Faxi - 01.10.1966, Blaðsíða 2
UNDURSAMLEG LÆKNING
Ung hjón hér í Keflavík, Oddný Matta-
dóttir og Stefán Kristjánsson, eignuSst
fyrir tæpum tveim árum dreng með mik-
inn hjartagalla. Var harai orðinn 6 vikna,
þegar þetta vitnaðist og var þá lagður inn
á Landspítalann í Reykjavík, þar sem hann
var rannsakaður, en sú rannsókn þótti leiða-
í ljós, að með honum væri lítil lífsvon. Var
þá ákveðið, að senda drenginn til Kaup
mannahafnar til frekari rannsóknar.
Þann 19. maí 1965 flaug móðir hans með
hann til 'Hafnar og lagði hann þar inn á
þekktan barnaspítala, þar sem hann var í
l/i mánuð. Atti að gera þar á honum
uppskurð upp á líf og dauða, en þá brá svo
við, að drengurinn fór snögglega að taka
framförum, virtist á öruggum hatavegi.
T. d. þyngdist hann um 600 grömm á hálf-
um mánuði, en hafði aðeins þyngst um
40 grömm allt sumarið. Var þá horfið frá
uppskurði, enda batnaði drengnum stöð-
Ligt meðan hann dvaldi á sjúkrahúsinu.
Oddný kom heim með son sinn, Guð-
brand, 13. jan. 1966, en hann hafði þá orðið
ársgamall fáum dögum áður, eða þann 7.
janúar.
Þrátt fyrir þennan góða og sýnilega bata,
gat drengurinn ekkert lireift sig í rúminu
og hélt ekki einu sinni iiöfði.— Eftir heim-
komuna héldu þó framfarir áfram, Guð-
brandur litli smástyrktist og var að tveim
mánuðum liðnum farinn að geta sctið
uppi óstuddur.
Þannig leið tíminn með stöðugum hata-
merkjum og í endaðan júlí það sumar var
drengurinn farinn að ganga og voru því
horfurnar taldar góðar eftir aðstæðum.
Eins og marga e. t. v. rekur minni til,
var hér á fcrð í sumar ísl. læknir, Magnús
Agústsson, sem er yfirlæknir við rann-
sóknardeild Augustana sjúkrahúsið í
Cicagó í Bandaríkjunum. Af þessu sjúkra-
húsi fer mjög gott orð fyrir vel heppnaðar
hjartaskurðaðgerðir og er Magnús talinn
ákaflega mikilhæfur læknir á sínu sviði.
Hann hafði rannsakað Guðbrand litla
nokkru eftir að hann kom til Islands og
Guðbrandur daginn áður cn liann íór
heim til íslands.
það má með sanni segja, að við vorum
mjög lánsöm, að hann skyldi vera hér á
ferð þetta sumar og gefa sér tíma til að
líta á drenginn okkar, því úrskurður lians
eftir allýtarlega rannsókn var sá, að nauð
synlegt væri að gera á honum hjartaað-
gerð og mætti það ekki dragast, ef hann
ætti lífi að halda, því eins og ástatt væri,
þyldi hann ekki slæmt kvefkast, hvað þá
meira.
Ráðlagði hann okkur að koma með hann
vestur, þar sem tækni og þekking á þessu
Hjónin Oddný Matla-
dóttir og Slcfán Krist-
jánsson ásamt sonum
þeirra, Guðhrandi og
Matta Osvald.
sviði, væri þar í frcmstu röð. Bauðst hann
til að koma barninu fyrir á sjúkrahúsinu
og útvega okkur hjónunum vistlegt hótel-
herbcrgi þar í borginni, því hann taldi
nauðsynlegt og sjálfsagt, að við fylgdum
drengnum og dveldumst þar vestra meðan
á þessum aðgerðum stæði.
Framanritað er skráð eftir frásögn Odd-
nýjar, er ég hitti hana nú á dögunum og
spurðist frétta skömmu eftir heimkomu
þeirra hjónanna með Guðbrand eftir
gifturíka vesturför þeirra og furðulega
lækningu, sem nálgast að vera kraftaverk.
Og Oddný heldur áfram sögu sinni:
Eftir nauðsynlegan undirbúning lögðum
við af stað á miðnætti sunnudagsins 21.
ágúst með Loftleiðaflugvél. Hér skal þess
getið með þakklæti, að flugfélagið gaf
okkur helming fargjaldsins.— Ferðin
vestur gekk að óskum og vorum við komin
á ákvörðunarstað um hádegi eftir þarlend-
Lim tíma.
— Hvernig var veðrið, þegar þið lent
Llð?
— Það var golt að öðru leyti en því, að
hitinn var alltof mikill. Ekki óáþekkt því,
að koma inn í gróðurhús á heitum sumar-
degi.
— Var tekið á móti ykkur?
— Nei, við fórum bara með strætisvagni
áleiðis til sjúkrahússins og svo með leigu-
bíl síðasta áfangann.
— Þið hafið semsagt verið fleyg og fær
í málinu?
— Já, ég tala ensku, svo það bjargaðist
vel. En til gamans get ég sagt þér, að þegar
við komum út úr strætisvagninum og höfð-
um stöðvað leigubíl og vorum að stíga inn
í hann, varð mér litið framan í bílstjóran,
brá mér ekki lítið í brún er ég sá blasa við
mér kolsvart negraandlit. En hann reyndist
okkur lúnn traustasti bílstjóri og skilaði
okkur heilum á húfi til sjúkrahússins.
Magnús læknir var þá ekki við og var
okkur vísað á hótelið, þar sem við dvöld-
umst með Guðbrand í 2 daga, en þá var
hann lagður inn á sjúkrahúsið. Þessa daga
notuðum við til að kynna okkur næsta
nágrennið og hafa ofan fyrir drengnum.
Hólelið var slaðsett lijá lystigarði, sem
heitir Lincoln park. Var það mjög fallegur
garður með stórum trjám og blómum í
öllum regnbogans litum. Þar var líka
dýragarður beint á móti hótelinu. Þangað
fórum við með Guðbrand litla, áður en
hann var lagður inn á sjúkrahúsið, og hafði
hann mikið gaman af að koma þar og sjá
öll dýrin, sem þar voru til sýnis.
Þann 24. ágúst var Guðbrandur lagður
130 — FAXI