Íslendingur - Ísafold - 14.07.1971, Qupperneq 10
10 ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - MIÐVIKUDAGUR 14. JULÍ 1971.
Ályktanir um samgöngu-
mál á Norðurlandi
„Samgöngumálafundur FjórÖ
ungssambands Norðlendinga,
haldinn 9. júlí 1971, ieggur á-
herzlu á nauðsyn stóraukinna
fjárveitinga til flugvallamála á
Norðurlandi.
Telur fundurinn, að í vænt-
anlegri samgönguáætlun Norð-
urlands verði að gera ráð fyrir
uppbyggingu þriggja aðalflug-
valla, þ. e. nýs flugvahar við
Sauðárkrók, Akureyrar- og Að-
aldalsflugvalla, en auk þess
verði fullgerðir smærri flugvell-
ir, sem miðast við, að hrundið
verði í framkvæmd áætlun um
reglulegar flugsamgöngur innan
fjórðungsins með henpilegri flug
9
Framhald af bls. 12.
tak mismunandi merkinu, eftir
því um hvern er talað. Þegar
Islendingar vilja samstarf við
vestrænar þjóðir í efnahags-
málum, nefnist það „undir-
lægjuháttur við erlent vald.“
Þegar semja n við kommúnista
ríkin, er annað uppi á teningn
um. Eins og kunnugt er, var
fyrir skömmu kosinn kommún
isti sem forseti í Chile, sem
þó hefur minni hluta atkvæða
þjóðarinnar á bak við sig. Til
þess að tryggja hann í sessi
hafa kommúnistaríkin lofað
landinu 100 milljónum dollara
að láni og auk þess sérstöku
vélakaupaláni að upphæð 40
milljðnum dollara. Þau ætla
að senda þangað her „sérfræð
inga“ og byggja stóriðjuver fyr
ir ámóta upphæðir, m. a. olíu-
hreinsistöð. Þetta heifir ekki
í orðabókum kommúnista
„undirlægjuháttur við erlent
vald“, heldur samstarf við vin
veittar þjóðir, eða eitthvað því
um líkt.
O ÚTSVÖRIN
A AICUREYRI
Hér á Akureyri vantaöi milli
5 og 6 milljónir króna til þess
að upphæð útsvara, sem lögð
voru á gjaldendur með fullu
álagi löglegs útsvarsskala, —
nægði fyrir áætluðum útgjöld-
um bæjarins og nauðsynleg-
ustu framkvæmdum. Samtím-
is því sem þetta gerist, þrástag
ast blöð, cinkum þó Framsókn
armálgögn, á því, að leyfður
sé of lágur persðnufrádráttur
til skatts. og útsvars. Þegar um
ræður urðu um þetta mál á
síðasta þingi, var fjármálaráð-
herra Iegið mjög á hálsi fyrir
að hækka ekki svonefnda
skattvísitölu meira en gert var,
en við hana miðast upphæð
persónufrádráttar. Samt sem
áður var skattvísitalan hækk-
uð um 20% á sama tíma sem
meðalframfærsluvísitala hækk
aði einungis um 13.12%. —
Ætli hefði ekki verið farið að
þrengjast fyrir dyrum ýinissa
sveitarfélaga, ef farið hefði
verið að ráðum stjórnarand-
stæðinga, þótt þau ráð létu ef
til vill vel í eyrum almenn-
ings fyrir kosningar. Sannlcik-
urinn er sá, að forráðamenn
sveitarfélaga lögðust eindregið
gegn slíkum hráskinnalcik. —
Annað mál er svo það, að ýms
um aðilum hefur þótt henta
að skamma eingöngu fjármála
ráðherra út af þessu máli, sem
auðvitað er ómaklegt með öllu,
þar sem afkoma ríkissjóðs var
ekki í hættu út af því, heldur
afkoma bæjar- og sveitaifé-
laganna.
Eiginmaðurinn minn og faðir okkar,
JÓNAS ODDSSON, læknir,
andaðist að heimili sínu, Álfabyggð 16, Akureyri, 11.
júlí sl.
Eiginkona og börn.
vél eða flugvélum. Verði allir
flugvellirnir búnir ljðsum og
öðrum öryggisbúnaði, svo og að
séð verði fyrir snjóniokstri á
völlunum og á vegum, sem að
þeim liggja. Einnig verði farþeg
um og áhöfnum flugvéla séð fyr
ir góðri aðstöðu á flugvöliun-
um.
Fundurinn lelur, að vinná
verði að því að skapa reksfrurs-
grundvöll fyrir flugsamgöngur
innan fjórðungsins og byggja
beri þær upp með þeim tækjum
sem fyrir eru, en um leið veröi
gerðar ráðstafanir tl! kaupa á
hagkvæmustu tækjum, svo sem
flugvél af gerðinni „Tv/in Olt-
er“. Bendir fundurinn á, að með
stuðningi við kaup á slíkri vél,
getur ríkissjóður stórbætt inn-
anfjórðungssamgöngur og unr
leið haldið framlögum til full-
nægjandi flugvalíaframkvæmda
innan hæfilegra marka.“
„Samgöngumálafundur Fjórð
ungssambands Novðlendinga,
haldinn á Akureyri 9. júií 1971,
telur, að í vegamálum í fjórð-
ungnum verði höfuðáherzla
lögð á, að milli byggðavegir frá
Hrútafirði til Þórshafnar og
Vopnafjarðar með tengingum
við öll kauptún og kaupstaði á
Norðurlandi verði gerðir þann-
ig úr garði, að þeir verði vel
færir svo til allt árið. Verði sér-
staks fjármagns atlað til þess-
ara framkvæmda, sbr. Vest-
fjarða- og Austurlandsáætlanir.
