Faxi - 01.10.1966, Síða 3
inn á sjúkraliúsið. Þar tók á móti honum
svört hjúkrunarkona og klæddi hann úr.
Hann var mjög hræddur við þá svörtu til
að byrja með, cn síðar vann hún hug hans
alveg og var hann eftir það hændastur að
þessari hjúkrunarkonu.
Við rannsókn þann 26. ágúst kom í ljós,
að mikið meira var að Guðbrandi, en álitið
var í Kaupmannahöfn. Aðalslagæð hjart-
ans inn í hægra framhólf vantaði, en í
hennar stað hafði skapast önnur æð aftan
á lijartað og kom luin inn á hægra fram-
hólf frá lungunum með hreint blóð. Það
blóð, sem fór um vinstri helming hjartans
kom í gegn um gat á hægra framhólfi.
Vinstri helmingur hjartans vann lítið sem
ekkert, enda hafði hann ekkert þroskast
frá fæðingu. Höfðu læknarnir við August-
ana sjúkrahúsið séð 6 slík tilfelli, en þó
töldu þeir þetta vera þeirra alvarlegast.
Ottuðust þeir, að þegar lniið væri að tcngja
vinstri helminginn og blóðstraumurinn um
hann ykist stórlega, að þá mundi þessi van-
þroskaði hjartahelmingur ekki þola þá
auknu áreynslu og springa.
Vildu þeir því ekki gefa okkur miklar
vonir um að drengurinn lifði skurðaðgerð-
ina, sem þeir töldu þó óhjákvæmilegt að
framkvæma.
Svo rann upp hinn örlagaríki dagur, 31.
ágúst. Drengurmn var tekinn til aðgerðar
kl. 7.30 um morgunin. Við fórum upp á
sjúkrahús og biðum í biðherberginu.
Þangað kom presturinn til okkar kl.9.30
en hann er viðstaddur alla meiribáttar
uppskurði. Hann sagði okkur að búið væri
að opna drenginn og tengja hann við
lungnavélina og þeir væru að byrja að laga
hjartað. Síðan baðst hann fyrir með okkur.
Klukkan 12.30 var komið með Guðbrand
út úr skurðstofunni og var hann þá lagður
inn á herbergi, þar sem fyrir voru aðrir
skurðaðgerðarsjúklingar. Fengum við að
fara inn til hans og hafa þar fimm mínútna
viðdvöl á klukkustundarfresti, en þó aðeins
annað í einu. Það var mikill og einkenni-
legur útbúnaður á drengnum, þar sem
hann lá í sjúkrarúminu. Það voru t. d.
ólar á öllum útlimum hans með viðfestum
mælitækjum, er átlu að sýna hjartaslögin.
Kom sú vitneskja fram á lítilli vél, sem
var staðsett til hliðar við hann. Síðan voru
2 slöngur tengdar við brjóstholið, til þess
að hleypa út blóði og vatni, sem hjartað
hafði ekki undan að dæla.
Læknarnir voru ekki ánægðir með útlit
Guðbrandar 4!4 klst. eftir að komið var
nieð liann fram á stofuna. Fannst þeim
hann of blár á vörunum og gómurinn var
Magnús læknir er til
vinstri cn skurðlækn-
irinn Dr. Baffcs og yfir-
hjúkrunarkona til liægri
Oddný hcldur á Guð-
brandi til vinstri á
myndinni aðrir cru ís-
lenzkir skurðsjúklingar.
einnig blár. Töldu þeir að á næstu klukku-
stund íengist úr því skorið, hvort hann
'ifði eða dæi. Þótti okkur sá klukkutínú
býsna lengi að líða.
En svo lagaðist litarhátturinn og honum
fór að batna.
Það var mesta furða, hvað hann var
þægur, litla skinnið.
Þann 10. september losnaði Guðbrandur
af sjúkrahúsinu og kom til okkar á hót-
elið. Þar höfðum við hann í vikutíma og
áttum að koma með hann við og við lil
athugunar á sjúkrahúsið, hvað við að sjálf-
sögðu gerðum. Eftir þann tíma var hann
útskrifaður af Magnúsi lækni og var okkur
þá leyft að halda heim til Islands, sem við
gerðum þann 14. september s. 1.
— Varð honum ekkert meint af ferð-
unum?
— Nei, hann svaf báðar leiðir og eftir
heimkomuna fór honum svo mikið fram
að með ólíkindum má telja. Er hann nú
hinn sprækasti og virðist hafa fengið eðli-
lega krafta eftir aldri og er fullkomlcga
heilbrigður eins og þú sérð.
— Jú, ekki er annað að sjá, en að dreng-
urinn sé í alla staði heilbrigður og mesta
efnisbarn. Óska ég ykkur hjónunum til
hamingju með, hversu giftusamlega þessi
vesturför ykkar tókst. Vcit ég að Keflvík-
ingar munu glcðjast með ykkur og taka
undir árnaðaróskir ykkur til handa af
heilum liug.
— Ég þakka þessi hlýju orð og vil um
leið nota tækifærið og þakka vinum, vanda-
mönnum og öðrum góðum Keflvíkingum,
hversu þeir brugðust vel og drengilega
við með almennri þátttöku í fjársöfnum
þeirri, sem hafin var í því skyni að hjálpa
okkur fjárhagslega lil að komast vestur
með drenginn okkar og kosta þessa dýru
skurðaðgerð á Augustana sjúkrahúsinu.
En alveg sérstaklega vil ég þakka mínum
ágætu skólasystrum hugulsemi þeirra og
fórnfýsi, sem þær sýndu með því að gang-
ast fyrir og skipuleggja þessa fjársöfnun.
Þetta þakklæti okkar hjónanna nær einn-
ig til lækna og starfsliðs sjúkrahúsanna og
annarra þeirra, sem lögðu hönd að verki
á einn og annan hátt til bjargar drengnum
okkar. Eigum við ekki nógu sterk þakk-
lætisorð gagnvart þeirra hjartahlýju, sem
birtist okkur í þessum kærleiksverkum.
H Th B.
IKREMIT I
BABY FOOD
☆ I
BARNAMJÓLK |
Þessi vinscela og vitamínríka |
barnafœða fœst í |
APÓTEKI $
KEFLAVÍKUR
-><><><><><><><><><><><><><><><><><>^^
FAXI-131