Íslendingur - Ísafold - 14.07.1971, Qupperneq 5
ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - MIÐVIKUDAGUR 14. }ÚLl 1971. 5
fcs
Vistheimilið Sólborg vígt
Jóhannes ÖIi Sæniundsson.
Sl. laugardag var vistheimili
vangefinna á Norðurlandi —
Sólborg — vígt við hátíðlega
athöfn, að viðstöddum fjölda
gesta. Jóhannes Öli Sæmunds-
son, framkvæmdastjóri Siyrktar
félags vangefinna á Norður-
landi, ávarpaði gesti og drap á
byggingarsögu heimilisins. Árið
1958 var stofnað Styrktarfélag
vangefinna í Reykjavík, og
meðal þeirra, er þátt tóku í
þeirri félagsstofnun, voru Hall-
dór Halldórsson, arkitekt, og
Guðmundur Gíslason, múrara-
meistari, en þeir eru nú báðir
látnir. Vorið 1959 komu þessir
tveir menn til Akureyrar ti! að
beita sér fyrir stofnun sams kon
ar félags á Norðurlandi.
Þann 22. maí var síðan stofn
að Styrktarfélag vangefinna á
Akureyri, en nafni bess var síð-
ar breytt í Styrktarfélag vangef-
inna á Norðurlandi. Þá Iiöfðu
liðlega 100 manns ákveðið að
ganga í félagið.
Fyrstu stjórn félagsins skip-
uðu þau Jóhann Þorkelsson, hér
aðslæknir, Jóhannes Óii Sæ-
mundsson, Albert Sölvason,
Bára Aðalsteinsdóttir og Jón
Inqimarsson.
í fyrstu var aðeins rætt um
að koma upp dagheimili með
einhverri kennslu, en fljótlega
var þó ákveðið að bvggja dag-
heimili. Var upphaflega rætt um
heimili fyrir 15 vistmenn, en
eftir að könnun hafði farið fram
á Norðurlandi, kom í Ijós, að
börf fyrir dvalarheimili vangef-
mna var mun meiri en nokkurn
hafði órað fyrir.
Staður fyrir heimilið var á-
kveðinn árið 1966 í Kotárborg-
um, sunnan Glerár, upp frá
"'ömlu Glerárbrúnni, á fögrum
o<t friðsælum stað. Lét Akureyr
">rbær þar ókeypis í té rúmgott
'andssvæði.
I júní 1967 hófust bvggingar-
framkvæmdir og um iíkt leyti
tóku gildi lögin um r'kisfram-
færslu vangefinna, sem tryggðu
fjárhagsafkomu vistheimila van
gefinna. Arkitektar voru bræð-
Albert Sölvason afhendir Þóroddi Jónassyni vistheimilið.
urnir Vilhjálmur og Helgi
Hjálmarssynir. Verkfræðingur
var Vífill Oddsson og byggingar
meistarar Ingólfur Jónsson og
Guðmundur Valdemarsson, og
var sá síðarnefndi aðaiverk-
stjóri. Húsin voru teikriuð fyiir
32 vistmenn og auk þess þrjú
starfsmannahús Eitt þeirra var
fellt niður, en aftur á móti auk-
ið nokkuð húsrými með full-
kominni nýtingu alls nothæfs
rýmis í grunnum húsanna. —
Geymslur, sem bannig fengust,
gáfu möguleika fyrir visther-
bergjum á neðstu hæð aðal-
hússins, sem ekki haíði verið fyr
irhugað. Jukust því að mun
vistarrými, og breyttist til bóta
Hfuti gesta við vígsluna.
(Myndir: Sæm.J.
nýting húsnæðisins, enda eru
vistnrenn í Sólborg nú 53. Þar
af eru þó sjö fluttir daglega
heiman og heim. Eru það skóla-
börn að vetrinum en dagvistar-
börn að sumrinu. Starfsfóll: Sól
borgar er um 30.
I stjórn Sólborgar eru nú: Þór
oddur Jónasson, héraðslæknir,
og til vara fyrir hann Soffía Guð
mundsdóttir. — Meðstjórnend-
ur eru Albert Sölvason, Jón Tngi
marsson, Níels Hansson og Jón-
ína Steinþórsdóttir.
Forstöðuköna er Kolbrún
Guðveigsdóttir og aðstoðarfor-
stöðukona er Valgerður Jóns-
dóttir, hjúkrunarkona. Aðal-
kennari er Bjarni Kristjánsson,
og er hann einnig skrifstofumað
ur og gjaldkeri Sólborgar.
Hluti lörkjukórs Lögmanns-
hÞ'ðark'riqu söng við athöfnina,
m. a. lag eftir Bi,'"i Helsason
v;ð texta eftir Kristján frá
Djúnnlæk, sem er tiieinkað Sól
borg. og er það giöí þeirra til
heimilisins.
Sr. Pctur S'gurgeirsson vígi
h-'milið oy til má's tóku Albe
Sö’vason Hjáhnar Vilhjálmi
rr"~l Þóroddur lónnsson, Jón (
Sólnes. sem tilkynmi 50 þú
kr. pjöf frá bæiarsljó.'n Aku
e«rar. og Pétur Tnpj-ddsson, pi
fasiur.
HæTisbycgingin ásmnt húsbí
aði og kennslutækjum kosta
um 40 millj. króna.
IMorðlendingar
sigruðu
Austfirðinga
Sunnudaginn 27. júní mætt-
ist bridgefólk frá Austurlandi
og Norðurlandi, að Skjólbrekku
í Mývatnssveit, en Austfirðing-
ar höfðu boðað þangað komu
sína og mættu þeir þar með 12
sveitir spilafólks, sem voru frá
ýmsum stöðum á Austurlandi,
en spilafólk Norðlendinga var
frá Árskógsströnd, Akureyri,
Húsavík og Mývatnssveit.
Norðlendingar sigruðu í
keppni þessari með töluverðum
mun, sigruðu á 8 borðum, en
Austfirðingar á 4. Keppnisstjóri
var Albert Sigurðsson frá Ak-
ureyri.
I leikhléi var borið frani kaffi
og brauð, mývetnskum konum
til sóma.
Að lokinni spilamennskunni
ávörpuðu þeir Angantýr Jó-
hannsson frá Hauganesi og Sig-
urður Þórisson á Grænavatni
Austfirðinga og þökkuðu þeim
fyrir ánægjulega heimsólm. —
Einnig tóku til máls af hálfu
Austfirðinga Vilhjálmur Sigur-
björnsson og Sigfinnur Karls-
son, Norðfirði, og þökkuðu þeir
móttökur og skemmtilega
keppni og kváðust vona að norð
lenzkt spilafólk kæmi til Aust-
urlands að ári. Voru menn á
einu máli uin að samskipti aust-
firzkra og norðlenzkra bridge-
spilara þyrftu að aukast.
Hugsum
áðuren
við
hendum
ORÐ DAGSINS
SÍMI - 2 18 40
*