Íslendingur - Ísafold - 13.03.1971, Síða 1
|SE*BSBl8B?amgE
9. tölublað. Laugardagur 13. marz 1971. 56. og 96. árgangur.
Glæsilegur fundur með forsætisráðh.
A þriðja hundrað manns sóttu fundinn
Sjálfstæðisfélögin á Ak-
| ureyri héldu sameiginlegan
fund í Sjálfstæðishúsinu á
mánudagskvöld. Ræðu flutti
| forsætisráðherra, Jóhann Haf
pt stein. I ræðunni lagði for-
sætisráðherra höfuðáherzlu
á landhelgismálið og hagnýt-
ingu landgrunnsins. Hann
ræddi síðan stjórnmálavið-
horfið og helztu þingmál, á-
samt viðfangsefnum lands-
fundar, sem verður 22. apríl
nk. Fundinn sóttu talsvert á
þriðja hundrað manns. Fjöl-
margar fyrirspurnir bárust,
bæði munnlega og skriflega,
til ráðherra, enda var fund-
urinn í mjög frjálsu formi og
gátu menn gert fyrirspurnir
í hljóðnema úr sætum sínum.
Fundarstjóri var Jón G. Sól-
nes, forstjóri bæjarstjórnar.
Sjá viðtal á bls. 5.
HRÍSEY OG DALVlK:
IVfiklar fram
kvæmdir
i fiskiðnaði
Miklar framkvæmdir standa
nú yfir hjá hraðfrystihúsum
KEA á Dalvík og í Hrísey. Á
Dalvik er verið að byggja við
hraðfrystihúsið, og í Hrisey fer
fram endurbygging hraðfrysti-
hússins. Nýlokið er þar bygg-
ingu mjölskemmu og verið er
að byggja hús yfir lifrarbræðslu
og saltfiskverkun. Endurbæt-
urnar eru gerðar á þann hátt,
að þær fullnægi kröfum nýrr-
ar handbókar frá frystihúsaeft-
irlitinu. Þær fela auk framan-
greinds m. a. í sér kaup á nýrri
gerð Baader flökunarvéla, sem
eiga að auka nýtingu hráefnis-
ins verulega. Afkastageta hús-
anna eykst um 20%, en í Hrísey
hafa afköstin verið um 15 — 20
tonn á dag, og á Dalvík um
20 — 25 tonn. Hér er bætt úr
brýnni þörf, þar sem verulegur
bagi hefur oft verið að því, að
elcki hefur reynzt unnt að taka
við nægilega miklu hráefni, þeg
ar mest hefur borizt að, eink-
um á Dalvík.
HRlSEY:
Undirbúa
ákvörðun
Einsdæmi á IMorðurlandi
Morðurverk vinnur að vegagerð allan veturinn,
án þess að nokkur dagur hafi fallið úr
Akureyri, 9. marz:
í næstu viku er vonast til,
að malburði á vegi upp í Hlíð-
arfjall að Skíðahóteli ljúki, og
er þá einungis eftir smákafli af
gerð nýja vegarins upp í Hlíð-
arfjall úr bænum, þ. e. a. s. við
sjálft Skíðahótelið.
Blaðið sneri sér til forráða-
manna Norðurverks hf. og innti
eftir því, hvort ekki væri erfið-
leikuin bundið að vinna slík
verk á vetrum. Þeir töldu þvert
á móti, að þessi vegagerð hefði
verið óframkvæmanleg á öðr-
um árstíma. Ástæðan er sú, að
vegarstæðið er á svo miklu mýr
lendi, að ýturnar sukku sífellt
í og festust í haust, þegar þeir
hófu verkið. Þegar frysti gátu
þær hins vegar flotið á jarð-
veginum af skiljanlegum ástæð-
um, og bezt var að vinna eftir
að frostið náði 10 stigum, vegna
þess að þá var hægt að fara í
sömu rispuna eftir nokkrar mín
útur. Jarðvegurinn frýs nokk-
urn veginn jafnóðum við það
hitastig.
