Faxi - 01.03.1970, Page 2
átrúnað, þannig að það er nokkuð hæpið
að telja það merki um vanþroska að vera
trúhneigður.
Menn tala mikið um það, að ýmislegt
í Biblíunni fái ekki staðizt og að hún sé
full af mótsögnum og hvers kyns vitleysu.
En ef talað er betur við þessa sömu menn,
kemur í ljós, að flestir þeirra hafa lítið
sem ekkert lesið og rannsakað Biblíuna,
og eiga því ákaflega erfitt með að standa
við sínar stóru fullyrðingar. Það hlýtur
því að vera frumskilyrði fyrir því, að
menn geti lagt dóm á Biblíuna og krist-
indóminn, sem vissulega grundvallast á
henni, að þeir lesi hana og rannsaki. Fyrir
ungt fólk, sem er í skólum, og er að afla
sér menntunar, og raunar fyrir hvern
þann, sem vill kalla sig menntaðan mann,
er nauðsynlegt að hafa lesið Biblíuna, því
að eins og Theodore Roosevelt, fyrrverandi
Bandaríkjaforseti, sagði eitt sinn: „Það
ungmenni er ómenntaður maður, sem
ekki þekkir Biblíuna sína.“
Er það ekki skammarlegt fyrir okkur,
sem lifum í þjóðfélagi, þar sem kristin
trú er ríkistrú og við langflest tilheyrum
þjóðkirkjunni, hversu lítið við vitum um
og hversu lítið við þekkjum þau trúar-
brögð, sem við játum, hversu lítinn áhuga
við sýnum þeim og kirkjunni okkar. En
þegar við lesum Biblíuna eða förum í
kirkju, þá megum við ekki gera það með
því hugarfari, að þetta sé allt saman hel-
ber vitleysa og hégómi, sem ekki skiptir
okkur neinu máli. Heldur verðum við að
gera það með jákvæðu hugarfari, því að
annars er betur heima setið en af stað
farið.
Við ferminguna svörum við þeirri stóru
spurningu játandi, hvort við viljum leit-
ast við af fremsta megni að hafa frelsara
vorn Jesúm Krist að leiðtoga lífs okkar.
Þetta er stór og alvarleg spurning og við
skyldum ætla, að henni væri svarað af
einlægni og að mikil alvara lægi þar að
baki, en freistast maður ekki til að álíta,
að í allt of mörgum tilfellum sé hugurinn
víðs fjarri, ef til vill bundinn við eitthvað,
sem von er á síðar þennan sama dag, þeg-
ar þessi mikla játning er gerð. Því miður
er oft ástæða til að ætla að svo sé að
minnsta kosti þegar hugsað er um efnd-
irnar á loforðinu, því að þá, þegar ferm-
ingarbarnið er fyrst orðið fullgildur með-
limur kirkjunnar, þá vill oft fara svo, að
samband þess við kirkjuna rofni að mestu
eða öllu leyti. Er þetta ekki óeðlilegt?
Væri ekki eðlilegra að þá fyrst færum við
að taka virkan þátt í starfi safnaðarins,
ekki bara með því að koma stöku sinnum
til kirkju og láta þar við sitja.
Það hefur sýnt sig undanfarin ár, að
messan virðist ekki vera til þess fallin að
laða ungt fólk að kirkjunni, því finnst hún
vera of þung í vöfum og of hátíðleg. En
er messan það eina, sem kirkjan hefur
upp á að bjóða? Er ekki hægt að hafa
margvíslegt annað starf innan kirkjunnar
en hana eingöngu. Til dæmis æskulýðs-
félag, sem starfaði innan kirkjunnar, er
héldi uppi sem fjölbreyttastri starfsemi
fyrir ungt fólk, þar sem það gæti komið
saman og staðið fyrir skemmtikvöldum
og kvöldvökum, þar sem léttu skemmti-
efni og alvarlegri málum væri blandað
saman í hæfilegu hlutfalli, og yfir sumarið
gæti það til dæmis gengizt fyrir ferðalög-
um og ýmiskonar útiveru. En til þess að
unnt sé að framkvæma svona nokkuð, þá
verður það að koma frá unglingunum
sjálfum, þeir verða að sýna á einhvern
hátt að þeir hafi áhuga fyrir slíku starfi.
