Íslendingur - Ísafold

Eksemplar

Íslendingur - Ísafold - 23.08.1969, Side 1

Íslendingur - Ísafold - 23.08.1969, Side 1
„Plast og meira plast66 — Sjá bls. 4 og 5 íslmdimur- Ísafolil 45. tölublað. Laugardagur 23. ágúst 1969. 54. og 94. árgangur. v Hauganes: Góður ffifli í snurvoð Afli snurvoðabáta héðan bef- ur verið ágætur í sumar, en nótaveiðin verið léleg, sagði Gunnar Níelsson útgerðarmað- ur á Hauganesi í samtali við blaðið. — Nú er afli farinn að tregast og er einn báturinn að hætta veiðum með nót og ætlar að leggja net, annar er með færi og sá þriðji veiðir í snurvoð. í sumar hafa bátarnir haldið sig að mestu á utanverðum Eyja firði og einnig farið inn á Skjálf andaflóa. Aflann hafa þeir lagt upp hjá frystihúsunum á Dal- vík, Hrísey og Húsavík, en einn ig hefur verið landað á Akur- eyri og fiskur hefur verið flutt- ur allt til Sauðárkróks, en það var þó ekki oft. Breiðdalsvík: * A síld og trolli □ Vélskipið Hafdís frá Breið- dalsvík er á síldveiðum og saltar áhöfnin um borð. Er skip ið búið.að leggja á land á Breið dalsvík 1400—1500 túnnur af sjósaltaðri síld, síðan það hóf veiðar. Sigurður Jónsson er á togveiðum, leggur upp hjá frystihúsinu. Hann hefur aflað sæmilega og atvinna því verið frekar góð í frystihúsinu. Lítið er um framkvæmdir á vegum hreppsins, en unnið er við lagn- ingu nýs vegar við Ásunnar- staði í Breiðdal, sagði Baldur Pálsson á Breiðdalsvík. Rign- ingar hafa verið miklar þar fyr ir austan í sumar og heyskapur því gengið erfiðlega hjá bænd- um. Drangsnes: Góð tíð Hér hefur verið góð tíð í sum ar, grasspretta verið góð þar sem um sprettu hefur verið að ræða, og afli verið þokkalegur þar til fyrir viku, að fiskurinn hvarf um sinn, sagði Jakob Þor valdsson á Drangsnesi. Heyskap ur hefur gengið þolanlega, en óvenju mikið hefur verið sett í votheysgrifjur. — Tveir bátar hafa rólð og aflað sæmilega, en nú er annar þeirra alvarlega bilaður. Einhverjar hugleiðing- ar eru uppi um, að frystihúsið hér hefji nú þegar rækju- vinnslu á ný, en óvíst er uin á- huga útgerðarmanna á að veiða rækjuna. Unnið er að verulegum end- urbótum á veginum norðan í plássinu og mun það koma sér vel, er vetrar. Ekki er vitað, hvort gert verður við bryggj- una, en hafísinn setti á hana glufu í vetur. Merkileg nýjung á döfinni a íslenzkum verksmiðjureksfri kANIMA IVIÖGULEIKA Á AÐ NOTA EINGÖNGU RAFIVIAGN SEIVf ORKU- GJAFA f VERKSIVflÐJU IÐUNNAR 9 Fyrir nokkru fór ein af verk smiðjum SÍS á Akureyri, Ið- samkomulag við stjórn Laxár- virkjunar um að aukning afl- sparast mikill gjaldeyrir og ný- ir möguleikar opnast til að virkja vatnsafl til almennings- nota á hagkvæman hátt. unn, þess á leit við Rafveitu Ak ureyrar, að gert yrði tilboð í rafmagnssölu til verksmiðjunn ar, 2000 kw til að byrja með og allt að 3000 ltw til frambúðar. Hugmyndin að baki þessari ósk er sú, skv. fundargerð rafveitu- stjórnar, að verksmiðja Iðunnar sent nú er verið að reisa, noti eingöngu rafmagn sem orku- gjafa og að settur verði upp raf magnshitaður gufuketill í stað olíukynts. Hefur rafveitustjórn samþykkt að bjóða rafmagnið á kr. 0.30/kwh með fyrirvara um toppa, sem af þessu kunna að hljótast, verði ekki reiknaðir til verðs, og við Iðunni um rekstur kyndistöðvarinnar. Fer nú fram frekari athugun máls- ins, þ.e. varðandi tækjakaup, sem ráða rnunu úrslitum, og mun þeirri athugun ljúka inn- an skamms. • Verði af þcssum rafmagns- kaupum Iðunnar, sem sterk- ar líkur benda til, er á ferðinni merkileg nýjung í íslenzkum verksmiðjurekstri sem og nýt- ingu vatnsaflsins. Myndi í senn Bruni og tjón í Iðunni Á miðvikudagskvöldið kl. 19,30 varð vart við eld í skinnaverksmiðju Iðunnar, á sama stað og eldur kviknaði í vetur, er tugmilljónatjón varð af. — Nú var eldurinn slökktur á hálftíma. Eldurinn skemmdi raf- magnsleiðslur og eyðilagði kemisk efni og reykur mun hafa skemmt nokkuð af skinnum, svo og nýmálaða veggi hússins, en endurbygg ing þess eftir brunann í vet- ur var á lokastigi. Eldsupptök voru í ullar- þurrkara. Nýja flugstöðin á ísafirði. Turn inn vantar enn. (Mynd: L.J.J.). Isafjörður: FLUG8TÖÐIN FULLGERÐ í HAUST — nema turninn, sem lokið verður við um áramótin ♦ Nýja flugstöðin á ísafirði, sem verið hefur í byggingu um skeið, verður fullgerð í haust, nema turninn, en lokið verður við hann um áramót, ef allt gengur að óskum, sagði Birgir Valdimarsson fulltrúi flugmálastjórnarinnar á ísa- firði. Flugstöðin er 508 ferm. hæð, kjallari undir hluta og svo turninn. Verður hin bezta að- staða fyrír starfsfólk, farþega- og vöruafgreiðslu. ♦ Ekki eru neinar sérstakar framkvæmdir fyrirhugaðar við flugvöllinn sjálfan, en horf- ið mun hafa verið frá því að malbika hann að sinni. Er völl- urinn 1.400 metra langur, og góður sem malarvöllur. ♦ Flugumferð hefur gengið vel í sumar og flutningar verið allmiklir. — Askriftarsími blaðsins er (96)21500 —

x

Íslendingur - Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.