Faxi - 01.10.1979, Side 14
lega starf sveitarstjóra, Gunnars
Jónssonar. Vafasamt er að við
værum hér samankomin í dag til að
taka þetta hús í notkun, ef ekki
hefði komið til hans óvenjulegi
Magnús Ágústsson
dugnaður og áhugi til að koma
þessu máli i gegn. Svo vil ég þakka
öllum þeim mörgu, sem hér hafa á
liðnum árum haldið uppi fræðslu.
Kcnnurum og skólastjórum, sem
kennt hafa við barnaskólann í
Brunnastaðahverfinu og skólanum
á Vatnsleysu. Það hefur oft verið
erfitt að komast á milli og halda
uppi fullri kennslu, en þetta tókst
með mikilli þrautseigju og dugn-
aði.
Góðir gestir, ég óska öllum
hreppsbúum innilega til hamingju
með þetta hús og allt það starf, sem
hér á að vinna, ungum nemendum
óska ég til hamingju og vona að
hingað sæki þau þroska til að
byggja sitt lifsstarf á. Skólastjóra og
kennurum vil ég óska alls góðs í
þessu húsi. Það verður mikil
breyting að koma hér og kenna í
þessum glæsilegu stofum. Heill og
hamingja fylgi starfi ykkar.
Ræða Jóhanns Gunnars Jónssonar:
Nemendur fá núna
sómasamlega
aðstöðu
Jóhann Gunnar, sveitarstjóri, efhendir Jóni Guðnasyni lyklana
að nýja skólanum
Heimafólk, góðir gestir.
Ég sem sveitarstjóri i Vatnsleysu-
strandarhreppi er glaður í hjarta
mínu í dag, ég er glaður að sjá
þriggja ára þrotlaust starf bera ávöxt
með vigslu Stóru-Vogaskóla, ég er
glaður að vita til þess að skólastjóri,
kennarar og nemendur, sem búið
hafa við hvað versta aðstöðu í
Reykjaneskjördæmi, skulu nú fá
sómasamlega aðstöðu með tilkomu
þessarar byggingar.
Skólastjóri, kennarar og bílstjóri
okkar, Kópur, sem hér hafa starfað
síðan ég tók við sveitarstjórastarfi,
skiluðu sínu hlutverki vel i Brunna-
staðaskóla og veit ég að nú fá þeir
enn betur að njóta sín í Stóru-Voga-
skóla, og það er gleðilegt að þetta
skuli bera upp á barnaári.
Starf mitt sem sveitarstjóri Vatns
Ingibjörg Erlendsdóttir afhenti skólanum að gjöf málverk af Viktoríu
Guðmundsdóttur. Gefendur voru gamlir nemendur Viktoríu.
Fjölmenni var við vígslu skóians
leysustrandarhrepps má segja að sé
jafngamalt þessu húsnæði, eða
röskra þriggja ára, og það hefur
verið mikil lífsreynsla fyrir mig að
takast á við þetta verkefni, og hefði
það aldrei tekist nema með sam-
stilltu átaki þeirra fjölmörgu sem
þar hafa lagt hönd á plóginn.
Á slíkri stundu kemst ekkert
annað að en þakklæti til þeirra aðila
sem hér eiga hlut að máli, verka-
menn og verkstjóra hreppsins,
vörubílstjóra, Jóhannesar Hannes-
sonar, iðnaðarmanna, starfsmanna
byggingadeildar menntamálaráðu-
neytisins, hönnuða, þingmanna,
peningastofnana, SÍS, Kaupfélags
Suðurnesja og allra annarra, sem
hefur orðið að leita til vegna þess-
arar byggingar, og ekki síst til
skólastjóra, sem verið hefur
formaður byggingarnefndar, en
nefndin hefur verið mjög virk, og
flyt ég henni þakklæti mitt.
Hreinn skólastjóri hefur haft um-
sjón með skólabyggingunni á loka-
stigi hennar, og ég held að ég halli
ekki á neinn þó ég segi að áhugi
hans fyrir þessu verki hafi flutt fjöll,
og hann oft sparað töluverða
fjárhæð fyrir sveitarfélagið með
sinni útsjónarsemi.
Eg vil þakka gefendum myndar-
innar af Viktoríu sem hér hefur
verið allijúpuð, Umf. Þrótti, Patr-
iciu Hand, Lionsklúbbnum Keili,
gefanda skrifborðs skólastjóra, sem
María Finnsdóttir gefur eftir mann
sinn Árna Kl. Hallgrimsson, sem
var fjölda ár formaður skólanefnd-
ar, og kvenfélaginu, sem f'yrir utan
gjöf sína til skólans, sjá hér um
kaffiveitingar.
Ég vil þakka þeim gestum sem
hér hafa tekið til máls fyrir þeirra
orð.
Að endingu vil ég biðja Jón
Guðnason, formann skólanefndar,
að taka hér við lyklavöldum að skól
anum frá hreppsnefnd, en áður en
það gerist vil ég tilkynna öllum við-
stöddum, að þegar gestir okkar
hafa skoðað skólahúsið verða kaffi-
veitingar bornar fram i samkomu-
húsinu Glaðheimum.
FAXI - 14