Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1979, Blaðsíða 7

Faxi - 01.10.1979, Blaðsíða 7
ROTARYKLUBBUR KEFLAVIKUR: Tvær eftir- minnilegar sumarferðir Rotaryklúbbur Keflavíkur er um þessar mundir talinn einn traustasti og best starfandi Rotaryklúbbur landsins. Hann er þó ekki mikið í sviðsljósinu frekar en aðrir Rotaryklúbbar, enda er það ekki eitt af markmiðum þeirra. Félagarnir hafa mikinn áhuga á að skoða landið og kynn- ast því, taka þá stundum gesti með sér eða stuðla aö því á annan hátt að fólk kynnist landinu. „Hvenær seldi ég hann Kola?“ En Koli var fyrsti báturinn sem Hinrik smíðaði. Það mun hafa verið árið 1947, sem Koli var seldur til sona Agústar I Halakoti, en ekki er vitað hvað endanlega af honum varð. „Hvað bátarnir eru margir veit ég ekki nákvæmlega, en við skulum sjá, - ég er ekki alveg viss, ætli þeir séu ekki níu stórir bátar, auk margra stærri. Smíðaði Berkvikina fyrir Leiru-Manga og þá félaga, Elliða fyrir Sveinbjörn Berentsson í Krókskoti, einn fyrir Gunnlaug Stefánsson kaupmann, - fleiri man ég ekki í svipinn, ég yrði að fá tíma til að hugsa mig um. Allir eru bát- arnir smíðaðir inni, nema einn sem er smíðaður úti á túni við gafl á kindahúsi. Gumundur Sigvaldason hérna í Vesturbænum átti þann bát, sem var nokkuð stór og hét Sigurð- tir. Seinna var liann seldur inn í hverfi og gefið nafnið Magnús, nafn Magnúsar Pálssonar. Sigurðar- nafnið var Sigurðar Olafssonar, hann var faðir konu Guðntundar Sigvaldasonar." Þótt Hinrik hafi smiðað marga báta um æfina og geti því meðsóma kallast skipasmiður, þá er hann - og það kom okkur nokkuð á óvart, húsasmiður að iðn. ,,Ég er fæddur á Eyvík í Grímsnesi og var svona sitt á hvað. Foreldrar minir voru vinnuhjú á einum þremur til fjórum bæjum, fyrstu þrjú árin. Þá fór ég að Búrfelli og dvaldi þar til átta ára aldurs hjá Jóni Sigurðssyni og Kristínu Bergsveinsdóttur. Jón var bróðir Ögmundar í Flensborg, - var líkur honum um margt, - ágætis •nenn. Síðan fluttist ég til Eyrar- bakka og þar fóru foreldrar mínir að búa, í Sölkutótt. Þegar ég var um 16 ára fór ég með föður minum út i Herdísarvík til sjóróðra og ilentist svo hjá Þórarni Arnasyni sem vinnumaður í þrjú ár. Þaðan lá leiðin svo til Hafnarfjarðar. Eftir ársdvöl þar fluttist ég til reykjavík- Ur og lærði húsasntíði hjá Bjarna Símonarsyni, meistara, en alfarið suður í Hafnir kom ég árið 1934 og hel verið hér síðan. Aður hafði ég lesl fáð mitt. Eiginkonan heitir Hólmfríður Oddsdóttir, ættuð ofan J1 Kjalarnesi og af Seltjarnarnesi, °8 börnin urðu fimm, Ellý, Sigurjón, Þóroddur, Maron og Vil- hjálmur, sem er látinn." Ymislegt fleira bar á góma í sam- Aeðunum við Hinrik, sem reyndar 1c'itir Vilhjálmur Hinrik, sem vert V‘eri aðskrá.en viðerum bundniraf aðsíðutalinu, svo ekki var eftir nema að mynda Þorlákshafnar- s >pið. Við brugðum okkur út á að með Hkanið og tókst þrátt fyrir estan garrann að hemja seglin, og hiella af. Vonandi getum við því fym lesendum okkar myndafþessu fa‘lega skipi. emm. Tvö undanfarin sumur hafa þeir boðiö Styrktarfélagi aldr- aðra á Suðurnesjum í eins dags skemmtiferð. Gengið var út frá að þátttakendur hefðu náð líf- eyrisþegaaldri. I fyrra var farið um Árnes- og Rangárvallasýslur með viðkomu á merkustu sögustöðum, s.s. Odda og Þingvöllum. Mikil þátt- taka var og þótti ferðin takast ágætlega. ( sumar var farið um Kjósar- skarösveg, fyrir Hvalfjörð til Akraness. Þar tók séra Björn Jónsson