Faxi

Árgangur

Faxi - 01.06.1949, Blaðsíða 13

Faxi - 01.06.1949, Blaðsíða 13
F A X I 13 Snorrastaðatjarnir suðaustan við Háabjalla og Vogaheiði. (Ljósm.: Egill Hallgrimsson). Suðurnes — Landkynning Undir ‘þessari yfirskrift skrifaði Egill Hallgrímsson, kennari, grein í Lesbók Morgunblaðsins 29. ágúst í fyrra. Þar gerir hann glögga grein fyrir því, hvernig megi rækta 'hér skóga á Suður- nesjum, ef almennur áhugi vaknar um það mál. Einnig bendir hann réttilega á hve mikla þýðingu það 'hafi fyrir landkynningu okk- ar að Suðurnesin og þó einkum heiðin um'hverfis flugvöllinn verði prýdd gróðri — hann tekur það réttilega fram að eng- an stað á öllu landinu heimsæki jafn margir útlendingar sem Keflavíkurflug- völl og að hann sé landkynningarmiðstöð Islands. Um það ætla ég ekki að fara tfleiri orðum að sinni en hef vilja til að ræða frekar um hitt atriðið — hvort takast megi að gera skógarlundi hér á Suður- nesjum. Um framtíðar skóga á Islandi hefur eflingar s'kólahaldi og uppeldi barnanna. — Ég vil svo að lokum geta þess, að Her- mann Eiríksson skólastjóri er útsölumaður tímaritsins hér og mun hann góðfúslega taka á móti nýjum áskrifendum, sem b> um leið fá seinasta árgang tímaritsins ó- keypis. H. Th. B. margt verið rætt og ritað að undanförnu og munu rannsóknir og framkvæmdir Skógræktar ríkisins vafalaust eiga mikinn þátt í því að vekja þann almenna áhuga, sem nú hefur gripið um sig og sem vænta rná að endist til nokkurra framkvæmda í áttina að markinu að hylja og skrýða landið. Margir hafa ljáð málefninu gott lið með ýmsu móti, svo sem með stór gjöfurn og góðum tillögum. Veglegasta gjöfin sem Skógræktinni hef- ur borizt er Vi milljónar, gefið af Jóni Guðmundssyni frá Þingvöllum, og ein merkilegasta tillaga málinu til framdráttar er frá 'bróður hans Magnúsi Guðmynds- syni, en 'hann bar ifram á Alþýðusam- 'bandsþingi tillögu þess efnis að öllum börnum yrði gert að skyldu að hafa lokið 'við að planta út 500 trjáplöntum fyrir 16 ára aldur, undir umsjón kennara eða ann- ars fagmanns. Þessir bræður eru Hreppamenn að ætt, en eiga systkini og margt ættmenna hér á Suðurnesjum. Ef nú ættmenn þeirra og aðrir íbúar þessa skaga — hrjóstrugasta og óbyggilegasta héraðs þessa lands — hefðu 'hugsjónamátt og samtakavilja er enginn vaci á. að hægt er að valda gjör- byltingu á útliti Skagans og ekki nóg með það, heldur yrði hér lagt í verulega vara- sjóði fyrir næstu kynslóðir. Með rannsókn á veðurfari og öðrum skilyrðum 'hefur náðst sú niðurstaða að ýmsar nytjaskógar tegundir geta þrifist hér með góðum árangri. Félag Suðurnesjamanna í Reykjavík, hefur nú fengið land til skógræktar inn við Snorrastaðatjarnir. Þar er einn feg- ursti blettur Skagans og auk þess skjól- gott þar sem Hái'bjalli skýlir fyrir norðan næðingunum. Þetta er spor í rétta átt. En betur má ef duga skal. Oll byggðarlög Skagans ættu að bindast félagsböndum um skógrækt og landgræðslu á Reykjanesskag- anum. Til þess þarf almenna og kröftuga baráttu. Suðurnesjamenn! — Við skulum muna orð Egils Hallgrímssonar úr áður nefndri grein, en hann segir: „Þegar nú almennur áhugi er vaknaður fyrir skógrækt í hverri sýslu á landinu, eiga þá Suðurnesjamenn að sitja hjá og'horfa á? Ég trúi ekki, að þeir uni því til lengdar. En því fyrr sem þeir leggja upp í þá ferð að klæða Suðurnes, þeim mun fyrr öðlast þeir trú á gróðurmátt þeirra. Vilji Suð- urnesjamenn ekki verða flestum lands- mönnum síðri í baráttunni fyrir því að klæða landið skógi, verða þeir að hefjast handa“. J. T. Fyrirspurn til Faxa. Um mánaðamótin apríl og maí s. 1. var barnaskóla Keflavíkur sagt upp og börnun- um afhentar sínar einkunnir eins og að vanda lætur. Þá var það líka að efztu börn- um hvers bekkjar skólans voru afhentar til- kynningar um verðlaun fyrir ástundun og góða hegðun frá Rotarýklúbb Keflavíkur. Ennþá eru verðlaunin ekki komin og tilkynn- ingin ber það ekki með sér hver þau verða. Hver voru verðlaunin og hvenær koma þau? Getur Faxi ekki upplýst mig um þetta? ?? Ég hefi heyrt að afhent hafi verið heiðurs- skjöl við skólauppsögn og býst ég við að þau bera að telja sem verðlaun að þessu sinni — hinsvegar vissi ég til að bækur voru veittar sem verðlaun í fyrra. J. T. Togarinn Keflvíkingur kom hér fyrir skömmu með fullar lestar og mikið af hausuðum þorski á dekki. Hér var landað dekklestinni og selt i hraðfrystihús, en hitt sigldi hann með til Þýzkalands. Hann hafði verið fulla viku á veiðum og því rót fiskað. Það sem hann seldi í Þýzkalandi munu hafa verið um 294 tonn. Allt starfslið Netja- gerðarinnar sigldi með honum. Nokkrir fleiri farþegar fóru með honum.

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.