Faxi - 01.10.1957, Qupperneq 11
F A X I
95
Þetta litla danspar frá Keflavík skemmti
á skemmtun barnadagsins í Reykjavík fyrsta
sumardag s.l. og vakti mikla athygli fyrir
frábæra leikni.
Telpan, Henny Hermannsdóttir er aðeins 5
ara en herrann Ragnar Ragnarsson er 8 ára.
Þetta litla par dansaði þrjá samkvæmisdansa:
„Rumba“, „Jive“ og „Samba“, en þau eru
nemendur úr dansskóla Hermanns Ragnars.
Undirleik annaðist Þórir Baldursson 12 ára,
en hann hefur þegar náð mikilli leikni á
harmonikuna. Á skemmtun barnadagsins í
Reykjavík munu hafa komið fram um 150
börn að þessu sinni, en þessir 3 litlu Kefl-
vikingar hlupu undir bagga og gerðust sjálf-
boðaliðar og eru Reykjavikurbörnin þeim
þakklát fyrir komuna.
Rcknetaveiðar.
hófust hér í flóanum á venjulegum tíma.
Aflaðist sæmilega framan af, en veiðin hvarf
alveg, er á leið, svo flestir heimabátanna,
sem stunduðu veiðarnar, fóru ýmist norður á
Húnaflóa eða út af Siglufirði, en á ])essum
svæðum veiddist nokkur síld í net í byrjun
ágústmánaðar. Voru veiðihorfur þarna á tíma-
bili svo glæsilegar, að sumir snurpuveiðibát-
arnir létu senda sér reknetin norður og stund-
uðu reknetin eftir það. Allir voru bátar þessir
þó komnir suður í lok ágústmánaðar, nema
Iveir eða þrír, sem létu drífa fyrir Vestfjörð-
um með nokkrum árangri. Eftir að bátar
þessir komu heim frá Norðurlandi, aflaðist
hér nokkur síld fyrri hluta septembermán-
aðar, en upp úr 20. september hvarf veiðin
svo að segja alveg og fengu bátarnir þá
mest 20—30 tunnur og margir ekki neitt.
Er þetta svipað því sem var hér í fyrra, en
þá lá veiðin niðri um þetta leyti og þar til
fram undir miðjan október, að hún tók að
glæðast, og aflaðist eftir það mjög vel, þegar
á sjóinn gaf. Eru menn nú að vona, að þetta
endurtaki sig og veiðin glæðist næstu daga.
Lögreglustöðin.
Lögreglustöð og fangageymsla Keflavíkur
hefir að undanförnu um tíu ára skeið verið
til húsa í gömlum lierbragga, og hefir það,
vægast sagt, verið til stórskammar fyrir
byggðarlagið. Hefir nú húsnæði því, sem
bæjarskrifstofurnar voru áður, verið breytt
í lögreglustöð, en á neðri hæð hússins, þar
sem slökkvistöðin var, eru nú komnir 8
fangaklefar og má segja, að þar sé vel fyrir
öllu séð, eftir því sem aðstæður hafa leyft.
Við þetta tækifæri gat bæjarfógeti þess, að
undanfarið hafi verið sótt um fjárfestingar-
leyfi til að byggja hér fullkomna lögreglu-
stöð, þar sem skrifstofur embættisins væru
einnig til húsa, og þetta leyfi ekki fengizt.
Hinsvegar hefði verið veitt til byggingar lög-
reglustöðvar á Keflavíkurflugvelli. Taldi
hann nauðsynlegt að þetta leyfi fengist bráð-
lega, enda væri þetta húsnæði aðeins bráða-
birgðar lausn.
Á síðastliðnum vetri stofnuðu iðnaðarmenn
hér á Suðurnesjum nokkur hlutafélög, í
þeim tilgangi að taka að sér byggingarvinnu
hér á flugvellinum og önnur stærri verk,
sem einstaklingum eru ofviða. Stofnað var
sérstakt félag innan hverrar iðngreinar. Voru
það rafvirkjar, sem riðu á vaðið og stofnuðu
félagið Rafmagnsverktakar Keflavíkur h.f.
Formaður er Guðbjörn Guðmundsson, fram-
kvæmdarstjóri Guðmundur Sveinsson.
Á aðalfundi Iðnaðarmannafélags Keflavík-
ur var málinu síðan hreyft og þar kosin
nefnd til að athuga málið. Var nefndin þannig
skipuð: Guðmundur Sveinsson, Áki Granz,
Ásbjörn Guðmundsson, Sigurður Jónsson,
Guðjón Hjörleifsson. Skilaði hún áliti á næsta
fundi og var þar samþykkt að skora á fé-
lagsmenn að stofna verktakafélög innan
hverrar iðngreinar. Voru þau síðan stofnuð
16. apríl og hlutu þessi nöfn. Byggingar-
verktakar Keflavíkur h.f., form. Sigurður
Jónsson, Múraraverktakar Keflavíkur hi.,
form. Guðjón Hjörleifsson, Járniðnaðar-
og pípulagningarverktakar Keflavíkur h.f.,
form. Ingvar Jóhannsson, og Málaraverk-
takar Keflavíkur h.f., form. Guðni Magnús-
son.
Félög þessi hafa þegar tekið að sér nokkur
verkefni. Byggingarverktakar hafa tekið að
sér byggingu á frystihúsi o. fl. fyrir varnar-
liðið, ennfremur byggingu á póst- og síma-
húsi í Gerðum og viðbyggingu við símstöð-
ina í Keflavík fyrir póst- og símamálastjórn-
ina Rafmagnsverktakar hafa gert ýmsa
samninga við Aðalverktaka, sömuleiðis Járn-
smíðaverktakar og Múraraverktakar. Málara-
verktakar hafa tekið að sér að mála starfs-
mannaíbúðir á flugvellinum fyrir Varnar-
máladeild.
Það, sem ýtti undir stofnun þessara félaga,
var það, að utanríkisráðherra og varnar-
máladeild gáfu þau fyrirmæli, að iðnaðar-
menn á Suðurnesjum skyldu fá aðstöðu til
að taka að sér verk á flugvellinum, en sú
aðstaða var áður ekki fyrir hendi. Vænta
iðnaðarmenn sér góðs af þessu, því auk þess
að verksvið þeirra rýmkast ætti þetta að
stuðla að meiri samheldni þeirra og félags-
hyggju, enda stendur að samtökum þessum
allur þorri iðnaðarmanna á Suðurnesjum.
Frá barnaskólaiiuni í Keflavík.
Kennsla 7, 8 og 9 ára barna hófst 11. sept.,
en 10, 11 og 12 ára barna 1. okt. I skólanum
eru um 570 börn í 22 deildum. Er það um
40 börnum fleira, en á síðast liðnum vetri.
Kennarar við skólann eru 16, þar af 3,
sem einnig eru kennarar við gagnfræðaskól-
ann.
Skóvinnustofa.
Benjamín V. Jónsson skósmiður hefir opnað
skóvinnustofu í Birkistíg 14, Keflavík. Er
þar aðallega gert við gúmmískófatnað barna
og fullorðinna, sólaðir götuskór o fl.
L
Dansskóli Hermanns Ragnars
tekur til starfa 15. október. ■— Nánari upplýsingar og
innritun í síma G71 eftir 1. október.
Hermann Ragnar
Garðavcg 2.
4
Skóvinnustofa
Hefi opnað skóvinnutsofu á Birkiteig 14, Keflavík. Sími 307.
Gjörið svo vcl og lítið inn.
Benjamín V. Jónsson
Skósmiður.