á móti hópnum. Hann flutti stutt ávarp í kirkjunni og síðan voru sungnir sálmar. Þvi næst var bráðmy ndarlegt Byggðasafn Akraness skoðað. Séra Jón Guðjónsson, víðkunn- ur hugsjónamaöur, á mestan heiður að skipulagi og uppbyggingu safnsins. Því næst var ekiö að Saurbæ á Hval- fjaröarströnd og rifjuð uppsaga Hallgríms Péturssonar og tilurð Passíusálmanna. Síðan ekið um Svínadal, fyrir Hafnarfjall og Skarðsheiði, yfir Hvítá og Gufuá að Krumshólum, býli sem nokkrir klúbbfélagar eiga. Þar var hópnum haldin veisla mikil af þeim Rotaryfélögum er þá áttu þar dvalardaga, en þeir voru Ómar Steindórsson, forseti klúbbsins, Bjarni Einarsson, varaforseti, Margeir Jónsson og Egill Jónsson ásamt fjölskyld- um sínum. Að borðhaldi loknu var stað- urinn skoðaður og rökrætt um búsæld og laxveiði. Sjálfurbær- inn stendur í fögru umhverfi álfa- kletta og huldufólkshóla, sem kannski spilla búsæld, en bæta það því betur upp með nábýli við þessar hugþekku verur, sem margir finna í návist við sig, en fáir fá að sjá. Frá Krumshólum var ekið um Lundarreykjadal yfir Uxahryggi á Kaldadalsleið til Þingvalla. Þar bauö Sparisjóöurinn ( Keflavík upp á ágætar veitingar í Valhöll. Síðla kvölds var svo haldið heimleiðis um Mosfellsheiði og Mosfellsdal. Þessi dagleið er ákaflega fjölbreytileg og for- vitnileg. Örfáir þátttakenda höfðu áður farið um alla þá staði er leiðin lá um. Jón Böðvarsson, skólameistari, var leiðsögumað- ur og fræöari í ferðinni, eins og í öllum öðrum ferðum sem klúbb- urinn hefur staðið fyrir, síðan hann gerðist þar félagi. Hann er afburða fróður og var fyrirlestur hans nær samfelldur meðan ekin var þessi fjögur hundruð kílómetra leið. Matti O. Ás- björnsson, form. Styrktarfélags aldraðra, undirbjó ferðina af þeirra hálfu. Að leiðarlokum þakkaði hann öllum þeim er gjört höfðu þessa ferð svo góða og eftirminnilega. —oOo— Undir septemberlok sl. fór klúbburinn inn í Þórsmörk og hélt þar einn af vikulegum fund- um sínum. Allmargir gestir voru með í þeirri ferð. Farið varaf stað á föstudageftirmiBdegi og komið heim síðla sunnudags. Nokkrar göngu- og skoðunar- ferðir voru farnar. Aðal göngu- stjórar voru þeir Jón Böðvars- son, Jóhann Pétursson og Hall- dór Ibsen. Hátíðarkvöldverður var framreiddur á laugardags- kvöldinu. Heimir Stígsson var yfirbryti og þótti takast afbragðs vel. Síðan var efnt til kvöldvöku með fjölbreytilegu efni, m.a. flutti Jón Böðvarsson fróðlegan og skemmtilegan fyrirlestur um Þórsmörk ( heimleið á sunnu- deginum var ekið inn í Bása, gengið i Stakkhólsgjá og siðan haldið suður í Eyjafjallasveit og Gljúfrabúi skoðaður, en það er sérkennilegur foss, er mörgum sést yfir að skoða, þegar farið er þar um. Hann er fagurlega mynstraður inn í fjallsveginn - nokkurs konar felumynd. Á vesturleið var staðnæmst í „hólmanum þar sem Gunnar sneri aftur", með upprifjun á þeim sögulega atburði. Ekið var í Odda og kirkjumunir skoðaðir, en þar er m.a. kaleikur - dýrgrip- ur mikill, fagur og forn. Þá var haldið í Þykkvabæ, ekið meðfram kartöfluekrum, en þar var víða unnið að uppskerustörf- um. Sumarið var óhagstætt fyrir kartöfluvöxt og þessi síðsumar- vinna því ekki jafn skemmtileg og jafnan áður. Nokkrar torfærur urðu á leiðinni upp með Þjórsá - en allir lögðust á eitt til að yfirstíga þær og reyndust 'þær verða skemmtileg tilbreyt- ing í ágætri ferð. J.T. I Á ferð í Þórsmörk FAXl - 7

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.