
lensku þjónunstu.
Notið öku-
Ijosin i bjortu
Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp
til laga um breytingu á umferðar-
lögum þess efnis að skylda öku-
menn til þess að nt»ta ökuljós
állan sólarhrínginn.
En hvers vegna að tendra
ökuljós um hábjartan dag? Til
þess liggja rnargar ástæður, m.a.
sú að margsannað er, að bílar
sjást mun fyrr ef þeim er ekið
með fullum Ijósum, jafnvel á
sólbjörtum degi. Sérhver öku-
maður getur fullvissað sig um
þetta með því að líta í baksýnis-
spegilinn og sjá hvað bílar með
fullum ökuljósum greinast betur
en þeir sem eru ljóslausir. Og
þegar sól er lágt á lofti og nota
þarf sólskyggni til þess að blind-
ast ekki, er mun auðveldara að
koma auga á þá bíla sem á móti
koma með ökuljósin tendruð.
Þetta getur skipt sköpum við
framúrakstur.
Notkun ökuljós á daginn er
eitt áhrifaríkasta ráð sem unnt er
að beita til þess að fækka slysum
úti á vegum. svíar hafa tekið
upp skyldunotkun ökuljósa allan
sólarhringinn. Rannsóknir þar
síðustu tvö ár fyrir og næstu tvö
ár eftir lagabreytinguna sýndi
fram á.
21% fækkun árekstra milli
bíla og reiðhjóla/vélhjóla,
17% fækkun slysa á gangandi
vegfarendum,
10% fækkun árekstra framan
á bíla,
9% fækkun hliðarárekstra.
Ef 85% bíla hér á Islandi væri
að staðaldri ekið með fullum
ökuljósum á daginn er líklegt að
slysum á fólki í umferðinni
fækkaði um 80 til 90 á ári, þar af
gætu verið eitt til tvö banaslys.
Notkun ökuljósa allan sólar-
hringinn ásamt almennri notkun
bílbelta eru því einhveijar
áhrifaríkustu aðgerðir sem unnt
er að ger til þess að fækka
slysum á fólki í umferðinni.