Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1979, Blaðsíða 12

Faxi - 01.10.1979, Blaðsíða 12
Nýr skóli vígðuv í Vogum Stóru-Vogaskóli Nýtt skólahús vígt í Vogum Samhugur og vilji flýtti byggingunni um eitt ár r - Ræða Hreins Asgrímssonar, skólastjóra Sunnudaginn 30. sept. flutti Stóru- Vogaskóli í nýtt og veglegt húsnæði. Samkoman hófst með því að sr. Bragi Friðriksson flutti vígslu- bæn og kirkjukór Kálfatjarnar- kirkju söng nokkur lög. Að því búnu flutti Magnús Agústsson ávarp, en síðan rakti Hreinn As- grímsson skólastjóri og form. bygginganefndar gang fram- kvæmda. Ingibjörg Erlendsdóttir afhenti skólanurn að gjöf málverk af Viktoríu Guðmundsdóttur, sem var skólastjóri í 31 ár í Vog- unum, frá 1921 til 1952, en myndin er máluð af Eiríki Smith. Gefendur voru gamlir nemendur hennar. Stefán Hallsson kennari las þrjú kvæði eftir Davíð Stef- ánsson. Helgi Jónsson fræðslu- stjóriflutti ávarp og einnig Kjart- an Jóhannsson ráðherra, sem flutti kveðjur frá þingmönnum kjördæmisins og árnaði skólan- um allra heilla. Formaður kven- félagsins, frú Margrét Jóhanns- dóttir, færði skólanum 100 þúsund að gjöf til kaupa á kennslutækjum, og Omar Jóns- son færði sömu upphæð frá Umf. Þrótti til kaupa á kennsluritum í bókasafn skólans. Lionsklúbbur- inn Keilir gaf nýtt ræðupúlt og Patricia Hand gaf málverk. Þá gaf frú María Finnsdóttir skólan- um skrifborð til minningar um mann sinn, Arna Kl. Hallgríms- son, sem lengi var formaður skólanefndar. Að því búnu færði Hreinn As- grímsson öllum sem unnið hafa við bygginguna bestu þakkir, en Jóhann Gunnar, sveitarstjóri, af- henti Jóni Guðnasyni lyklana að nýja skólahúsinu. Kynnir var Jón Bjarnason, en að lokum var gest- um boðið til kaffidrykkju í Glað- heimum. Meðal gesta voru fjöl- margir Vogabúar,formenn sveit- arfélaga á Suðurnesjum, mennta- mála í héraði, og þingmenn. Ágsetu gestir. Mér er það mikið fagnaðarefni að standa hér í dag. Tilefnið er einkar ánægjulegt og jafnframt hátíðlegt. Hér erum við að taka í notkun nýjan skóla, Stóru-Vogaskóla. Byggingar- framkvæmdum hefur miðað mjög vel og er skólinn tekinn í notkun einu ári á undan áætlun, sem telst fremur sjaldgæft með slikar framkvæmdir. Aðaiástæður þess, að svona hefur gengið vel tel ég vera samhug og vilja allra þeirra aðila sem með bygginga- mál skólans hafa farið á liðnum árum, þar á ég einkum við þá aðila sem hafa gert okkur fjárhagslega kleift að koma skólanum upp. Vil ég þá fyrst og fremst þakka okkar ágæta sveitarstjóra, hans mikla dugnað og velvilja, svo og einnig hreppsnefnd, byggingadeild menntamálaráðu- neystis, alþingismönnum og forráða- mönnum lánastofnana. Þörf byggð- arlagsins fyrir nýjan og stærri skóla sáu allir og skildu, enda lágu fyrir tölulegar upplýsingar þar um, sem tóku af allan vafa. Mitt hlutverk hér sem formanns byggingarnefndar skólans er að rekja stuttlega byggingarsögu þessa húss. Skólinn komst fyrst á blað á fjár- lögum árið 1974, það sama ár var hafinn undirbúningur að byggingu hans. Arkitektastofunni sf. var falið að teikna húsið, en Hönnun hf. var Hreinn Ásgrímsson skólastjóri fengin til að annast verkfræðilega þætti alla. Arkitektar lögðu fram frum- teikningar í október þetta sama ár, en cndanlega voru samþykktar teikningar síðari hluta ársins 1975 og höfðu þá verið gerðar ýmsar breytingar á þeim frá upphaflegri gerð ýmissa hluta vegna. Verklegar framkvæmdir hófust þann 5. maí 1976 með þvi að Jón H. Kristjáns- son, kennari við Brunnastaðaskóla og fyrrum skólastjóri, tók fyrstu skóflustunguna í kalsaveðri. Síðan var viðstöddum boðið upp á kaffi í samkomuhúsinu Glaðheimum. Þetta sama ár var lokið við jarð- vegsuppgröft, sökklar voru steyptir og grunnur fylltur. Árið 1977 var gólfplata steypt, svo og útveggir. Árið 1978, þ.e.a.s. á sl. ári, var húsið gert fokhelt og hefur síðan verið unnið við það nokkuð samfellt. Ymislegt er ennþá ógert eins og menn hafa eflaust tekið eftir. T.d. er eftir að ganga frá húsinu að utan, svo og lóðinni endanlega. Loftskiptikerfi er ókomið. Millihurðir í þennan sal koma innan viku, en allt mun þetta von- andi koma innan tíðar, því að ég er bjartsýnn að sá hugur sem hingað til hefur ríkt í mönnum varðandi þessa byggingu haldist áfram þar til allt þetta er fengið. Lítið hefur ennþá verið keypt af stofnbúnaði, en væntanlega verður úr því bætt á næstu tveim árum. Þó hafa verið keypt 36 ný borð og stólar fyrir nemendur auk tveggja kennaraborða og stóla. Að öðru leyti verður stofnbúnaður Brunna- staðaskóla fluttur hingað. Um sl. mánaðamót var kostnaður við bygginguna orðinn 103 milljónir, en er líklega í dag um 110 milljónir. Hygg ég þá tölu ekki vera óhagstæða miðað við það hve gott og fallegt hús við erum komin með.

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.