Íslendingur - Ísafold - 23.08.1969, Page 1
„Plast og meira plast66 — Sjá bls. 4 og 5
íslmdimur- Ísafolil
45. tölublað. Laugardagur 23. ágúst 1969. 54. og 94. árgangur. v
Hauganes:
Góður ffifli
í snurvoð
Afli snurvoðabáta héðan bef-
ur verið ágætur í sumar, en
nótaveiðin verið léleg, sagði
Gunnar Níelsson útgerðarmað-
ur á Hauganesi í samtali við
blaðið. — Nú er afli farinn að
tregast og er einn báturinn að
hætta veiðum með nót og ætlar
að leggja net, annar er með færi
og sá þriðji veiðir í snurvoð.
í sumar hafa bátarnir haldið
sig að mestu á utanverðum Eyja
firði og einnig farið inn á Skjálf
andaflóa. Aflann hafa þeir lagt
upp hjá frystihúsunum á Dal-
vík, Hrísey og Húsavík, en einn
ig hefur verið landað á Akur-
eyri og fiskur hefur verið flutt-
ur allt til Sauðárkróks, en það
var þó ekki oft.
Breiðdalsvík:
*
A síld og
trolli
□ Vélskipið Hafdís frá Breið-
dalsvík er á síldveiðum og
saltar áhöfnin um borð. Er skip
ið búið.að leggja á land á Breið
dalsvík 1400—1500 túnnur af
sjósaltaðri síld, síðan það hóf
veiðar. Sigurður Jónsson er á
togveiðum, leggur upp hjá
frystihúsinu. Hann hefur aflað
sæmilega og atvinna því verið
frekar góð í frystihúsinu. Lítið
er um framkvæmdir á vegum
hreppsins, en unnið er við lagn-
ingu nýs vegar við Ásunnar-
staði í Breiðdal, sagði Baldur
Pálsson á Breiðdalsvík. Rign-
ingar hafa verið miklar þar fyr
ir austan í sumar og heyskapur
því gengið erfiðlega hjá bænd-
um.
Drangsnes:
Góð tíð
Hér hefur verið góð tíð í sum
ar, grasspretta verið góð þar
sem um sprettu hefur verið að
ræða, og afli verið þokkalegur
þar til fyrir viku, að fiskurinn
hvarf um sinn, sagði Jakob Þor
valdsson á Drangsnesi. Heyskap
ur hefur gengið þolanlega, en
óvenju mikið hefur verið sett í
votheysgrifjur. — Tveir bátar
hafa rólð og aflað sæmilega, en
nú er annar þeirra alvarlega
bilaður. Einhverjar hugleiðing-
ar eru uppi um, að frystihúsið
hér hefji nú þegar rækju-
vinnslu á ný, en óvíst er uin á-
huga útgerðarmanna á að veiða
rækjuna.
Unnið er að verulegum end-
urbótum á veginum norðan í
plássinu og mun það koma sér
vel, er vetrar. Ekki er vitað,
hvort gert verður við bryggj-
una, en hafísinn setti á hana
glufu í vetur.
Merkileg nýjung á döfinni a íslenzkum verksmiðjureksfri
kANIMA IVIÖGULEIKA Á AÐ NOTA
EINGÖNGU RAFIVIAGN SEIVf ORKU-
GJAFA f VERKSIVflÐJU IÐUNNAR
9 Fyrir nokkru fór ein af verk
smiðjum SÍS á Akureyri, Ið-
samkomulag við stjórn Laxár-
virkjunar um að aukning afl-
sparast mikill gjaldeyrir og ný-
ir möguleikar opnast til að
virkja vatnsafl til almennings-
nota á hagkvæman hátt.
unn, þess á leit við Rafveitu Ak
ureyrar, að gert yrði tilboð í
rafmagnssölu til verksmiðjunn
ar, 2000 kw til að byrja með og
allt að 3000 ltw til frambúðar.
Hugmyndin að baki þessari ósk
er sú, skv. fundargerð rafveitu-
stjórnar, að verksmiðja Iðunnar
sent nú er verið að reisa, noti
eingöngu rafmagn sem orku-
gjafa og að settur verði upp raf
magnshitaður gufuketill í stað
olíukynts. Hefur rafveitustjórn
samþykkt að bjóða rafmagnið á
kr. 0.30/kwh með fyrirvara um
toppa, sem af þessu kunna að
hljótast, verði ekki reiknaðir
til verðs, og við Iðunni um
rekstur kyndistöðvarinnar. Fer
nú fram frekari athugun máls-
ins, þ.e. varðandi tækjakaup,
sem ráða rnunu úrslitum, og
mun þeirri athugun ljúka inn-
an skamms.
• Verði af þcssum rafmagns-
kaupum Iðunnar, sem sterk-
ar líkur benda til, er á ferðinni
merkileg nýjung í íslenzkum
verksmiðjurekstri sem og nýt-
ingu vatnsaflsins. Myndi í senn
Bruni og tjón
í Iðunni
Á miðvikudagskvöldið kl.
19,30 varð vart við eld í
skinnaverksmiðju Iðunnar, á
sama stað og eldur kviknaði
í vetur, er tugmilljónatjón
varð af. — Nú var eldurinn
slökktur á hálftíma.
Eldurinn skemmdi raf-
magnsleiðslur og eyðilagði
kemisk efni og reykur mun
hafa skemmt nokkuð af
skinnum, svo og nýmálaða
veggi hússins, en endurbygg
ing þess eftir brunann í vet-
ur var á lokastigi.
Eldsupptök voru í ullar-
þurrkara.
Nýja flugstöðin á ísafirði. Turn inn vantar enn. (Mynd: L.J.J.).
Isafjörður:
FLUG8TÖÐIN FULLGERÐ í HAUST
— nema turninn, sem lokið verður við um áramótin
♦ Nýja flugstöðin á ísafirði,
sem verið hefur í byggingu
um skeið, verður fullgerð í
haust, nema turninn, en lokið
verður við hann um áramót, ef
allt gengur að óskum, sagði
Birgir Valdimarsson fulltrúi
flugmálastjórnarinnar á ísa-
firði. Flugstöðin er 508 ferm.
hæð, kjallari undir hluta og svo
turninn. Verður hin bezta að-
staða fyrír starfsfólk, farþega-
og vöruafgreiðslu.
♦ Ekki eru neinar sérstakar
framkvæmdir fyrirhugaðar
við flugvöllinn sjálfan, en horf-
ið mun hafa verið frá því að
malbika hann að sinni. Er völl-
urinn 1.400 metra langur, og
góður sem malarvöllur.
♦ Flugumferð hefur gengið vel
í sumar og flutningar verið
allmiklir.
— Askriftarsími blaðsins er (96)21500 —