Faxi

Árgangur

Faxi - 01.06.1949, Blaðsíða 12

Faxi - 01.06.1949, Blaðsíða 12
12 F A X I Heimili og skóli Margt hefir verið rætt og ritað um skólamál okkar Islenclinga og heppilegt fyrir komulag þeirra, enda eru þau ung að árum og því á lítilli hagnýtri reynzlu að byggja, miðað við það sem þekkist með frændþjóðum okkar. Þó skortir hér ekki áhuga í þessum efnum og má segja, að ótrúlega mikið hafi áunnist, þótt enn séu þar mörg verkefni óleyst. Eitt af því nauðsynlegasta, til þess að skólastarfið blessist og skili góðum árangri, er vinsamlegt samstarf milli for- eldra og kennara, byggt á gagnkvæmum skilningi á þörfum og getu barnanna. I þessu skyni hafa nokkrir skólar komið á fundarhöldum með foreldrum barnanna, þar sem vandamálin eru rædd. Hefir þetta þótt gefast vel og orðið til þess að auka velvild og virðingu milli þessara aðila, og er þess sízt vanþörf nú, á þeim óróa og umrótatímum, sem við nú lifum á. Þá hefir í sama skyni fyrir nokkrum árum verið hafin útgáfa tímaritsins Heimili og skóli, sem er gefið út á Akuheyri, en sem fram að þessu hefir verið í allt of fárra höndum hér, þó það víðsvegar annarsstað- ar á landinu hafi náð mikilli útbreiðslu. I ti'mariti þessu eru vandamál uppeldis- ins rædd af foreldrum og kennurum og er ritið þannig, tengiliður milli skóla og heimila og því ekki ómerkur þáttur í uppeldisstarfseminni, sem þó því aðeins kemur að tilætluðum notum, að ritið kom- ist inn á hvert það heimili í landinu, sem um uppeldismál annast og lætur sig nokkru skipta skóla — og þroskaferil barnanna. Með leyfi útgefenda birti ég hér kafla úr áramótahugleiðingu tímaritsins frá seinustu áramótum. Skýrir þessi hugvekja tilgang og markmið þessa rits, enda bein- línis skrifuð til þess að vekja athyggli á Heimili og skóla. þar segir m. a.: „Eins og kunnugt er, er ritið aðallega helgað uppeldis- og skólamálum. Leikur það vart á tveim tungum, að þau mál séu ein hin mikilvægustu og um leið hin vandasömustu til úrlausnar. Það ættu því allir að geta verið sammála um, að fræðsla og umræður um þau mál séu all-þýðingar- mikil og geti haft veruleg áhrif á þau til heppilegra úrlausna. Heimili og skóli er eina tímaritið hér á landi, sem stofnað var til stuðnings og umræðna um upp- eldismál þjóðarinnar. Hefir það á undan- förnum árum flutt margar athyglisverðar greinar um þau mál, eftir ýmsa góða menn, bæði innlenda og erlenda. Enn- fremur hefur í ritinu mjög oft verið rætt um samstarf þeirra stofnana í landinu, sem uppeldi barna og unglinga aðallega hvílir á, en það eru heimilin og skólarnir. Munið ritið framvegis, sem hingað til, verða vettvangur umræðna um þessi vandasömu en þýðingarmiklu mál og heit- ir á alla þá karla og konur, sem áhuga hafa á uppeldismálum, að leggja því lið, með því meðal annars, að senda því efni til birtingar og vinna að útbreiðslu þess. Heimili og skóli hefir á undanförnum árum áunnið sér vinsældir kaupenda, því að margir þeirra hafa látið svo ummælt, að það þyrfti að komast inn á hvert heim- ili í landinu. Er það og von og ósk útgef- enda, að takast mætti að komast sem næst því marki. Ritið er helgað þeim málefn- um, sem fæstir, sem til vits og ára