Íslendingur - 09.08.1984, Síða 8
Bundið slitiag á aust-
ur hluta Víkurskarðs
Amþór Bjömsson
Mikíð um ferðamenn
- segir Arnþór Bjömsson, hótelstjóri
— Hér hefur verið mikið um
ferðamenn í ágúst, en svolítið
dró úr síðustu dagana í júlí,
sagði Arnþór Björnsson í Reyni-
hlíð í viötali við íslending í gær.
Hér var mikið af fólki um
verslunarmannaheigina og allt
gekk vel fyrir sig.
— Veiði í Mývatni hefur verið
léleg í sumar og silungurinn
magur, enda hefur verið mjög
lítið af iykmýi og þess vegna
lítið af lirfu í vatninu.
— Sumarið hefur verið með
eindæmum gott og einhver
sagði, að það minnti á sumarið
1955. Hér er óvanalegt, að slegið
sé aftur, en þó ætla nokkrir
bændur að gera það, þar sem
sprettan er svo góð.
Þjóðvegarkaflinn frá Fnjóskár-
brú að Víðivöllum var boðinn út
síðastliðið vor, og var Glerá s.f.
með lægsta tilboðið. Fram-
kvæmdir eru nú að hefjast.
Verður vegurinn byggður upp,
en bundið slitlag ekki lagt á
hann fyrr en sumarið 1985.
Þessa dagana er Vegagerð rík-
isins að leggja bundið slitlag á
þjóðveginn frá Víðivöllum upp á
austurbrún Víkurskarðs. Þeim
megin skarðsins sem að Eyjafirði
veit er vegurinn ekki fullbúinn
undir slitlag. Burðarlag vantar,
og eftir er að bera í fláa og
ganga frá utan vegar. Verður
þessum verkþáttum lokið á
næsta sumri. Þá verður einnig
lagt bundið slitlag á allan vestur-
hluta Víkurskarðsvegar.
Það slitlag, sem hér um ræðir,
er svokölluð klæðning, sem er
yfirleitt höfð tvöföld. Klæðning
Ætlum að koma
upp óvaxtatorgi
Slegið á góðu sumri
Þórshöfn:
Sjö íbúðir í byggingu
Það hefur lifnað yflr byggingar-
iðnaðinum á Þórshöfn að sögn
Stefáns Jónssonar sveitarstjóra.
í síðasta mánuði voru fjórar
íbúðir í verkamannabústöðum af-
hentar, en í byggingu eru 5 íbúð-
arhús og stendur til að byggja
tvær íbúðir í verkamannabústöð-
um til viðbótar í sumar. Þá er
Útgerðarfélag Norður-
Þingeyinga að ráðast í byggingu
yfir starfsemi sína, skrifstofur og
geymsiuhúsnæði.
Það hefur verið góður afli hjá
Stakfellinu og kom það inn á
þriðjudag með 200 tonn, en afli
hefur verið sæmilegur hjá bát-
unum. Atvinnuástand er mjög
gott og enginn á atvinnuleysis-
skrá.
Olíumöl var lögð út á Þórs-
höfn árið 1978, en er nú ónýt og
verður klæðning lögð yfir hana í
sumar og á 500 metra langan
kafla til viðbótar.
Fundir með
Þorsteini
Formaður Sjálfstæðisflokksins,
Þorsteinn Pálsson, er á ferð í
kjördæminu þessa daga.
í kvöld fimmtudag verður
Þorsteinn Pálsson frummælandi
á fundi fulltrúáráðsins á Akur-
eyri, sem verður haldinn í Kaup-
angi kl. hálfníu um kvöldið.
Þá mun Þorsteinn Palsson
hitta sjálfstæðismenn á Húsavík
á föstudeginum, en síðan tekur
hann þátt í sumarferð sjálf-
stæðisfélaganna út í Hrísey helg-
ina 11. og 12. águst,
er ódýrasta tegund varanlegs
slitlags, sem notuð er hérlendis.
