Faxi - 01.03.1970, Síða 6
Frú Aðalbjörg GuðmundsdóHir
fimmtug
Frú Aðalbjörg Guðmundsdóttir kennari
varð fimmtug þann 15. marz s. 1.
Aðalbjörg er fædd á Harðbak i Prest-
hólahreppi, N. Þingeyjarsýslu, 15. marz
1920, dóttir hjónanna Margrétar Siggeirs-
dóttur og Guðmundar Stefánssonar, er þar
bjuggu lengi.
Aðalbjörg lauk kennaraprófi frá Kenn-
araskóla Islands árið 1940 og hóf þá
kennslustörf, fyrst á Raufarhöfn, þar sem
hún tók þá jafnframt að sér ýmis félags
Aðalbjörg Guðmundsdóttir.
málastörf, t. d. formennsku Umf. Austra
á Raufarhöfn og gæzlumannsstarf við
barna- og ungmennast. Norðurljós þar í
þorpinu.
Arið 1943 fluttist hún suður og var þá
um skeið stundakennari við St. Jósefsskól-
ann í Hafnarfirði og síðar kennari við
Austurbæjarskólann í Reykjavík. Um þær
mundir tók hún virkan þátt í starfi Þing-
eyingafélagsins í Reykjavík, og átti um
skeið sæti í stjórn þess.
Aðalbjörg giftist 1948 Rögnvaldi Sæ-
mundssyni kennara, og hingað suður flutt-
ust þau 1952, þegar Rögnvaldur gerðist
skólastjóri við gagnfræðaskólann í Kefla-
vík.
Eiga þau hjónin 3 mannvænleg börn,
Sæmund, sem nú stundar nám við Háskóla
íslands, Elínu, er les undir stúdentspróf
við Menntaskólann á Akureyri og yngsta
barnið, Margrét, sem er enn í foreldra-
húsum.
Til viðbótar erilsömu húsmóðurstörf-
um, hefir Aðalbjörg lengst af verið kenn-
ari hér við barnaskólann og auk þess sinnt
ýmsum hugsjóna- og félagsmálum, svo
sem gæzlumannsstörfum við barnastúk-
una Nýársstjarnan, en við því þýðingar-
mikla kærleiks og fórnarstarfi tók hún
ásamt fleiri fyrir 2 árum, af þeim Fram-
nessystrum, sem þá höfðu um hart nær
hálfa öld stýrt stúkunni af mikilli hjarta-
gæzku og frábærum dugnaði. Fyrir svo
utan þetta allt á Aðalbjörg sæti í nokkr-
um fastanefndum á vegum bæjarfélagsins,
má þar m. a. nefna leikvallanefnd og
fræðsluráð.
Fleira af þessu tagi mun ég ekki tíunda
hér, enda tel ég vandséð að slík upptaln-
ing sé Aðalbjörgu að skapi. Eg vil því þó
hér við bæta, að Aðalbjörg er úrvalsgóður
Aflaskýrsla Keflavíkurbáta 15. marz 1970.
R. Tonn
Baldur KE ...................... 30 94,3
Bergvík KE ..................... 43 185,3
Bliki GK ....................... 17 61,8
Draupnir ÍS .................... 35 237,3
Dreki RE........................ 15 74,5
Erlingur KE .................... 13 22,2
Eyfellingur VE ................. 36 152,9
Freyja GK 364 .................. 40 319,2
Freyfaxi KE .................... 22 66,9
Garðar RE ...................... 45 295,0
Glaður KE ...................... 43 205,1
Gullþór KE...................... 11 18,3
Gunnar Hámundarson GK .......... 38 177,6
Gullvík KE ..................... 35 179,7
Hafborg KE ..................... 21 55,2
Hafborg GK ..................... 17 45,0
Hamravik KE .................... 31 333,7
Hagbarður KE ................... 43 225,2
Helga RE ....................... 26 463,1
Helgi Flóventsson ÞH............. 9 106,4
Ingiber Ólafsson II ............ 35 364,0
Jón Finnsson GK................. 17 199,2
Jón Guðmundsson KE ............. 40 241,0
Keilir GK 24 ................... 24 112,0
Kristján KE ..................... 9 19,0
Keflvíkingur KE ................. 9 420,0
Lómur KE ....................... 23 226,0
Manni KE ....................... 39 295,9
Kristján RE .................... 15 32,6
Ólafur KE ...................... 25 76,5
Ólafur II KE ................... 22 110,6
Ólafur Magnússon KE............. 21 53,6
Sandvík KE ..................... 11 35,9
Sigurbjörg KE .................. 41 240,2
Sjöstjarnan KE................... 3 13,7
Skagaröst KE.................... 41 263,1
kennari, bæði dugleg, kunnáttusöm og
skilningsrík, enda nýtur hún mikilla vin-
sælda meðal barnanna sem hún kennir,
svo og foreldranna, er kunna vel að meta
það sem að börnum þeirra snýr.
Eg hefi átt því láni að fagna að vera
um langt árabil samverkamaður Aðal-
bjargar, bæði í st. Vík, þar sem hún hefir
innt mikið og gott starf af hendi, og einnig
við kennslustörf í barnaskólanum og tel
mig því nokkuð dómbæran á það, sem að
framan er sagt. Á afmælisdaginn heim-
sóttu hana vinir og vandamenn og var
þann dag að vonum fjölmennt á hinu
fallega heimili þeirra hjóna, þar sem frúin
var heiðruð með gjöfum, heillaskeytum
og hlýjum handtökum. Ríkti þar sönn og
heilbrigð veizlugleði.
Við hjónin sendum Aðalbjörgu hlýjar
kveðjur og árnaðaróskir við þessi merku
tímamót. H. Th. B.
Skálaberg NS 10 77,1
Stafnes GK 36 128,2
Sæborg KE 15 16,8
Sæfugl GK 8 13,0
Sævar KE 37 233,2
Tjaldur KE 10 20,5
Þórarinn KE 18 25,4
Þorgrímur IS 19 117,3
Þorsteinn Gíslason KE 29 129,3
Vonin KE 44 307,6
Til Keflavíkur hafa borizt 6.289,1 tonn í
1063 sjóferðum.
Aflaskýrsla Sandgerðisbáta 15. marz 1970.
R. Tonn
Kristbjörg ÞH ................... 28 122,0
Andri KE......................... 41 189,1
Muninn GK ..................... 45 296,6
Árni Ólafur GK ................ 25 74,9
Víðir II GK ................... 47 310,3
Þorgeir GK .................... 43 346,8
Álaborg GK .................... 45 270,2
Sigurpáll GK..................... 46 334,7
Freyja GK 110 ................. 45 243,3
Jón Oddsson GK ................ 46 288,1
Bergþór GK .................... 43 237,5
Ásgeir Magnússon II GK .......... 40 173,4
Hólmsteinn GK.................... 36 140,5
Alda RE ......................... 30 107,1
Ásgeir Magnússon GK ............. 18 46,6
Mummi GK ........................ 39 252,2
Keilir GK 400 .................. 5 8,2
Guðmundur Þórðarson GK ......... 8 15,5
Brynja .......................... 24 102,8
Steinunn gamla GK ............... 33 233,4
Þorri ÞH ........................ 24 369,2
Vonin GK ........................ 14 37,3
Aflaskýrslo Suðurnesjabáta