Faxi

Årgang

Faxi - 01.09.1993, Side 3

Faxi - 01.09.1993, Side 3
^ak'iiu^urliciiiiili viií> Eeftavíknrkirkjn Eins og kunnugt er verður kosið um livort byggt skuli safnaðarheimili við Keflavíkurkirkju í væntanlegum kosningum |iann 20. nóvember n.k. Var ]iað gert að ósk bæjarstjórnar Keflavíkur scm taldi eðlilegt að bæjarbúar gætu látið í Ijós skoðun sína á fyrirhuguðu safnaðarheimili við Keflavíkurkirkju. Verður í þessari grein sagt frá tilurð jieirrar hugmyndar að stefna að byggingu safnaðarheimilis á kirkjulóðinni, þeirri vinnu sent unnin hefur verið hingað til og stíktu málsins í dag. Aðdragandi Eins og öllum íbúum Keflavíkur er kunnugt er núverandi safnaðarheimili, Kirkjulundur. löngu orðið of lítið undir þá starfsemi sem því er ætlað og orðin brýn þörf á að bæta þar úr. Hefur sóknarnefndarfólk á liðnum árum hugsað mikið um þessi mál og talið kominn tíma til að Ituga að byggingu varanlegrar aðstöðu fyrir safnaðarstarf. Keflavíkursöfnuður telur nú hátt í átta þúsund manns og er einn stærsti söfnuður landsins. Það var á fundi sóknarnefndar þantt 10. desember 1990 sem skipað var í undirbúningsnefnd um byggingu safnaðarheimilisins. Var nefndin skipuð 7 mönnum sem bæði voru í sóknarnefnd, kirkjukór og utanað komandi. Guðmundur Björnsson verkfræðingur var Ibrmaður og aðrir nefndarmenn voru Kjartan Már Kjartansson, Sævar Reynisson, Birgir Guðnason, Steinn Erlingsson, Asta Arnadóttir og Arni V. Arnason. í mörg ár hafði verið hugsað fyrir því að væntanlegt safnaðarheimili myndi rísa á Skjaldarlóðinni við lilið Kirkjulundar og má segja að sú hugmynd hafi verið útgangspunktur á fyrsta fundi nefndarinnar. Þegar nefndin fór að kynna sér þá þróun í hugmyndum að nútíma safnarstarfi sem nú eru uppi og þau safnaðarheimili sem byggð hafa verið á síðustu árum, kom fram að ríkari tilhneigingar en áður gætti til að tetigja byggingarnar við kirkjurnar. Með þessu móti fæst fram ein stór heild sem öll tengist þessu kirkjulega starfi sem í dag fellst ekki einungis í athöfnum í kirkjunni sjálfri. Það hefur orðið æ algengara á síðustu árum að jarðarfarir hafi verið svo tjölmennar að kirkjan og Kirkjulundur eru þéttsetin og einnig kemur fyrir að rútubílar eru hafðir fyrir utan kirkjuna til viðbótar. Flest þau safnaðarheimili sem byggð hafa verið á liðnum árum hafa verið tengd við kirkjurnar ef þess hefur verið kostur og hafa menn lagt í tniklar framkvæmdir til að geta komið því við, eins og á Akureyri þar sem safnaðarheimilið er niðurgrafið við Itlið kirkjunnar þar er ekki var lóðatpláss. Eftir marga fundi og rækilegar umræður urðu allir nefndarmenn sammála um að skyn- samlegast yrði að byggja safnaðarheimili á kirkjulóðinni og tengjá húsið kirkjunni. I greinargerð undirbúningsnefndar var gengið út frá eftirfarandi forsendum um safnaðarheimilið: 1. Byggt verði hús setn þjónað getur hvers kyns safnaðarstartl sem nú tíðkast. 1 því verði vinnuaðstaða fyrir presta og aðra starfsmenn kirkjunnar Kennsluaðstaða fyrir fermingarundirbúning, sunnudagaskóla, kóræftngar og ýmiskonar félagsstarf. Salur fyrir 300-400 manns sem nýst gæti við stórar athafnir, hljómleika, myndlistasýningar og félagsstarf ungra sem aldraðra. 2. Safnaðarheimilið verði hægt að nýta sem viðbót við kirkjuna við fjölmennar athafnir og hægt verði að flytja þangað mál og mynd úr kirkjunni. Talið er mikilvægt að hægt sé að ganga í kirkjuna og „flytja" þaðan með sér mynd og stemningu athafnarinnar í tengdan hliðarsal þar sem með nútímatækni væri liægt að flytja athöfnina yftr. 3. Þess verði vandlega gætt að útlit hússins raski sem minnst umhverfi kirkjunnar og taki tillit til og verndi úllit kirkjunnar eins og hægt er. 4. Byggð verði lítil kapella fyrir 30-40 manns. Samkeppni um hönnun safnaðarheimilis I framhaldi af nefndaráliti undirbúningsnefndar fór fram samkeppni meðal 5 arkitekta undir stjórn Arkiteklalelags Islands. Af þessum 5 arkitektum voru 2 frá Keflavík. Sú tillaga sem dómnefnd valdi var eftir arkitektana Helgu Benediktsdóttur, Elínu Kjartans- dóttur og Harald Örn Jónsson. Sóknar- nefnd samþykkt lillögu dómnefndar og skipaði í byggingarnefnd. I henni eiga sæti Sævar Reynisson formaður, Sigurður Garðarsson og Kristján Hansson. Gekk nefndin lil samninga við arkitekta um hönnun byggingarinnar