Aðferðin er fólgin í því, að heitu
asfalti er úðað yfir burðarlagið,
en möl dreift yfir asfaltið. Um-
ferðin þéttir síðan slitlagið. Olíu-
möl er blönduð heit í mal-
bikunarstöð, en lögð köld. Mal-
bik er hins vegar blandað og lagt
heitt.
Á Norðurlandi hefur olíumöl
lítið verið notuð. Malbik og
klæðning eru því þær gerðir
slitlags, sem mest hafa tíðkast
hér. Verulegur kostnaðarmunur
er á þessum gerðum bindiefna.
Kostnaður við lagningu olíu-
malar er 72% af malbikunar-
kostnaði. Klæðning kostar, við
þennan samanburð, 40% af mal-
bikunarkotnaði ef hún er tvö-
föld, en aðeins 23% ef hún er
einföld. Hérlendis er eins og
áður er sagt, yfirleitt lagt tvöfalt
lag af klæðningu.
TIO
— Við erum bæði meö ís-
lenskar kartöflur og erlendar
meðan þær endast. Fyrir fram-
leiðsluráði liggur erindi frá okk-
ur og fleiri aðilum um að fá að
kaupa beint af bændum, en við
því hefur ekki fengist endanlegt
svar. En það mál er í athugun.
— Hver er ykkar hlutur í
versluninni hér?
— Mesta samkeppnin er við
KEA, en við getum verið
ánægðir með okkar hlut.
— Eruð þið í byggingarhug-
leiðingum hér nyrðra?
— Nei, það erum við ekki, þó
að vísu megi segja að á fimmtu-
dögum og föstudögum sé ansi
þröngt um. En á hinn bóginn
erum við að breyta hönnuninni
á versluninni þannig, að lager-
rýmið verður minnkað, en þar
komið fyrir ávaxtatorgi eins og
hjá Hagkaupum í Reykjavík.
Þetta ávaxtatorg hefur verið
mjög vinsælt.
— Þið verslið mikið við
Kaupfélag Svalbarðseyrar. Eruð
þið ánægðir með þau viðskipti?
— Já, við erum eingöngu með
kjötvörur þaðan, nema lítillega
álegg frá Sláturfélagi Suður-
lands. Kjötvörurnar frá Kaup-
félagi Svalbarðseyrar eru í mjög
háum gæðaflokki og standast
fyllilega samkeppni við hvaða
vörur sem er. Samvinnan við
það hefur verið með miklum
ágætum.
— Og að Iokum?
— Mér virðist fólk hér vilja
styðja norðlenska framleiðsu og
taka hana framyfir. Það er t.d.
áberandi varðandi frönsku
kartöflurnar frá Svalbarðseyri,
sem seljast hér mjög vel, en ekki
eins fyrir sunnan.
- segir Guðmundur Víðir Friðriksson
Ég kann mjög vel við mig hér,
sagði Guðmiindur Viðar Frið-
riksson, nýr verslunarstjóri hjá
Hagkaupum, í viðfali við íslend-
ing, en hann var áður aðstoðar-
verslunarsfjóri í Kjörgarði við
Laugaveg í Reykjavík. Verslunin
hérna er mjög skemmtileg,
starfsfólkið gott og þægilegur
gangur á öllu. Ekki sami asinn
og fyrir sunnan.
— Mér viröist smekkur fólks
og neysluvenjur svipaðar og
syöra, en fólk gefur sér meiri
tíma til að versla. Þaö stansar til
aö tala viö kunningja og veltir
málunum betur fyrir sér. er
kannski hálftíma að fara hring-
inn en fer hann ekki í einum
spretti eins og þar.
— En vöruverð hér og þar?
— Það er þaö sama. Það er
stefna /yrirtækisins að bjóða
Guðmundur Víðir Friðriksson
góða vöru á lágu veröi og þess
vegna er enginn flutningskostn-
aður lagður á vöruna, heldur
tökum við þær beint að sunnan
eða verslum við heildsalana hér,
en þau viðskipti eru hagkvæm
og vaxandi.
— En hvað er að frétta af
kartöflumálunum?