Íslendingur - 09.08.1984, Side 6
6
ísleudinður
FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1984
Kúbanir elskulegir og þjóðernissinnaðir
- segir Oddur Sigurðsson
Hvað fær menn til að venda sínu
kvæði i kross, bregða undir sig
betri fætinum og dvcljast í landi
Castros í 4 vikur? Oddur Sig-
urðsson heitir ungur Akureyr-
ingur sem nýkominn er heim frá
Kúbu eftir mánaðardvöl við leiki
og störf. íslendingur hafði sam-
band við Odd og bað hann að
segja lesendum frá ferðinni.
„Þetta byrjaði nú þannig að
fyrir síðustu jól frétti ég af því að
samtök sem kalla sig VÍK (Vina-
félag íslands og Kúbu) væri með
ferð í undirbúningi og ákvað ég
að reyna að drífa mig með. Það
eru samnorræn samtök, Brigada
Nordica sem standa fyrir þess-
um vinnubúðum og voru þátt-
takendur frá flestum norður
evrópulöndum, en frá íslandi
vorum við sextán.
22. júní héldum við frá Kefla-
vík til Kaupmannahafnar og
þaðan til Austur-Berlínar. Síðan
lá leiðin til Gander á Nýfundna-
landi, og þaðan til Havana
höfuðborgar Kúbu. Frá Havana
var síðan um 40 mínútna kevrsla
j
út úr borginni til staðarins þar
sem við áttum að vinna næstu 3
vikurnar. Ferðin tók tæpa þrjá-
tíu tíma og við komuna til Kúbu
var hitinn þar „aðeins” 29°c sem
innfæddum þótti í kaldara lagi.”
Þegar ég spyr Odd hvað hann
hafí gert af sér meðan á dvölinni
stóð brosir hann við og seg-
ir að megnið að dvölinni hafí
hann verið í ólaunaðri steypu-
vinnu sem var með allra frum-
legasta móti.i - Þannig var að við
vorum látin steypa grunn fyrir
svínahús. Var steypan hrærð í
lítilli hrærivél og var þaðan
sturtað ofan í skurði sem grafnir
voru með skóflu og haka. Einnig
vann hann við að skera burtu
vafningsjurtir frá appelsínu-
trjám. Vinnan var oft erfið sér-
staklega í þeim gífurlega hita
sem þarna var. Nú hvað varðar
annað starfí sumarbúðunum þá
voru haldnir einhverskonar
fundir þrisvar í viku þar sem
kynnt voru ýmis málefni sem
vörðugu land og þjóð.
Svo fór ég á einn ungkomm-
únistafund — það var alveg
rosalegt, sem Oddur og hlær.
Síðustu vikuna notuðum við svo
til að ferðast um nágrennið, fór-
um í sögulegar fjallaferðir o.fl.
Hvernig fannst þér menningin
á staðnum?
Hvað viðvíkur fólkinu sem
byggir landiö er aöeins gott um
þaö að segja, elskulegt og
Oddur Sigurðsson
Áll, ól og iðnaður
Það hefur áreiðanlega ekki
fariö fram hjá neinum, sem á
annað borð hefur fylgst með
umræðiim í blöðum hér á Akur-
eyri og manna á ineðal, að
inikið hefur verið deilt uin álver
og hvorf fá eigi eitt slíkt hér í
fjörðinn. Eins og endranær,
þegar þessi inál hefur borið á
góma, eru menn ekki á eitt
sáttir. í öllu því moldvirði, sem
hefur verið þyrlað upp í kring-
iim þeffa mál af mörgum mönn-
uin, hefur ævinlega inátt greina
það alveg skýrt, að ölliiin, sem
taka fil ináls uin þefta, er það
áhyggjuefni, hve hér uin slóðir
hefur ven'ð inikið atvinnuleysi
upp á síðkastið, hve vöxtur í
atvimiulífinu er hér lítill miðað
við síðifsfa áratug. Og það er
ölluin mikið kappsmál að
trvggja næga atvinnu í hér-
aðinu, hvort sem þeir eru ineð
w)a á móti álveri. En að sjálf-
sögðu hvílir sú skylda á and-
stæðingum álvers að sýna frá á,
að hægt verði að fryggja sam-
bærileguin fjölda störf, ef þeir
vilja sínuin framgengt og hér
verður ekki reist álver. Það er
gripið til ýmissa ráða til að
sýna fram á það, að hér verði
mögulegt að tryggja nægilega
mörgum vinnu þráft fyrir allf.
