Faxi - 01.03.1957, Side 15
F A X I
47
þriggja manna nefnd að semja reglugerð
fyrir sjóðinn og mun hún væntanlega
leggja hana fyrir þetta þing.
Kvil{tnyndasýningar.
Stjórnin hélt 4 kvikmyndasýningar fyrir
yngri og eldri félaga á árinu. Voru
sýndar kennslumyndir í knattspyrnu,
kvikmynd frá Heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu o. fl.
Merkj í. B. K.
Auglýst var eftir tillöguuppdrætti að
merki fyrir I. B. K. Bárust nokkrir upp-
drættir og liggja þeir frammi á þessum
fundi, en æskilegt væri að ársþingið tæki
einhverja ákvörðun í sambandi við þau.
Iþróttahúsið.
Það sem háði starfsemi bandalagsins
hvað mest á s.l. starfsári var vöntun á
húsnæði fyrir inniæfingar. Er það orðið
aðkallandi mál fyrir Keflvíkinga að eign-
ast sitt eigið íþróttahús og má raunar
merkilegt heita, að það skuli ekki vera
komið upp fyrir löngu síðan.
Þurfa íþróttamenn hér í Keflavík að
standa vel saman í þessu máli og hvetja
viðkomandi aðila til að hraða framkvæmd-
um sem mest svo hægt verði að taka
'þróttahúsið til notkunar næsta haust.
Fœreyjaferð.
Stjórnin skrifaði íþróttasambandi Fær-
eyja um væntanlega íþróttaferð í. B. K. á
s-l. hausti og hefur nú verið gengið frá
ferðinni að mestu, en eftir er að ákveða
hvenær farið verður og fá leyfi viðkom-
andi aðila til fararinnar. Félagið B-36, sem
er eitt sterkasta félagið í Færeyjum og
hefur aðsetur í Þórshöfn, tekur á móti
í- B. K.
Foþaorð.
Hér að framan hefur verið minnst lítil-
|ega á það helzta, sem fráfarandi stjórn
íþróttabandalags Keflavíkur hefur fjallað
um á liðnu starfsári. Stjórnin væntir þess,
að einhver árangur hafi orðið af störfum
hennar. Stjórn í. B. K. skorar á alla
‘þróttamenn og íþróttaunnendur að taka
höndum saman og vinna af dugnaði að
eflingu íþrótta hér í Keflavík. Takmarkið
er að fá sem flesta til að æfa íþróttir, því
góð tómstundaiðja er gulli betri og íþróttir
eru vafalaust sú tómstundaiðja, sem hæfir
®skunni bezt.
^ð lokum þakkar fráfarandi stjórn
í. B. K. öllum þeim mörgu, sem á einn
eða annan hátt hafa lagt málefnum Iþrótta-
bandalags Keflavíkur lið á liðnu starfsári.
í febrúar 1957.
F. h. Iþróttabandalags Keflavíkur,
Hafst. Guðtnundsson, form.
Á eftir skýrslu stjórnarinnar las gjald-
keri upp reikningana.
Nokkrar umræður urðu á fundinum
um ársskýrsluna og reikningana og var
stjórninni þakkað vel unnið starf á fyrsta
starfsári íþróttabandalagsins.
M. a. samþykkta, sem gerðar voru á
þinginu, voru áskoranir á bæjarstjórn
Keflavíkur:
1. Að hraða framkvæmdum við íþrótta-
húsið, sem mest, svo hægt verði að
taka það til notkunar næsta haust.
2. Að hefja nú þegar undirbúning að
byggingu búningsklefa með böðum við
nýja íþróttavöllinn.
3. Að hefja ekki framkvæmdir á gamla
Samkvæmt auglýsingu hér í blaðinu, er
ákveðið að Guðmundur Einarsson frá
Miðdal haldi sýningu í húsi Kvenfélags-
ins í Keflavík. Verður hún opin páska-
vikuna, hefst á skýrdag og líkur annan
páskadag.
Þetta er all stór sýning, um 60 olíu og
vatnslitamyndir. Eru það bæði landslags-
og þjóðlífsmyndir frá Islandi, Grænlandi,
Lapplandi og Tíról. Einnig verða sýndar
teikningar, raderingar og smærri högg-
myndir eftir því sem húsrúm leyfir.
I viðtali hefir listamaðurinn látið þess
íþróttavellinum, í sambandi við skrúð-
garð, sem þar á að koma, fyrr en frjáls-
íþróttamenn hafa fengið annan völl til
afnota.
Á þinginu urðu miklar umræður um
það, hvort I. B. K. ætti að gerast aðili að
U. M. F. I. Voru menn ekki á eitt sáttir
um það hvort slíkt væri heppilegt og var
málinu að lokum vísað frá.
Þá var á þinginu endanlega gengið frá
stofnun slysasjóðs I. B. K. og samþykkt
lög fyrir hann. Einnig var samþykkt
merki fyrir bandalagið, sem Skúli Fjall-
dal hafið teiknað.
I héraðsdómstól I. B. K. voru endur-
kosnir þeir Hermann Eiríksson, form,
Tómas Tómasson og Ragnar Friðriksson.
1 stjórn I. B. K. fyrir næsta ár vóru
eftirtaldir menn kosnir:
Formaður: Hafsteinn Guðmundsson.
Varaform.: Þórhallur Stígsson.
Gjaldkeri: Heimir Stígsson.
Ritari: Hörður Guðmundsson.
Meðstj.: Skúli Fjalldal.
getið, að hann hafi ákveðið að sýna í
nokkrum stærri kaupstöðum landsins, því
ekki hafi allir sem í fjarlægð búa, tæki-
færi til að sækja sýningar í Reykjavík.
Oft hafi heyrzt um það raddir, en því hafi
lítið verið sinnt liingað til. Einnig telur
hann æskilegt að unglingar noti tækifærið,
enda hafi þeir ókeypis aðgang, og jafn-
framt ættu foreldrar að taka börn á skóla-
skyldualdri með á sýninguna.
Sýningin verður opin frá 10—10 dag-
lega, og skal fólki bent á, að bezt er að
skoða málverkin við dagsbirtuna.
Málverk eftir Guðmund frá Miðdal.