og bófst hönnun í janúar 1992. A haustmánuðum 1992 voru byggingarnefndarteikningar að mestu tilbúnar. Allan þann tíma sem unnið hefur verið að þessu verkefni hefur verið haft samband við alla þá aðila sem talið hefur verið að málið varðaði á hverju stigi. Undir- búningsnefndin liafði samráð við húsafriðunarnefnd ríkisins. skipulagsnefnd Keflavíkur, bæjarstjórn, bæjarráð og byggingarnefnd og kynnti þessum aðilum verkefnið. Byggingamefndin hefur haldið þessu samráði og upplýsingarstarfi áfram. Formaður skipulagsnefndar Kefiavíkur sat í dómnefnd í arkitektasamkeppninni og hefur verið byggingarnefnd til ráðgjafar allan tímann um framvindu málsins. Arkitektar hafa hannað nýtt anddyri á kirkjuna og hefur byggingarnefnd fengið þá breytingu samþykkta hjá húsafriðunamefnd ríkisins eins og allar teikningar af safnaðarheimilinu. Kefiavíkurkirkja er það gömul að hún fellur undir lög um húsaverndun og má ekki breyta henni án samþykkis húsafriðunamefndar ríkisins. Mjög mikilvægt er að vandað sé til hönnunar umhverfis kirkjunnar og safnaðarheimilisins. Gera þarf fleiri bfiastæði en nú eru og er gert ráð fyrir að bfiastæði verði gerð meðfram boganum á Kirkjuteig. Einnig skapast miklir möguleikar á fjölgun bílastæða á Skjaldarlóðinni. A ekki að þurfa að hafa áhyggjur af þeim málum í framtíðinni. Miklir möguleikar eru á kirkjulóðinni sjálfri en hún verður skv. teikningum arkitekta alls nýtt 22% eftir að safnaðarheimilið er risið. Það þýðir að 78% af lóðinni verða eftir til skipulagningar undir vistlegt umhverfi þessatra bygginga. Fyrirhugað er að hanna lóðina þannig að hún verði aðlaðandi fyrir gangandi vegfarendur og til útivistar. Gert er ráð fyrir tjörn. trjálundum. blómabeðum og göngustígum. Er byggingarnefnd þess fullviss að þetta svæði verði mun meira nýtt til útivistar eftir þessar breytingar en nú er. Deilur um saiuaðarheimilið Eins og gera má ráð fyrir þegar eins róttæk tillaga eins og hugmynd um byggingu safnaðarheimilis á kirkjulóðinni kemur fram, eru skiptar skoðanir á henni. Það er eðlilegt að fyrstu viðbrögð manna séu að ekki megi Itrófla við kirkjulóðinni og liinum fallega boga sem Kirkjuteigurinn er. Það satna stóð undirbúningsnefndin frammi fyrir í byrjun. En það hefur nú þróast þannig að allir setn komið hafa nærri þeirri vinnu sem búið er að leggja í hafa orðið sammála um að þetta sé rétta leiðin og muni á engan hátt skemma það fallega umhverfi sem kirkjuna nú umlykur. nema síður sé. Með þessari staðsetningu fást margir möguleikar á notagildi sem ekki fengjust með staðsetningu á Skjaldarlóðinni, eða öðram stöðum tjairi kirkjunni. Menna hafa bent á að form kirkjutúnsins sé fallegt og hafa menn þá fyrir sér loftmyndir sem teknar eru á góðviðrisdögum. Slíkt sjónarhorn sjá menn ekki nema úr loft. Enginn hluti væntanlegrar byggingar nær yfir kirkjuskipið og mestur liluti byggingarinnar er mun lægri. Eins og áður hefur komið fram er heildarnýting lóðarinnar eftir byggingu hússins ekki nema 22% og er því mikið svæði til skipulagningar fyrir fallegt umhverfi. en lóðin er alls tæpir (i(XX) fermetrar. Líl<an í Sparisjóðnum í Keflavík Arkitektar safnaðarheimilisins hafa gert mjög vandað líkan af safnaðarheimilinu, kirkjunni og kirkjulóðinni og sjást þar mjög vel öll hlutfóll og stærðir. Líkaninu er nú stillt upp í Sparisjóðnum í Keflavík. Hvetur byggingarnefndin Keflvíkinga eindregið til að skoða líkanið vandlega. Nidurlag Það er einlæg sannfæring allra þeirra sem að þessari byggingu standa að safnaðarheimili Keflavíkurkirkju verði glæsileg bygging sem verði Ketlavík til sóma. Þarna skapast aðstæður til safnaðarstarfs sem ekki liafa verið möguleikar til áður eins og öflugt unglingastarf og ellimálastarf. Hjá þeim aðilum sem að kirkjunni standa er ekki áhugi á að byggja safnaðarheimili á Skjaldarlóðinni vegna þess óhagræðis sem slíkri byggingu fylgir vegna fjarlægðar við kirkjuna. Er ekki ósennilegt að ef ekki kemur til þessarar byggingar verði beðið með framkvæmdir uns ný kirkja verði byggð. en gert er ráð fyrir henni í skipulagi íbúðarhvetfis á Bergi í framtíðinni. Byggingamefnd safnaðrhehnilis við Keilavíkurkirkju. Líkan af verðlaunahugmynd um safnaðarheimili. Ljósm. Heimir. FAXI 131

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.