Forráðamenn Norðurverks hf.
telja, að mikið megi af þessu
læra um vinnubrögð við vega-
gerð. Uppþurrkun lands er
feiknalega dýr og tekur langan
tíma, auk þess sem hún er vart
framkvæmanleg víða. Með þeim
stórvirku tækjum, sem nú eru
til staðar til vegargerðar, skipti
á hinn bóginn sáralitlu, þótt
skafa þurfi snjó af vegarstæði
yfir vetur hjá þeim kostum,
sem frost í jörð hafi fyrir þessi
tæki. Yfir sumarið, eða þegar
þýða er í jörð, er leirinn svo
mikill, jafnvel þótt jörð sé ekki
mjög mýrlend, að hann sezt svo
í spyrnur á jarðýtunum, að þær
verða óvirkar, eins og þær
væru á gúmmíhjólum. Forráða-
menn Norðurverks töldu því,
að reynslan sýndi, að of lítill
gaumur hefði verið gefinn að
því hér á landi, hversu margir
kostir fylgdu vegagerð yfir vet-
urinn.
um
hitaveitu
Nýlokið er mælingu á bor-
holu hér í Hrísey, sem boruð
var 1965 vegna hugsanlegrar
hitaveitu. Hiti í holunni reynd-
ist um 65 stig, og er talið nægj-
anlegt vatn í þeim tveim bor-
holum, sem hér voru boraðar á
fyrrgreindu ári. Hjá Vermi sf.
fer nú fram áætlunargerð um
hitaveitu í eynni og verður tek-
in ákvörðun um framkvæmdir,
þegar niðurstöður hennar liggja
fyrir.
Fjölsótt
kirkjuvika
Kirkjuvika í Akureyrarkirkju
hófst um sl. helgi og hefur hún
verið mjög fjölsótt. Meðal ræðu
manna á vikunni hefur verið frú
Auður Auðuns, dóms- og kirkju
málaráðherra, sem flutti erindi
á mánudagskvöldið. I kvöld,
föstudag, flytja erindi Albert
Sölvason og Ólafur Tryggvason
og Kirkjukórinn syngur.
Kirkjuvikunni lýkur með guðs
þjónustu á sunnudaginn, þar
sem séra Bernharður Guðmunds
son predikar.
Rúmar 14 millj. til Ólafsfjarðar
til eflirigar atvinnu 1969 og 70
I síðasta AM-blaði er þess
óskað, að Lárus Jónsson upp
lýsi, hve mikið fjármagn At-
vinnujöfnunarsjóður hafi lán
að til Ólafsfjarðar. Það skal
hér með gert: Á árunum
1969 og 1970 hafa verið veitt
ar 14.1 milljón króna af ráð-
stöfunarfé Atvinnujöfnunar-
sjóðs, atvinnumálanefnda og
Norðurlandsáætlunar til Ól-
afsfjarðar, auk venjulegrar
fyrirgreiðslu annarar fjárfest
ingarsjóða og banka. Af
þessu fé fóru 2.8 milljónir
til eflingar fiskveiða og fisk-
iðnaðar, 6.5 milljónir til
stækkunar og endurbygging-
ar hitaveitu og 4 milljónir til
hafnargcrðar. Í Ólafsfirði er
nú unnið að stofnsetningu
nýrra fyrirtækja og hefur ault
in von um fyrirgreiðslu
vegna Norðurlandsáætlunar
haft þar hvetjandi áhrif eins
og annars staðar á Norður-
landi. Þess má geta í þessu
sambandi, að farið hefur ver
ið inn á nýjar brautir við að
finna heppileg fyrirtæki, sem
veitt geti arðbæra og varan-
lega atvinnu í hinum ýmsu
byggðarlögum á Norðurlandi.
I þessu efni hafa Ólafsfirð-
ingar verið fremstir í flokki,
svo sem á fleiri sviðum. —
Um þetta vísast til viðtals við
Guðmund Öskarsson verk-
fræðing, sem birtist á bls.
6 hér í blaðinu.