komast, geta sneitt hjá að hugsa um. Verð ritsins hefur verið ákveðið svo lágt, að ekkert tímarit, sem út er gefið í landinu, mun ódýrara, aðeins 10 kr. árg., sem er 6 hefti, 24 bls. hvert. Auk þess fá nýir kaupendur síðasta árgang ókeypis, meðan til er. Þá fæst ritið keypt frá byrjun, nema 1. heftið, sem nú er uppselt. Þegar Heimili og skóli hóf göngu síns, voru það einkum barnakennarar, sem unnu að útbreiðslu þess. Svo er og enn, þótt margir fleiri hafi reynzt þar góðir og tryggir liðsmenn. Eru það vinsamleg og eindregin tilmæli útgefenda til kenn- ara og annarra unnenda ritsins, að þeir hefji nú á ný sókn að útbreiðslu þess. Hafa sumir kennarar í bæjum og þorp- um haft þá aðferð að senda sýnisblöð heim á heimilin með skólabörnum, ásamt spurningu um, hvort menn vildu gerast áskrifendur, eða hafið söfnun á annan hátt. Má geta þess, að 12 ára drengur í Barnaskóla Akureyrar safnaði á sl. vori, á fáum dögurn, 50 nýjum kaupendum í bænum. Annaðist hann einnig innheimtu á verði ritsins. Eins og oft vill verða, greiðast blaðagjöld misjafnlega. Þó er ekki svo mjög undan því að kvarta með Heimili og skóla, því að langflestir kaupendur og útsölumenn greiða ritið skilvíslega. Nokkrir eru þeir þó, sem ekki hafa gert nein skil fyrir síðasta ár, og sumir jafnvel ekki fyrir 2—3 ár. Eru það vinsamleg tilmæli til þessara manna, að þeir geri nú skil á verði ritsins hið allra fyrsta. Verð ritsins er svo lágt,- að ekkert má tapast af verði þess, eigi það að geta borið sig fjárhags- lega. Utsölu- og innheimtumönnum eru greidd 20% af verði ritsins í sölu- og innheimtulaun. Skal þess þó getið, að nokkrir hafa aldrei tekið innheimtulaun og eru þeim hér með færða-r beztu þakkir fyrir velvild þeirra. Kennarar og foreldrar! Heimili og skóli vill eftir beztu getu miðla fræðslu um reynslu og þekkingu góðra karla og kvenna á vandamálum uppeldisins. Það vill einnig leita til lesenda sinna um ráð og leiðir til úrbóta á ýmsu, sem betur þyrfti að fara úr hendi um uppeldi og skólastörf. Sökum þess eru þessar línur ritaðar og sökum þessa tilgangs v.ilja að- standendur ritsins auka útbreiðslu þess og heita á yður til góðrar liðveizlu." Heimili og skóli kostar 10 krónur og kemur út 6 sinnum á ári, sem má teljast ódýrt miðað við bókaverð nú og við þá miklu þýðingu sem það gæti haft fyrir skólastarfið, ef ritið yrði almenningseign. Eg hefi áður hér í blaðinu bent lesendum á Heimili og skóla, enda eru nú margir orðnir kaupendur ritsins hér í Keflavík, svo hefir kka verið tekinn upp sá háttur áð láta börnin kynna ritið á heimilum sín- um, með því að taka það heim með sér. ‘Hefir þessi kynning gefið góða raun, og er nú fjöldi foreldra að gerast áskrifendur og fleiri munu fara á eftir, er menn kynn- ast þessu ágæta tímariti, því það hefi ég eftir foreldrum hér, sem kaupa Heimili og skóla, að þeif vildu mjög ógjarnan vera án þess og þannig hygg ég verði um fleiri sem gerast- áskrifendur, enda er eins og ég gat hér að framan nauðsynlegt að Heimili og skóli komist inn á hvert ís- lenzkt heimili, ef ritið á að geta gegnt sínu merkilega hlutverki, að vera tengiliður til

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.