Faxi - 01.06.1949, Page 11
F A X I
11
Nætur- og helgidagalæknar:
4.—11. jún. Karl G. Magnússon.
11.—18. júní. Pétur Thoroddsen.
18.—25. júni. Björn Sigurðsson.
25. júní til 2. júlí. Karl G. Magnússon.
2. —9. júlí Pétur Thoroddsen.
9.—16. júlí. Björn Sigurðsson.
16.—23. júlí. Karl G. Magnússon.
23.—30. júlí. Pétur Thoroddsen.
3. júlí til 6. ágúst. Björn Sigurðsson.
6.—13. ágúst. Karl G. Magnússon.
13.—20. ágúst. Pétur Thoroddsen.
20.—27. ágúst. Björn Sigurðsson.
íbúar Keflavíkurkaupstaðar í október 1948.
Konur........... 1038
Karlar.......... 1029
Samtals 2067
Þar af fermdir, fæddir 1935 og fyrr 1379.
Frá höfninni
Línubátar eru nú alveg hættir veiðum.
Nokkrir þeirra eru nú farnir á trollveiðar
en flestir þeirra hafa ekkert gert síðan. Það
er verið að gera þá- hreina, lagfæra það sem
aflaga hefur farið á vertíðinni og búa þá
undir næsta úthald, sem væntanlega verður
sildveiðin fyrir Norðurlandi í sumar. Þó kann
hinn válegi bruni í Netaverkstæði B. B. í
Reykjavík, að orka nokkru um og draga úr
síldarsókninni, ásamt mjög lélegri veiði und-
anfarinna sumra sem deyft hefur vonir manna
um fljót fenginn auð þar nyrðra.
Ovenju mikið
er nú gert út á dragnótaveiðar, en ekki
hefur veiðin verið góð, það sem af er. Lúðu-
veiði hefur líka verið reynd en ekki gefist
vel ,enda hefur veðurfar verið vetrarlegt og
ógæftasamt til þessa.
Tvcir togarar
hafa landað hér afla sínum i mai. Þeir voru
báðir með fullfermi, en sökum lélegs mark-
aðs í Englandi og landburðar af fiski á þýzk-
an, markað, þótti vafasamt að senda þá í áölu-
ferð. Hér er aftur á móti gott verð fyrir fisk-
inn til frekari verkunar, enda sagt að saltfisk-
ur sé t. d. mjög eftirsóttur nú. Það hefur því
verið brugðið að því ráði, að salta sem mest
af þorskinum, en nokkuð verið hraðfryst.
Karvel Ögmundsson, út{ferðarmaður í Ytri-
Njarðvík, hefur fengið fiskinn, hann hefur svo
úthlutað honum nokkuð til vinnslustöðva í
Keflavík og Garði, en mest megnis er þó
saltað eða fryst hjá vinnustöðvum Karvels
sjálfs. Togarar þeir er hér um ræðir eru
Skallagrímur úr Reykjavík og Röðull frá
Hafnarfirði.
Aðalfundur Kaupfélags Suðurnesja
var haldinn í Alþýðuhúsinu í Keflavák
sunnudaginn 29. þ. m. Fundinn sátu 34 full-
trúar frá 4 deildum félagsins, ásamt stjórn,
endurskoðendum og fleiri félagsmönnum.
Framkvæmdastjóri gaf skýrslu um rakstur
félagsins á s. 1. ári. Heildar vörusala félagsins
nam kr. 6.080.000,00, þar með talin sala á kol-
um og salti. Rekstrarhalli ársins nam kr.
78.000,00. I félagið gengu á árinu 150 manns,
og er félagatalan nú 785.
Úr stjórn átti að ganga Ragnar Guðleifsson
sem aðalmaður og Valdimar Guðjónsson sem
varamaður, en voru báðir endurkjömir, sömu-
leiðis endurskoðendur þeir Valtýr Guðjóns-
son og Sigurbjörn Ketilsson. Fulltrúar á að-
alfund SIS voru kjörnir Gunnar Sveinsson
og Ragnar Guðlaugsson.