Helst hallasf menn að smáiðn-
aði ýmiss konar. En sá iðnaður,
sem fyrir er getur ekki tekið við
allri þeirri aukningu, sem fyrir-
sjáanlegt er, að verði á mann-
afla hér um slóðir. Þá þarf að
benda á nýjar leiðir í iðnaði, en
það er hægara sagf en gert og
vefst mörgum ágætum mann-
inum tunga um tönn af minna
tilefni en því. Þau rök álvers-
andstæðinga hafa ekki verið
sérlega sannfærandi. í þessu
sambandi mæltu menn gjarnan
minnast þess, að fyrir síðustu
bæjarstjórnarkostningar sagði
fulltrúi Kvcnnaframboðsins að
ein leiðin til að efla atvinnulíf í
Noróangorri
Akureyrarbæ væri að fjölga
störfum í Kjötiðnaðarstöðinni.
Þeffa þófti ýmsum fróðlegt, sér-
staklega vegna þess að ekki
hafði frést af því að til stæðu
sérstakar nýjungar í framleiðslu
stöðvarinnar eða að hún hefði
afiað nýrra markaða fyrir fram-
leiðslu sína. Ekki er vitað til
þess að Kvcnnaframboðið hefði
verið að vinna í markaðsmálum
stöðvarinnar. Enda kom það á
daginn, að ekkert stóð til að
gera fyrir atvinnulíf í þessum
bæ, hvort sem það er Kjötiðn-
aðarstöðin eða annað. Þetta
ætti að segja lesendum það eitt,
að allt þetta gaspur um ný
atvinnutækifæri í smáiðnaði er
lítið annað en orðin tóm. Þeir,
sem gaspra, eru ekki þeir sem
ætla að standa í atvinnurekstri,
enda uggir marga smáiðnrek-
endum mjög um sinn hag.
í síðasta tölublað íslendings
var sagt frá því, að verið væri að
rannsaka það á vegum Iðn-
þróunarfélags F.yjaljarðar að
koma upp álarækt i Höfða-
hverfi. „Forsaga ntálsins er sú,
að fyrir nokkrum árum var bor-
að ofan í Gljúfurgil eftir heifu
vatni, seni ekki reyndist nógu
heitt fyrir hitaveitu. Á hinn bóg-
inn var það allmikið af 25°
heitu vatni.”
Síðar í fréttinni segir:
„Vegna heita vatnsins eru að-
stæður fyrir álarækt hlutfalls-
lega betri en fyrir laxeldi, ef
miðað er við önnur lönd í
Evrópu. Á hinn bóginn setur
landbúnaðarráðuneytið slík
skilyrði varðandi innflutning á
glerál, að það skefur af hag-
kvæmnina. En þar er talað um
að hver sföð verði að setja upp
sóttvamarstöð á sinn kostnað,
þar sem glerálinn verður að
vera í sóttkví í marga mánuði,
það verði að hrcina allt frá-
rennsli frá stöðinni o.s.frv.”
Skýringin á þcssum ströngu
skilyrðum er sú, að áll fær suma
sömu sjúkdóma og lax. ÁII get-
ur af sér seyði og þess vegna
verður að flytja hann inn lif-
andi. Við það eykst hættan á
því að sjúkdómar berist til
landsins. I.ax er mjög verðmæt-
ur fiskur á íslandi og ekki hefur
verið talið skynsamlegt að taka
þá áhættu, sem í innflutningn-
um felsí.
Þetfa litla dæmi sýnir í hnot-
skurn, hve erfitt getur verið að
brydda upp á nýjuin atvinnu-
greinum í iðnaði. Erfiðleikarnir
koma úr ólíklegustu áttum. Það
er því ástæðulaust að kasta því
frá sér fyrirfram, að hér rísi
álverksmiðja, ef ekki er tekin of
mikil áhætta ineð byggingu
hennar. Norðangarri.