Á sama tíma verði framkvæmd-
um haldið áfram innan byggða
skv. vegaáætlun.
Fundurinn telur, að endur-
skoða verði reglur um snjó-
mokstur og þá verði eins mikið
tillit tekið til hins félagslega
kostnaðar við það að vegur lok
ast og samgöngur falla niður af
þeim sökum og hiris beina kostn
aðar við snjómoksturinn.
Fundurinn telur, að endur-
skoða þurfi lög og reglugerð um
þjóðvegi í þéttbýh.“
„Fundurinn telur, að nauð-
synlegt sé, að stuðlað verði að
því, að beinn innflutningur til
helztu hafna á Norðurlandi geti
aukizt frá því sem nú er. Finnig
verði strandferðir að og frá
Reykjavík reglulegri en hingað
til og komið verði á strandferð-
um smærra skips eða skipa út
frá Akureyri. Þá telur fundur-
inn, að afla verði fjár til end-
urbóta á aðstöðu til vörumót-
töku og vöruafgre'ðslu á helztu
höfnum fjórðungsins. Einnig
verði hafnargjöld endurskoðuð
og samræmd bannig að þau
verði ekki hindrun eðlilegrar
þróunar flutninga á sjó.
Gerð verði áætlun um al-
mennar endurbætur á vöru- og
fiskihöfnum í fjórðungnum, sem
verði liður í srmgönguáætiun
fyrir Norðurland.
Þá felur fundurinn frkvstj.
FSN að efna til sérstaks fundar
um málefni norðlenzkra hafna.“
MÐDMSm
’SÍMI S
* SPIJRNIIMG VIKUIMNAR
HVERNIG LÍZT ÞÉR Á STJÓRNARMYNDUN
VINSTRI FLOKICANNA?
Bjarni
BJARNI EINARSSON BÆJARSTJÓRI:
Þessi ríkisstjórn, sem nú hefur tekiS við
viildum, mun vafalaust taka á málunum á ann-
an hátt en fráfarandi stjórn gerði. Sjálfsagt
verða skiptar skoðanir um gerðir hennar, en
við skulum vona, landsins vegna, að vel takizt
til. Þriggja flokka stjórn hefur aldrei setið lengi
að völdum hérlendis og vil ég því eltki spá
neinu um, hve lengi stjórnin mun fara með
völd. Skoðanamunur er á milli flokkanna í
ýmsum ntálum, og hygg ég að utanrikismálin
geti orðið einna erfiðust viðureignar.
GUÐMUNDUR HALLGRÍMSSON
LYFJAFRÆÐNGUR:
Ég vona, að þetta verði hundadagastjórn og
sitji ekki lengur en Jörundur gerði forðum daga.
Guðmundur
KRISTjAN FRÁ ÐJÚPALÆK:
Mér lízt sæmilega á stjórnarmyndunina og
set alft mitt traust á guðdómlega handleiðslu
fyrir stjórnarinnar hönd. Engu vil ég spá um,
hvað hún verður lengi við völd. Örlögin veit
enginn fyrirfram.
Kristján
VALUR ARNÞÓRSSON KAUPFÉLAGSSTJÓRI:
Ég fagna því að búið er að mynda meiri-
hlutastjórn og ég álít, að stjórnarmyndunin sé
í samræmi við úrslit kosninganna. Að öðru
Ieyti get ég lílið sagt um stjórnina fyrr en mál-
efnasamningurinn hefur verið birtur og að
sjálfsögðu verður stjórnin dæmd af sínum
verkum. Hvort stjórnin situr út kjörtímabilið,
fer eftir því, hvernig til tekst, t. d. í landhelg-
ismálinu og samningum við launþegasamtökin.
Valur
Þorvaldur
ÞORVALDUR JÓNSSON FULLTRÚI:
Mér lízt á hana eins og efni stóðu til. Ég
hef ekki trú á að þessi stjórn sitji Iengi að
völdum og byggi ég það á fyrri reynslu vinstri
stjórnar. Flestir sem ég hef hitt að máli, eru
vantrúaðir á að stjórnin sitji út kjörtímabilið.
Ef herverndarsamningnum verður sagt upp,
má búast við að úrsögn úr NATO fylgi á eftir.
Gerizt fastir
áskrifendur
Islendingur-ísafold er slærsla og fjölbreyttasla blað,
sem gefið er út utan Reykjavíkur.
Þeir, sem óska að fá blaðið sent áfram, eru vinsamleg-
ast beðnir að hafa samband við afgreiðslu blaðsins. —
SÍMI 21500.
Ískmlmifur
-ísuMd
ICaupvangsstræti 4.