Faxi - 01.06.1949, Page 4
4
F A X I
deildum, þar af voru 2 unglingadeildir
með 56 börnum. Til samanburðar skal
þess.getið, að í fyrra voru börnin 267, þar
af voru 16 í unglingadeild. A þessu má
sjá, að börnunum fjölgar ört, og eru horf-
ur á, að á næsta vetri verði börnin nok'kuð
á 4. 'hundrað í 13 deildum, þótt nokkrum
börnum á .15. ári verði ef til vill veitt und-
artþága fná skólaskyldu, sbr. tilkynningu,
sem skólanefnd sendi foreldrum þessara
■barna 8. maí s. 1. og birt er á öðrum stað í
blaðinu.
Það verður miklum örðugleikum bund-
ið, að koma þcssum miikla fjölda fyrir í
þeim húsakynnum, sem skólinn hefur til
umráða og eru fyrir löngu orðin ófull-
nægjandi, svo ekki sé meira sagt. Væntan-
lega verður mikið kapp lagt á að koma
htnni nýju skólabyggingu upp sem allra
fyrst, enda þo'lir það enga ’bið, ef Kefla-
vík á ekki að dragast langt aftur úr flest-
um öðrum byggðarlögum í því að full-
nægja þeirri 'höfuðskyldu að sjá börnum
sínum fyrir löglxiðinni fræðslu.
Sundnámskeið stendur nú yifir í sund-
lauginni 'hér fyrir börn úr 4. bekk barna-
skólans og eldri, sem ekki hafa lokið sund-
prófi. Börn, sem voru í 5. bekk í vetur
taka væntanlega barnapróf á næsta vori,
og þurfa þau því að ljúka sundprófi nú í
vor, því að annars fú þau ekki barnaprófs-
skírteini sín við skólaslit næsta vor.
Sundnámskeið sem þetta hafa farið
fram á 'hverju vori nú í nokkur ár, og það
hefur viljað við brenna, að börn, sem hafa
verið boðuð á þessi námskeið, hafa ekki
komið, sökum þess að þau hafa verið send
í sveit strax að skóla loknum. Það er auð-
vítað mjög æskilegt, að börnin dvelji í
sveit yfir sumarmánuðina, en ég tel það
mjög vanhugsað að senda þau þangað,
fyrr en þau hafa lokið sínu sundnámi á
hverju vori. Sundið er 'holl, skemmtileg
og nytsöm íþrótt, og það er æskilegast, að
börnin læri að synda sem fyrst, því ekki
er gott að segja, hvenær þau þurfa á sund-
kunnáttu að halda til að bjarga sér eða
öðrum frá drukknun. Það ætti því ekki að
þurfa að beita refsiákvæðum laga til að
fá foreldra til að sjá svo um, að börn þeirra
læri að synda á þeim tíma, sem ætlast er
til, að þau geri það. En þótt ótrúleg sé,
þá eru nokkrir unglingar hér í Keflavík,
som 'hafa ekki enn lokið sundprófi, og
'hafa því ek'ki lókið sínu skyldunámi, þrátt
fyrir margítrekaðar áminningar. Ég vil
nú hér með skora á þessa unglinga, að
ljúka sundprófi sem állra fyrst, jaifnvel þó
þeir þurii að taka sér frí frá störfum um
stundarsakir til þess að læra.
Það er langt frá því, að það þurfi að
eggja öll börnin til þess að læra að synda.
Yfirleitt stunda þau sundnámið af kappi
og sum vilja fá að fara í laugina tvisvar og
jafnvel þrisvar á dag.
Hermann Eiríksson.
Barnaskólinn í Grindavík.
I skólanum voru 60 börn í vetur, en
auk þeirra voru 13 börn í yngri deild
unglingaskólans.
Nemendum var skipt í fjórar deildir
og höfðu a'llar deildir jafnlangan kennslu-
tíma, 8 mán.
Prófi 12 ára barna, þ. e. barnaprófi luku
12 nemendur. Hæstu einkunn sem var
8,1 hlaut Gróa Engilbertsdóttir Arnar-
hvoli. Þrettán ára börn, sem iuhu barna-
prófi s. 1. vor tóku nú árspróf upp í 2.
bekk unglingaskólans. Eiga þau eftir einn
vetur í skóla þar til skyldunámi þeirra
lýkur. Hæstu einkunn í þessari deild hlauL
Eiríkur Alexandersson frá Sjávarhólum,
fékk 9 í aðaleinkunn. Fékk hann því
fyrstu verðlaun úr Sæmundarsjóði.
