Faxi - 01.10.1964, Síða 6
Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík. — Ritstjóri og afgreiðslumaður:
ir Hall6rímur Th. Björnsson. Blaðstjórn: Hallgrímur Th. Björnsson. Margeir
JL JL Jónsson, Kristinn Reyr. Gjaldkeri: Guðni Magnússon. Auglýsingastj.: Gunnar
Sveinsson. Verð blaðsins í lausasölu krónur 15,00. Alþýðuprentsmiðjan h.f.
-------------------------------------------------------------------------------------------------^
Fundinn legsteinn
Steinunnor
Hallgrímsdóttur
Kirkjugarðurinn
Garðyrkjuráðunautur bæjarins, Guðleif-
ur Sigurjónsson, kom nú á dögunum að
máli við Faxa til þess að ræða um kirkju-
garðinn í Keflavík, sem hann nú hefir
tekið að sér að annast.
Nú að undanförnu hefir Guðleifur verið
að skrásetja leiði í garðinum, en slík skrá-
setning hefir því miður verið mjög í mol-
um, t. d. í elzta hluta garðsins og einnig
talsvert í þeim yngri. Þá er þess og að geta,
að mjög mikið af leiðum er ómerkt, sem
torveldar mjög skrásetninguna.
Það eru því eindregin tilmæli Guðleifs,
að aðstandendur umræddra leiða hafi sam-
band við hann hið bráðasta og gefi honum
upplýsingar, sem að gagni megi verða, svo
að hægt verði að framkvæma skrásetning-
una til fulls.
Mun Guðleifur verða staddur í garðin-
um milli kl. 1 og 6 þrjá næstu sunnudaga
eftir útkomu þessa Faxablaðs. Einnig er
hægt að ná honum í síma 1769. Aðspurður
segir Guðleifur, að í sumar hafi á vegum
bæjarins verið aukin uppfylling við garð-
inn til vesturs fyrir 140—150 legstaði. Þá
sé einnig fyrirhugað að auka garðinn enn
nokkuð upp við Aðalgötu að Heiðarbrún.
HJÓLBARÐAR!
HJÓLBARÐAR!
HJÓLBARÐAR!
Gislaved snjóhjólbarðar
í öllum stcerðum.
Aðalstöðin h.f.
Bílabúðin. — Sími 1515.
i
L____________________
— Segðu mér, Guðleifur, ertu ánægður
með umgengni almennings í garðinum?
— Hjá allmörgum er hún til sannrar
fyrirmyndar, en því miður langt fyrir neð-
an allar hellur hjá fjölmörgum. Hér er um
helgan reit að ræða, sem öllum ætti að vera
ljúft og skylt að hlú að. Ef hver og einn
hefði þetta í huga gagnvart leiðum ástvina
sinna, þá mundi heildarsvipur garðsins
breytast mjög til hins betra.
— En hvað um börnin, sem hafa kirkju-
garðinn fyrir leikvöll?
— Já, þar kemur einnig til hinna full-
orðnu borgara, að þeir innprcnti börnun-
um, að garðurinn sé helgur reitur og að
þeim beri heilög skylda til að sýna honum
fyllstu lotningu og um fram allt að halda
leikjum sínum þar fjarri. Þetta þurfa for-
eldrar að ítreka við börn sín og fylgjast
með því, að þau leggi aldrei þangað leið
sína til leikja.
H. Th. B.
Nú fyrir skömmu, er verið var að vinna að
endurbótum á gangstétt Hvalsneskirkju, kom
í leitirnar legsteinn Steinunnar Hallgríms-
dóttur Péturssonar. en steinsins hafði lengi
verið leitað án árangurs.
Árið 1649 er talið að Steinunn hafi látizt,
aðeins þriggja ára, en hún var augasteinn
föður síns og eftir barnið orti hann innilegt
saknaðarljóð, sem er að finna í ljóðasafni
þessa mikla trúarskálds.
Hallgrímur var prestur við Hvalsneskirkju,
er hann missti Steinunni og er talið, að hún
hafi verið jarðsett að baki kirkjunnar og að
legsteinn með eiginhandar áritun föður henn-
ar, gerðri með meitli og hamri, hafi verið
lagður á leiði litlu stúlkunnar.
Þessi 315 ára gamli steinn, sem s. 1. 77 ár
hefir legið á hvolfi, með leturflötinn niður,
er nú fyrir staka tilviljun aftur fundinn og
verður hann sennilega framvegis varðveittur
í Hvalneskirkju. Sá sem fann legsteininn var
Guðmundur Guðmundsson bóndi á Bola í
Miðneshreppi, en fréttin um þennan merki-
laga fund er komin frá Gísla Guðmundssyni
kirkjuhaldara í Hvalnesi.
130 — FAXI