Stjórn félagsins skipa nú: Guðni Magnús-
son form., Hallgrímur Th. Björnsson, Steindór
Pétursson, Björn Hallgrímsson og Ragnar
Guðleifsson.
Ennþá ganga kindur lausar
og óhindrað um götur og lóðir, jafnvel hvort
heldur þær eru girtar eða ekki. Kindur þær,
sem alist hafa upp og alið allan sinn aldur
hér í margmenninu eru furðu áleitnar og
ötular við að komast það sem þær vilja. Síð-
asta og furðulegasta dæmið um það er um
ána, sem snuðraði nokkurn tíma í kringum
girðingu eins bezt hirta og rammgirtasta
garðs Keflavíkur, en sá hér hvergi fært yfir.
Þá gerði hún sér lítið fyrir, geklc upp á for-
stofutröppur og vatt sér þaðan inn á blettinn.
Vel gert!! Annars er ég þeirrar skoðunar að
fjáreign eigi alls ekki tilverurétt hér með
þeim hætti sem hún er nú rekin. Sömu skoð-
unar var ég með hrossin. Nú hefur verið tekin
rögg á sig og þau fjarlægð héðan af götunum
og er það vel, einkum af öryggisástæðum og
með velferð skepnanna fyrir augum. Eg teldi
heillaráð að láta verða af framkvæmdum við
að fjarlægja féð einnig og liggja þar svipaðar
ástæður til grundvallar.
Eftirfarandi erindi
er ort af húnvetnskum bónda í nýafstöðn-
um vetrarhörkum og lýsir það vel hug hans
til hins óvenju kalda tíðarfars.
H. Th. B.
Norðri kóngur nú að völdum situr,
nístir hvert eitt líf í sinni slóð.
Hjúpur hans er frosta og fanna vétur,
sem fælir burtu hverja heita glóð.
Ýlfra stráin undan norðanblænum,
úti fuglinn hnípinn bælir sig.
Valta fleyið velkist út á sænum,
vægð því enga gefur hafrótið.
Jónas Jónasson.
FAXB
Blaðstjórn skipa:
JÓN TÓMASSON,
HALLGR. TH. BJÖRNSSON,
VALTÝR GUÐJÓNSSON.
Blaðstjórn ber ábyrgð á blaðinu og
annast ritstjórn þess.
Gjaldkeri blaðsins:
GUÐNI MAGNÚSSON.
Afgreiðslumaður:
STEINDÓR PÉTURSSON.
Auglýsingastjóri:
BJÖRN PÉTURSSON.
Verð blaðsins í lausasölu kr. 3,00.
Faxi fæst í Bókabúð KRON, Reykja-
vík og verzlun Valdimars Long,
Hafnarfirði.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Kaup verkamanna í Keflavík og Njarð-
víkum í júní 1949.
(Vísitalan 300).
Almcnn vinna. (Grunnkaup kr. 2.80).
Dagvinna ........ kr. 8.40
Eftirvinna .......... — 12.60
Nætur- og helgidagavinna .. — 16.80
Vinna við loftþrýstitæki og hrærivélar.
(Grunnkaup 3.05).
Dagvinna ........ kr. 9.15
Eftirvinna .......... — 13.74
Nætur- og helgidagavinna .. — 18.30
Skipavinna o. fl. Kolavinna, upp- og
útskipun á sementi, hleðsla þess í pakk-
húsi og afhending þess.
(Grunnkaup 3.05).
Dagvinna ................... kr. 9.15
Eftirvinna .................— 13.74
Nætur- og helgidagavinna .. — 18.30
Önnur upp- og útskipun, fiskaðgerð í
salt.
(Grunnkaup 2.85).
Dagvinna.................... kr. 8.55
Eftirvinna .................— 12.83
Nætur- og helgidagavinna .. — 17.10
Vcrkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur.
Leiðrétting.
í síðasta tbl. Faxa, í greininni Keflavík,
stendur í kaflanum „Fyrstu verkefnin“: Hús
þetta er byggt úr steinsteypu og hefur til
skamms tíma verið eitt af rammlegustu hús-
um kaupstaðarins, en á að vera: „ . . . eitt af
reisulegustu húsum kaupstaðarins.