Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1952, Blaðsíða 10

Faxi - 01.03.1952, Blaðsíða 10
42 F A X I Talið frá vinstri: Bjarni Olsen, Guðrún Bachmann, Þormar Guðjóns- son, Óskar Kristjánsson, Hilmar B. Þórarinsson, Líneik Karvelsdóttir, Bjarni Bergsson, Halldóra Austmann, Gísli Guðmundsson, Valur Sig- urðsson, Sigríður Ingibjörnsdóttir, Guðný Þorsteinsdóttir, Karl Oddgeirs- son, Alexander Klemenzson. Jóhanna Einarsdóttir, Oddur Sveinbjörnsson, Kristinn Helgason. Sitjandi: Þorgrímur Einarsson, leikstjóri, Friðrik Valdimarsson, með bókina. Stundum og stundum ekki er leikið um þessar mundir í Samkomuhúsi Njarðvíkur, en fyrir sýningunum standa Ung- mennafélag Njarðvíkur og Kvenfélag Njarð- víkur. Þetta er gamanleikur i þremur þáttum eftir Arnold og Bach, staðfærður af Emil Thorodd- sen. Leikstjóri er Þorgrímur Einarsson leikari og hefur mér verið sagt — enda kemur það fram í leikskránni, að hann hafi sýnt mik- inn dugnað og alúð við sviðsetningu leiksins. Kunnugur maður, sem horfir á leikinn og veit að enginn af þeim sem skipa hin 18 hlutverk leiksins er vanur leikari og marg- ir þeirra aldrei komið á leiksvið fyrr, verður það Ijóst að hér hefur mikið verk verið unnið og tvímælalaust stór sigur fyrir leikstjóra- feril Þorgríms. Þetta er annað verkefnið, sem þessir aðilar eru með. í fyrra léku þeir „Eruð þér frí- múrari". Þegar tekið er tillit til þess sem hér hefur verið sagt og hins að leikendur eru valdir úr hópi svo fámenns byggðarlags mætti halda, að hver þverbresturinn væri öðrum verri á sviðinu, en svo er aldeilis ekki. Að vísu er ekki hægt að jafna leik þeirra við frammistöðu langþjálfaðra atvinnuleikara, og þá síst í taltækni og fjaðurmagni, en heildar yfirbragð og leikgleðin vinnur þetta upp. Efni leiksins er mjög spennandi og rás við- burðanna hröð. Eg er þeirrar skoðunar að vel hafi tekizt til um niðurröðun í hlutverk. Bjarni Bergs- son leikur stjórnarráðsritarann, sem varð í höndum örlaganna að ráðherra. í þessu að- alhlutverki sýnir Bjarni að óhætt er að trúa honum fyrir stórræðum á sviðinu, enda þótt hann hafi sjaldan komið þar áður. Hann hef- ur góða rödd og persónusköpun hans heil- steypt. Sama er að segja um Halldóru Austmann, Hilmar Þórarinsson, Val Sigurðsson og Krist- in Helgason, það varð ekki séð á þeim að þau væru nýgræðingar í listinni. Kristinn er efni í afbragðs „Comiker" og honum fylgir hressilegur hraði, en hann mætti vanda bet- ur framsetninguna og þess þurfa fleiri að gæta, því að hljómur er slæmur í samkomu- salnum, sem er auk þess mjög stór. Alexander Klemensson og Gísli Guðmundsson eru góðir fulltrúar stjórnarráðsstarfsmannanna og virð- ast kunna vel við sig þar. Guðný Þorsteins- dóttir og Karl Oddgeirsson starfa þar líka. Þau leggja alúð í hlutverkin sem fer þeim vel, enda um ástarhlutverk að ræða. Sigríður Ingibjörnsdóttir leikur þingkonuna sem berst fyrir bættu siðferði og kvenréttindum. Skap gerðin er góð og gerfið, en æskilegt hefði verið að hafa eldri konu í hlutverkinu og Sigríður má hafa sig alla við að láta gerfið hylja æskuna — og tekst það furðu vel. Oskar Kristjánsson leikur veitingamanninn að Vatnalaugum. Hann sér í gegnum fingur- sér við velsæmi gesta sinna. Hann er flest- um veitingamönnum fremri í skapprýði og ró en það eru hollir eiginleikar í þeirri stöðu. Þórunn Karvelsdóttir leikur frú stjórnarráðs- ritarans. Ahugi hennar fyrir frama eigin- mannsins er græskulaus og vel gerður, en aðgerðir hennar teldi ég enn sannari ef hún treysti sér til að stíga örlítið léttara í væng- inn við skrifstofustjórann, sem reyndist þess vel verðugur — að lokum. Þormar Guðjónsson, Bjarni Olsen, Guðrún Bachmann, Oddur Sveinbjörnsson og Jóhanna Einarsdóttir léku öll smá hlutverk svo að ekki verður séð hvað í þeim býr, en vonandi fá þau tækifæri til þess síðar. Þetta er mjög virðingarverð viðleitni sem ég held að hljóti að hafa tekizt framar öllum vonum. • •'■'•C«0#0«0«0*0#0»0*0#0#O«O«'• 1 c r c'.«':##•• i«c«0«0«i '•0«0«0«0«0#0#0«0«f'« • ••O«0#0#oi 0«0«0«0«0«0«0«0«0«0«0«0«0«0«0«0«0«0«0#c#0#0«0«0#c.-»0«0#0#c.l0c0; *COCO#G*COO«0#*#000#03*#()#0«0#0#0#C#0#0#0#0«0#0#0#0#0#0#C:»I •5 •o •o Bœ\ur íslendingasagnaútgáfunnar með mánaðarlegum afborgunum. •0 ss „PARKER" PENNAR •í BESTIKK, „WILD". v » !• Daglega koma ný mánaða- og vikurit og •* § DAGLEGA ER is Bókabúð Keflavíkur % ! ss c. S :• .* r\ I LEIÐINNI. Sí •0 •Q*o*o*o*o*o*o*ofo»o©o«o»o»ooo*o*o*o»Q*Q*o«o*o*o*o*o«o»o*o*o*c*o''o»o*o*o*o*o*o*o*o*o*o*o*o*o*o*o*o«o*o*o»o»o»o*o«oto«o*( 0*0«0*0«0*0«0*0*0*0*0»0«0»0»0*0«0*0*0*0*0«0*0«0*0*0*0«0*0*0*0i0*0*0*0*0«0«0*0*0*0*0i0*0*0*0*0»0«0»0*0*0*0*0»0*0é0«0*0*0(

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.