Faxi - 01.06.1949, Qupperneq 14
14
F A X I
Stúkan Vík
Strúkan Vík hélt síðasta fund sinn á
þessu vori mánudaginn 23. maí. Starf stúk-
unnar hefir verið fjörugt og fjölþætt í
vetur, þó að fundarsó'kn hafi stundum
verið minni en æskilegt væri.
Helzta verkefni stúkunnar auk bind-’
indismálsins 'hefir verið að a'fla fjár til
Sjómannastoifusjóðsins. Eru nú komnar í
þann sjóð rúml. 30 þús. kr. Munar þar
mest um ágóða af leiksýningum á Leyni-
mel 13. Agóðinn varð alls rúm 20 þús. kr.
Þar af voru lagðar í sérstakan sjóð til efl-
ingar leikstarfsemi stúkunnar rúmar 5
þús. kr. eða !4 hluti, en rúmar 15 þús. í
Sjómannastofusjóðinn. Leiknefnd stúk-
unnar hefir ynnt af höndum mikið þrek-
virki með því að koma þessurn sjónieik
upp, og leikendur hafa lagt á sig mikið
erfiði og tímafórnir, sem ástæða er til að
Mánaðarritið Faxi
Þið 'hafið starfað mörgum meir,
markið hitt án vafa.
Af verkum sínum vaxa þeir,
sem vinnufriðinn hafa.
Nú er hugsun heldur breytt,
happatökin vaxa.
Liðna tímans lögum eytt,
lítið bara í „Faxa“.
Hann kom með nýjar kenningar,
hvergi málum blandað.
„Faxi“ er málgagn menningar,
mjög er til hans vandað.
Ómennskunnar eyðist él,
auðnulindir vaxa.
Menningunni miðar vel,
munið að kaupa „Faxa“.
Þeir, sem troða leiðir lands,
lágt við setubýlið,
vinir mínir vitjið hans
í Verkamannaskýlið.
Hannes Jónsson.
frá Spákonufelli.
þakka, og þá ekki síst utanfélagsmönnun-
um Þórði Jónssyni og Ólafi Eggertssyni,
sem unnu að þessu af miklum áhuga og
ósérplægni. Má segja að Þórður hafi verið
óþreytandi að vinna að þessu, og starfið
hafi að verulegu leyti ihvílt á honum. Einn-
ig má nefna af utanfélagsmönnum Helga
S. Jónsson og Eyjólf Guðjónsson, sem að-
stoðuðu við leiksýningarnar vel og drengi-
lega. Sýnir þetta átak leiknefridar, að vel
er hægt að halda hér uppi leikstarfsemi
með góðum árangri ef réttilega er að far-
ið. Formaður leiknefndar er æðsti templar
stúkunnar Jón Tómasson, sem er eldheit-
ur hugsjónamaður og óþreytandi í starfi.
Aðrar tekjur Sjómannastofusjóðsins hafa
aðallega verið af skemmtifundum stúk-
unnar, sem eru þriðja' hvern fund. Enn-
fremur af hlutaveltum o. fl.
Slysavarnaifélagið hefir heitið 1000 kr.
bókagjö'f til sjómannastofunnar og kvenn-
félagið hefur heitið 1000 kr. gjöf. Þá hafa
nökkrir einstaklingar gefið sjóðnum gjafir.
Ahugi er mikill fyrir því að flýta fyrir
að hugsjónin um sjómannastofu verði að
veruleika, og hefir stúkan því ákveðið að
stofna til 'happdrættis til ágóða fyrir sjóð-
inn. Hefir verið sótt um innflutningsleyfi
fyrir heimilisvélum í þessu skyni.
Stúkan hefir haldið 22 fundi í vetur auk
skemmtifundanna, og auk þess farið í
heimsóknir til annarra stúkna, og verið
heimsótt af öðrum stúkum. Einkum hef-
ir tekist gott samstarf við st. Framför í
Garði og st. Daníelsher í Hafnarfirði.
Innan stúkunnar starfar ferðanefnd, og
efnir hún stundum til ferða í leikhúsið í
Reýkjavík og annarra skemmtiferða á
sumrin.
I sumar er ákveðið að hafa einn
skemmtifund í mánuði og auk þess efna
til einhverra skemmtiferða. Þá er ákveðið
að 'byrja í 'haust á að gefa út skrifað blað
innan stúkunnar. Er þess að vænta að
starfiö verði ekki síður fjörugt á næsta
vetri.
G. M.
Meöal annarra skipa
sem hér hafa verið síðasta mánuð má nefna
Reykjafoss, sem tók hér fiskimjöl frá Fiski-
mjölsverksmiðjunni í Innri-Njarðvík og Fisk-
iðjunni í Keflavík. Bauta kom með sement
til Landshafnarinnar og Timburverzlunar
Jóhanns Guðnasonar, Keflavík. Katla tók
9391 pakka af óverkuðum saltfiski og mun
það hafa verið frá öllum verstöðvum Skag-
ans. Þá hefur Þyrill verið hér að vanda með
olíur og benzín.
Um Keflvískan
sjómann
Feitan þorskinn flakarðu,
fénu saman rakarðu.
Hér í konu kra'karðu.
K'lónni á ei slakarðu.
Laingan kuta kveturðu,
'konu clskað geCurðu,
ungar meyjar meturðu,
marga récti éturðu.
Hreina kosti hefurðu,
höfðingilega gefurðu,
syndgar ei þá sdfurðu.
Seint þi'tt pundið grefurðu.
Hetju magnast móðurinn,
mangan ferðu róðurinn.
Sértu gætinn góðurinn
gildnar nokkuð sjóðurinn.
Biltist þú á bárunum,
bleyttur Ægis tárunum.
Eidist þó með árunum
unz það sést á hárunum.
Ágúst L. Pétursson.
Leiðrétting.
í greinni Hauður og haf eftir sr. Valdimar
J. Eylands, sem birtist í seinasta tbl. Faxa, þar
sem tekinn er upp hluti af kvæðinu Suður-
nesjamenn, hafa við prentunina brenglast
nokkrar ljóðlínur, sem lesendur eru beðnir að
afsaka. Þannig er þessi kvæðishluti réttur:
„Sæmd er hverri þjóð að eiga sægarpa enn.
Ekki er að spauga með þá útnesjamenn.
Gull að sækja í greipar þeim geigvæna mar,
ekki nema ofurmennum ætlandi var.
Sagt hefir það verið um Suðurnesjamenn:
„Fast þeir sóttu sjóinn, og sækja hann enn“.
Meðal laganna var þula Olínu Andrésdótt-
ur með lagi Sigurðar Agústssonar, en ekki
Sigvalda Kaldalóns, eins og stóð í seinasta
tbl. Faxa.
H. Th. B.
Fá dæmi
munu vera fyrir því að snjóað hafi hér í
maílok, í tíð núlifandi manna. En aðfaranótt
þess 28. maí snjóaði svo mikið, að jörð varð
alhvít og mikið var liðið á sólbjartan dagínn
er snjórinn var horfinn úr hlíðum Þorbjarn-
ar og Svartsengis. Erfiðlega hefur því blásið
fyrir þeim er hafa viljað gera görðum sínum
til góða undir sumarið.