Faxi

Árgangur

Faxi - 01.06.1949, Blaðsíða 9

Faxi - 01.06.1949, Blaðsíða 9
F A X I 9 Dánarminning: Helgi Guðmundsson, læknir Hann andaðist á Vífilsstaðahæli 29. maí. Þ«gar andlátsfregnin barst til fóLksins á Suðurnesjum vöknuðu minningarnar um læ'kninn og manninn, og með þeim voru þakklæti og söknuður. Helgi læknir var fæddur að Bergstöðum í Svartárdal í Austur Húnavantssýslu 3. ágúst 1891. Foreldrar hans voru prests- 'hjónin Guðmundur Helgason og Guð- rún Jóhanna Jóhannesdóttir. Séra Guð- mundur andaðist á bezta aldri árið 1895, en eftir var ekkjan með fjóra syni á barns- aldri. Þeir ólust upp með móður sinni, fyrst fyrir norðan en síðar í Reykjavík og fengu að njóta þeirrar menntunar er þeir 'ihelzt vi'ldu kjósa sér. Helgi gckk í Mennta- skólann í Reykjavik og lauk þar stúdents- prófi árið 1912. Hóf hann síðan nám í læknisfræði við Kaupmanna'hafnarhá- skóla, en lauk námi við Háskóla Islands með kandidatsprófi árið 1919. Þá gjörðist hann í eitt ár aðstoðarlæknir í Vopna- fjarðarhéraði en síðan var bann læknir í Keflavík, þar til 'hann vegna sjúkleika neyddist til að hætta læ’knisstörfum. Helgi Guðmundsson vann mi'kið og göf- ugt starf um Suðurnes. Hann var góður 'læknir og mörg læknisverk vann hann af mikilli snil'ld. Fylgdist hann vel með ný- unguni í sinni fræðigrein og fagnaði inni- lega hverjum nýjum sigri yfir sjú'kdómum og þrautum. Minningin lifir um lækninn, eins og mikið slitinn forngrip. Er ákaflega nauðsynlegt að menn hafi það í huga, að fara vel með bækurnar, sem þeir fá að láni, en ekki eins og að þeir verði þeir sið- ustu sem fari um þær 'höndum og hafi þeirra not“. Eitthvað fleira, tll að taka fram ? „Já vissulega margt fleira, en ég vil að síðustu geta þess, að bókasafninu mun ætl- aður staður í framtíðinni í nýja barnaskól- anum, og þar ætti aðstaðan að 'verða betri, enda er þess full þörf“.---- Af því sem 'hér hefur verið sagt, er það ljóst, að Lestratfélag Keflavíkur er stofn- un sem hlynna þarf að og auka við. Enda sem 'hjálpaði sjúkum til heilsu og starfa og vakti vonir og lífstrú ‘hjá þeim sem voru áhyggjufullir og kvíðandi. Helgi læknir var glaður í viðmóti, alúð- legur og einlægur. I vinahóp var hann hrókur al'ls fagnaðar, og skemmtilegur svo að af bar. Hann þek'kti erfiðleika og bar- áttu, ástvinamissi og loks mörg og löng sjúkdómsár. En ekkert megnaði að buga glaðlyndi 'hans. Það var 'hið sama til síð- ustu stundar. — Og ekki gleymist hversu óeigingjarn maður hann var. Hann vann aldrei eingöngu sjálfum sér, hann leitaði ekki síns eigin, heldur þess, sem annarra var. Gleðin yfir því að lækna og hjálpa var aðalatriðið, en launin voru aukaatriði. Helgi Guðmundsson var kvæntur Huldu Matthíasdóttur, Olafssonar frá Haukadal, mi'ki'lhæfri konu, sem var önnur hönd manns síns við læknisstörf hans, vegna lærdóms SÍns og hæfileika sem hjúkrunar- kona. Þeim hjónum fæddust tíu börn og eru sjö á li.fi, þrjár dætur og fjórir synir. I foreldrahúsum eru Sigurlaug, Guðmund- ur og Haukur, en kvænt og búsett eru Guðrún Jóhanna, María, Matthías og Olaf- ur. Oll njóta þau syst'kinin og móðir þeirra vinsælda vegna mannkosta, háttprýði og góðvildar. Helgi Guðmundsson var jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju 13. maí að viðstöddu fjöl- menni. þótt skilyrði þess til að vera menningar- auki fyrir ‘byggðarlagið 'hafi lengst af verið lítil hvað snertir aðbúð og stærð, hefur það þó án efa verið til mikils gagns. Þegar að því kemur að það verði 'flutt úr sínum litlu skápum í barnaskólanum, verður að setja það á stað, þar sem bæði geta farið fram bókalán út til heimilanna, og lán í lestrarsal handa gestum safnsins, sem vilja nota eitthvað af tómstundum sínum til að njóta góðra bóka í góðu næði við smekhlega aðbúð. Með þökk fyrir upplýsingarnar, Arin- björn. V. G. Góðum og göfugum lækni var flutt þakklæti frá fjölda mörgum, lækni sem öllum vildi vel og lagði á sig rnikið erfiði vegna annarra og fekk laun sín í inni- legum og hlýjum 'handtökum þeirra er hann flutti ljós og gleði. Blessuð veri minning hans. Eiríkur Brynjólfsson. VorlióS Það ljómar, það leiftrar, það slær. Nú leikur hver angandi blær, og grösin á grundunum hjala við glitelfur blómskrýddra dala og hlíð'arnar smásveinar smala. Þú 'heillar mig himneska vor. Eghrifnæmur feta í þín spor. Þá stillirðu gígjunnar strengi, er straumvötnin efla sitt gengi, ogtfrjóblærinn faðmar mitt engi. Eg hlusta á hörpunnar slátt. Ég horfi á gróandans mátt, er lífskra'ftar leysast úr dróma og ljúfustu tónbylgjur óma í sólmagnsins seiðandi ljóma. Ó, vordagsins vörfagra sól, er vermir hvert smáfræ, er kól, og leysir með lífgjafans höndum 'hinn lang'þjáða úr kúgarans böndum. Flyt mig að friðarins löndum. Aðalsteinn Gíslason.

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.