Önnur verðlaun úr sjóðnum h'laut Rafn-
ar A. Sigurðsson frá Grund, fekk hann í
aðáleinkunn 8,3.
Dr. Bjarni heitinn Sæmundsson frá Járn-
gerðarstöðum stofnaði Sæmundarsjóð til
minningar um föður sinn og ákvað, að
ár hvert skyidu tvenn verðlaun veitt úr
sjóðnum til þeirra tveggja fullnaðarprófs-
barna, sem hæst próf tækju við Barna-
skóla Grindavíkur. En verðlaunin eru kr.
10,00 i peningum og heiðursskjal undir-
ritað af skólanefnd.
Eins og að undanförnu veitti Kvenfélag
firindavíkur ein verðlaun fyrir ‘beztu
handavinnu fullnaðarprófstelpna, er það
fingurbjörg úr silfri.
Verðlaunin hlaut nú Valgerður Jóns-
dóttir frá Einlandi með 9,2 í handavinnu.
Drengjum var nú í vetur einnig kennd
handavinna og er það í fyrsta skipti, sem
allir nemendur skólans njóta kennslu í
þeirri grein. Yngstu nemendunum, bæði
drengjum og telpum var kennt smávegis
föndur, en þeim elztu saum, prjón og
smíðar.
Söngkennsla og leikfimi fór einnig fram
samkvæmt námskrá.
Fyrsta sumardag héldu skólabörnin
skemmtun fyrir álmenning, sýndu leik-
•ritið „Börn Fjallkonunnar" eftir Svein
Gunnlaugsson. Skemmtu einnig með upp-
iestri, söng o. fl. Skemmtunin var einu
sinni endurtekin og gerður góður rómur
að.
Sú breyting varð á kennaraliði skólans,
að í stað Sigrúnar Guðmundsdóttur sem
varð að láta af störfum s. I. haust vegna
veikinda, 'kenndi Asrún Kristmundsdóttir
frá Haga á Barðaströnd.
Sr. Jón Á. Sigurðsson kenndi dönsku í
unglingadei'ld.
Skólanum var slitið 14. maí og lauk þar
með fyrsta kennsluárinu, sem hægt var
að byrja og enda kennslu á réttum tíma í
hinum nýja barnaskóla.
Einar Kr. Einarsson.
Barnaskólinn í Höfnum.
I vetur voru í skólanum 16 börn í tveim-
ur deildum. Ur eldri deild útskrifuðust 3
fullnaðarprófsbörn og hlutu þau einkunn-
ir þannig:
Eldey Vilhjálmsdóttir, Merkinesi, 9,4.
Garðar Már Vilhjálmsson 9,1.
Svavar Þorsteinsson 9.
Kennari skólans var i vetur eins og í
fyrra fr. Þórhildur Valdimarsdóttir, og var
kennt í ná'lega 614 mánuð.
(Fyrrverandi skólastj., Jón Jónsson, gaf
þessar upplýsingar, þar sem ekki náðist
til kennarans).
Barnaskóli Voga og Vatnsleysustrandar.
Skólinn starfaði í 2 deildum með 28
nemendum. I eldri deildinni voru 13 börn
en 15 í þeirri yngri. Tvö efstu börnin við
skólann, sitt úr 'hvorri dei'ld, voru þau
Kristján Sæmundsson, sem tók fullnaðar-
próf ,en vantar enn sundprófið. Hlaut
hann einkunnina 9,1, og Þórdís Sigurjóns-
dóttir úr yngri deild, 9 ára með 7 í aðal-
einkunn.
Kennarar við skólann voru þeir sömu
og í fyrra, þau Viktoría Guðmundsdóttir,
sem er skólastjóri og Jón H. Kristjánsson
kennari. Heilsufar var sæmilegt í vetur,
en það sem hamlaði skólastarfinu mest var
hið erfiða tíðarfar, því vegna staðhátta, er
börnunum ekið í bíl daglega að og frá
skóla og annast Jón kennari þá flutninga
á skólatímanum, en í vetur var þetta starf
miklum erfiðleikum bundið, vegna ku'lda
og snjóa.
(Ungfrú Ingibjörg Erlendsdóttir, kenn-
ari, sem var prófdómari við skólann í vor,