Einnig er nauðsynlegt að stjórn slíks fé-
lags verði að sem mestu leyti í höndum
unga fólksins sjálfs, en nyti að sjálfsögðu
Eins og kunnugt er fara nú á vori kom-
anda fram kosningar til bæja- og sveita-
stjórna um land allt.
Hafinn er fyrir nokkru undirbúningur
að þessum kosningum, sem verða þann
31. maí, og til þess að framfylgja öllu rétt-
læti á frjálsan og lýðræðislegan hátt, hafa
nú stjórnmálaflokkarnir viðhaft skoð-
anakönnun, — hver innan sinna vébanda,
þar sem stuðningsmönnum gafst kostur á
að láta álit sitt í ljós á framboðnum full-
trúum flokka sinna.
Þegar þetta er ritað, hafa allir stjórn-
málaflokkarnir, sem fulltrúa eiga í bæjar-
stjórn Keflavíkur, lokið þessum prófkjör-
um. Verður hér skýrt frá 5 efstu mönn-
um á hverjum lista, eins og fram hefir
komið í fréttum blaða nú að undanförnu,
en samkvætpt þessari skoðanakönnun
ættu það að vera efstu menn listanna, þeg-
ar stillt verður endanlega upp til bæjar-
stjórnarkosninganna í vor.
Alþýðuflokkurinn lauk hér fyrstur sínu
prófkjöri, og eru 5 efstu menn á lista hans
þessir: Karl Steinar Guðnason kennari,
Guðfinnur Sigurvinsson skrifstofumaður,
Ragnar Guðleifsson kennari, Olafur
Björnsson útgerðarmaður og Sigurður
Jónsson framkvæmdastjóri.
yfirumsjónar og leiðbeininga einhvers eldri
manns, en að framkvæmdir allar væru í
höndum unga fólksins. Því að við unga
fólkið megum ekki ætlast til að allt sé rétt
upp í hendurnar á okkur, heldur verðum
við að vinna sjálf að okkar sameiginlegu
málum, því að sú gleði, sem verður, ef
góður árangur næst í slíkri starfsemi, verð-
ur mun dýpri og einlægari, ef unga fólkið
vinnur sjálft sem mest að því og þarf eitt-
hvað að leggja á sig við það, og ég trúi
ekki öðru, en að ungt fólk sé tilbúið að
leggja sitt af mörkum til þess að freista
þess að koma á fót blómlegu félagslífi á
kristilegum grundvelli hér, því að mér
virðist, að ekki veiti af að hressa örlítið
upp á félagslífið hér, en aukið félagslíf er
bæði okkar eigin hagur og alls þjóðfé-
lagsins, því að með aukinni félagsstarf-
semi öðlumst við aukinn félagsþroska, en
hann er okkur nauðsynlegur til þess að
við getum orðið góðir og nýtir þjóðfélags-
þegnar.
Jóhann G. Jóhannsson, stud. theol.
Fulltrúar Alþýðuflokksins í bæjarstjórn
Keflavíkur eru: Ragnar Guðleifsson og
Olafur Björnsson.
Þeir sem skipa 5 efstu sæti Sjálfstæðis-
flokksins í Keflavík, að nýloknu próf-
kjöri, eru: Arni Ragnra Árnason, útibús-
stjóri Verzlunarbankans, Ingólfur Hall-
dórsson, gagnfræðaskólakennari, Tómas
Tómasson, lögfræðingur, Jón H. Jónsson,
framkvæmdastjóri og Alfreð Gíslason,
bæjarfógeti.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
stjórn Keflavíkur nú eru: Alfreð Gísla-
son, Kristján Guðlaugsson og Sesselja
Magnúsdóttir.
Framsóknarflokkurinn lauk síðastur
bæjarstjórnarflokkanna sínu prófkjöri, og
eru 5 efstu menn listans þessir: Hilmar
Pétursson, skrifstofum., Valtýr Guðjóns-
son, útibússtjóri Samvinnubankans, Páll
Jónsson, skrifstofustjóri, Margeir Jónsson,
útgerðarmaður og Hermann Eiríksson,
skólastjóri.
Fulltrúar Framsóknarflokksins í bæjar-
stjórn Keflavíkur eru: Valtýr Guðjónsson,
Margeir Jónsson, Hilmar Pétursson og
Hermann Eiríksson.
Bæjarstjórnarkosningar í vor
34 — F A X I