Frá Kúbu
mjög þjóðernissinnað og ber hag
lands síns fyrir brjósti. Hins veg-
ar var það þögult sem gröfín
þegar ég fór að spyrja það um
glæpi, fíkniefni, svartamarkaðs-
brask, stjórnmál og þess háttar
málefni og þóttist þá ekki skilja
hvað var verið að tala um eða
bara reyndi að snúa út úr.
Maturinn var einnig nokkuð
óvenjulegur. Fyrstu dagana lifði
maður á bönunum og hrísgijón-
um því að steikurnar voru erfið-
ar viðfangs til að byrja með.
Hinsvegar sótti ég stundum í
bjórinn á kvöldin. Þegar ég sagði
þeim innfæ.ddu frá því aö á
íslandi væri bjórinn bannaöur,
urðu þeir alveg steinhissa því
þeir vildi ineina að bjórinn væri
mjög hollur, hvað sem er svo
hæft í þeim efnum. Mjólkin og
vatnið voru gjörsamlega ódrekk-
andi.
Þar sem vinnubúðirnar voru
staðsettar fyrir utan borgina
kynntist ég lífi fólksins í landinu
mjög takmarkað.
Þar sem ég bjó voru þetta
aðallega bændur og verkafólk
sem unnu á samyrkjubúum og
fólk sem stundaði hreinan sjálfs-
þurftarbúskap.
Kaupiö hjá fólkinu var hlægi-
lega lágt, t.d. eru mánaðarlaun
verkamanns ekki nema um 6000
kr. og verðlag tiltölulega hátt
Hinsvegar höfðu kaupmennirnir
ekki mikið upp á að bjóða, föt
voru ljót, inikið um skran en ég
held ég megi segja að hver og
einn hafí í sig og á. Það var aftur
á móti hægt að fá ýmsa góða
hluti í s.k. dollarabúðum en gall-
inn við þær var sá að þar var allt
á uppsprengdu verði. Það sem
kom mér einnig á óvart í þessu
sambandi var það að innfæddu
íbúarnir voru ekki fyrr búnir að
gorta sig yfír því að hafa
„útiýmt gjaldeyrisbraski, en
mér var boðið, a.m.k. tíu
sinnum, skipti á peso og dollur-
urn og var þá gengið á dollur-
unum töluvert hærra. Það voru
greinilega skipuleg samtök sem
stóðu í þessu braski því að á
hverju götuhorni voru strákar
sem buðu skipti og þeir höföu
það mikla fjármuni undir hönd-
um að annað væri óeðlilegt.
Hvað er þér efst í huga eftir
að þú ert kominn heim?
„Þessi ferð er náttúrulega heil-
mikil upplifun, sem situr í huga
manns alla ævi. Ég hugsaði oft
heim þegar fyrir augu mín bar
sá aðbúnaður sem fólk varð að
láta sér lynda, og hugsaði sem
svo að stundum heföu íslend-
ingar það einum of gott. Það var
líka greinilegt að fólkiö í landinu
líður ekki að talað sé illa um
landið, og auðséð var að í skoð-
unarferöum og stuttum ferða-
lögurn var fyrirfram ákveðið
hvað við áttum að fá að sjá og
hvað ekki. En burtséð frá þessu
var ferðin hin skemmtilegasta og
ég á örugglega eftir að gera
eitthvað svipað á komandi lífs-
leið.”
Brynja auglýsir
úr frystiborði:
• iærissneiðar
• kótiiettur
• grillsneiðar
• lambasnitsel
• krebenettur
• kjúklingar
• kjúklingahlutar
• franskar kartöflur
• kartöfluskífur
Nýjar kartöflur
Við erum einnig farin að leigja
út vídeóspólur fyrir VHS kerfi.
Komið og lítið á úrvalið hjá
okkur.
Opið alla daga frá kl. 10-23.30
Verslunin Brynja
Aðalstræti 3
600 Akureyri - Sími 24478