Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1952, Blaðsíða 11

Faxi - 01.03.1952, Blaðsíða 11
F A X I 43 Ragnar Halldórsson Bridgeþáttur Öllum bridgespilurum er nauðsynlegt að kunna glögg skil á skynsamlegum sögn- um. Takmarkið er að ná hinni, ef til vill, einu réttu lokasögn í hverju spili, því að enda þótt fyrir komi að litlu máli skipti hvort lokasögnin verður t. d. 4 hjörtu, 4 spaðar eða 3 grönd, sökum þess að spilin eru svo alhliða og sterk að úttektarsögn vinnst, ef á annað borð nóg er sagt til hálfleiks, þá ber að hafa í huga að á slík spil er yfirleitt enginn vandi að segja, þau eru lík góðhesti, sem fer á kostum eins fyrir það þótt riddarinn kunni illa að sitja. Þrír fjórðu hlutar allra sagnfærra spila eru miklu viðkvæmari fyrir mistökum en þetta ogþola i flestum tilfellum aðeins eina rétta úttektar eða lokasögn. Allur þorri spilafólks reynir einungis að tileinka sér óbrotnar, eðlilegar og auð- lærðar sagnir, sem í senn eru bæði viðkom- andi spilamanni og meðspilamanni hans skiljanlegar og viðráðanlegar. Þannig á þetta líka að vera hjá ölium þeim, sem ekki leggja bridgespilið beinlínis fyrir sig sem listgrein eða atvinnu. En það sakar ekki að vita hitt, að stór- meistarar leggja inn á miklu þrengri hrattt- ir og tefla miklu djarfar í sögnunum, en fært er öllum a'lmenningi. Ályktunargáfa þeirra er svo rökviss og glögg að þeir geta rakið slóð að markinu, sem öðrum er með öllu hulin. Ég mun nú sýna hér dæmi um vandasamar sagnir frægra manna, en að sjálfsögðu þarf ekki að taka fram, að í höndum viðvaninga, sem ekki kynnu að draga réttar ályktanir, yrðu slíkar sagnir að hreinum voða og myndu lenda í al- gerri upplausn. Sagnir þessar eru úr keppni amerískra strómeistara, en þeir nota, sem kunnugt Sextugur Pétur Lárusson Sólvailagötu 32 í Kefla- vík varð sextugur þann 23. marz s. 1. Var fjölmennt á heimili hans þenna dag af frændum og vinum, enda er hann vinsæll maður og vel látinn af öllum, er honum kynnast. Við þetta tækifæri fárust honum góðar gjafir og fjöldi heiHaskeyta. er ekki hið svokallaða Vínarsagnkerfi, heldur yfirleitt Culbertson og með því meira eða minna af persónulegum einka- brögðum. Hér er spii frá keppni Ameríkumann- anna Rapee, Stayman, Becker og Craw- ford, en þeir voru með í keppninni um heimsmeistaratitilinn. Rapee S. G H. 932 T. K 9 8 7 6 5 L. G 3 2 S. D 10 432 H. D 5 4 T. G 3 2 L. 8 7 Stayman S. Ás H. G 10 876 T. Ás4 L. Ás K D 10 9 Sagnir gengu þannig: Vestur: Norður: Austur: Suður: 1 spaði pass 1 grand dobla 2 spaðar 3 tíglar pass 3 spaðar(!) pass 4 tíglar pass 4 hjörtu pass pass pass Mörgum mun þykja furðulegt að Stay- man býður 3 spaða á ásin blankan. Við nanari athugun meinar hann þetta: Ég hefi mjög sterk spil og ágæta spila- skiftingu og fyrstu fyrirstöðu í spaða, sem virðist vera höfuðlitur andstæðinganna. Eg tel unnt að spila game í einhverjum hinna þriggja lita, taktu ákvörðun um litinn. Rapee getur ekki upp á mikið boðið og verður að neita bæði laufi og hjarta og segir því 4 tígla. Sú sögn er neikvæð, þar eð hann hefur þegar boðið fram sinn tígul áður og þarf ekki að gera það aftur, en sögnin er jafnframt sú eina, sem fyrir hendi er sem biðsögn, og snýr aftur vand- anum yfir á hinn sterka. Staymann segir 4 hjörtu! Eftir langa krókaleið er loks komið að markinu, þ. e. a. s. ef Rapee passar og það gerir hann ef hann hefur svipaðan styrkleika í hjarta og laufi vegna þess að ekkert bendir á að fimm í láglit sé æskileg sögn. I þessu spili er augljóst að engin bein og auðfarin braut lá að hinni réttu lokasögn og verður það augljósara ef skoðaður er árangur frá hin- um helming keppninnar, þar hindraði meistaraparið Becker og Crawford, sem sat austur og vestur andstæðingana í að ná 4 hjörtum með því að bjóða 4 spaða, þeim var strax ljós hin mikli styrkleiki Suðurs og sérstæð spilaskifting. Að vísu urðu það tveir til 3 tapslagir doblaðir utan hættu, en gróði samt ef félagarnir fengju game við hitt borðið, en til þess kom ekki því N—S buðu þarna 5 tígla og urðu tveim slögum undir. Þannig gaf þetta eina spil meisturunum 820 stig og færði þeim heim sigurinn í keppninni. Landið mitt Eyja nyrst í Atlantshafi, ættarlandið kærast mér. Sólin gyllta geislastafi gegnurn aldir sendi þér. Hreinu, hvítu töfrarafi tindar þínir skauti sér. Þessi fögru friðarmerki fjalla þinna, bendi lýð, þegar trylltu voða verki veldur heimi blóðugt stríð. Drottins máttur, mildi sterki, megi þér hlífa alla tíð. Agúst L. Pétursson. Tilkynning til sjófarcnda við ísland. Gefin út af Vitamálaskrifstofunni í Reykja- vík, 20. janúar 1952. Grindavík. Hópsnesvita breytt. Sett hafa verið rauð og græn ljóshorn i vitann á Hópsnesi við Grindavík, og lýsir hann nú þannig: Rautt ......... 074°—094° Hvítt ......... 094°—180° Grænt ......... 180°—272° Hvítt ......... 272°—074° Að öðru leyti er vitinn óbreyttur. — Heim- ild: Vitamálaskrifstofan. Sjókort: Nr. 31 og 40. Vitaskrá: Bls. 44. Leiðsögubók III: Bls. 64. Reykjanes. Garðskagi. Ný radíó-miðunarstöð. Tekin hefur verið í notkun ný radíó-mið- unarstöð á Garðskaga á Reykjanesi. Staður: 64°04'52" n.br., 22°41'35" v.lg. Öldutíðni: 1650 krið/s (181.8 m.). Stöðin hlustar aðeins í sam- bandi við miðanir, og eru því skip og bátar, sem óska eftir miðunum, beðin að hafa sam- band við Reykjavík Radíó fyrst. — Heimild: Vita- og hafnamálaskrifstofan. Sjókort: Nr. 31 og 40. Leiðsögubók I: Bls. 10. Radíóskrá: Bls. 14. S. K98765 H. ÁsK T. D10 L. 6 54

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.