Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1993, Síða 8

Faxi - 01.09.1993, Síða 8
Bókmeimtakymimg í Bókasaiiii Iíeílavíkiii* Hið nýja húsnæði Bókasafns Keflavíkur hefur verið úbúið þannig, að þar er ágæt aðstaða til að halda bókmenntakynningar og hvers konar uppákomur af listrænu tagi. Það fór vel á því, að það voru verk Hilmars Jónssonar , fyrrverandi bókavarðar, sem þar voru fyrst kynnt og fór sú kynning fram sunnudaginn 10. október að viðstöddum Ijölda áheyrenda. Það var Leiktelag Kellavíkur sem sá um þessa kynningu og tóku þar þátt fjölmargir félagar þess. Kynnir var Þór Helgason. Formaður LK, Guðný Kristjánsdóttir, afhenti Hilmari skjal til vitnis um að hann hefði verið kjörinn heiðursfélagi í leikfélaginu. Hilmar las að lokum tvö Ijóð. Að kynningunni lokinni bauð leikfélagið öllum viðstöddum til kaffiveitinga í hinu nýja kaffihúsi sem er við hliðina á bókasafninu. Magnús Gíslason flutti yfirlit um verk og störf Hilmars og var það listilega gert. Auk þess sem Hilmar hefur starfað við Bókasafn Keflavíkur í 35 tír, þá hefur hann látið til sín taka á tjölmörgum sviðum. Má það til nefna, ritstörf, leiklist, bindindis- og æskulýðsmál og íþróttir. Fer erindi Magnúsar hér á eftir. INNRITUN ÁVORÖNN 1994 Umsóknir nýnema eða þeirra, sem hefja vilja nám að loknu hléi, skulu hafa borist skrifstofu skólans í síðasta lagi 20. nóvember n.k. Allar hefðbundnar námsbrautir eru opnar. Sérstaklega er vakin athygli á að laus eru sæti á námsbraut SJÚKRALIÐA og VÉLAVARÐA. Skólameistari. Erindi um Hilmar Jónsson. bókavörð Keílavík 10. okt. 1993 Góðir tilheyrendur Mér vafðist dálítið tunga um tönn, þegar þess var óskað, að ég kynnti Hilmar Jónsson rithöfund á þessari bókmenntakynningu, sem helguð er verkum hans. Einhvern veginn fannst mér Hilmar svo þekktur á meðal Suður- nesjamanna, bæði sem bókavörður og rithöfundur, að þar gæti ég litlu við bætl. Og ég held að ég hafi nokkuð til rníns máls í þeim efnum. Það er há tala fólks sem hefur ált samskipti við Hilmar í bókasafninu í gegnum tíðina og lesið hvað liann hefur skrifað og skrafað í nærri fjóra áratugi. Eftir dálitla umhugsun, hvort ég ætti að freista þess að fjalla um Hilmar, Iét ég slag standa, að draga saman helstu atriðin um æli hans og störf, mér og öðmm til upprifjunar, - og þá er best að snúa sér að efninu. Hilmar Guðlaugur Jónsson kom í þennan heim 12. maí, 1932, í Fögmhlíð í Jökulsárhlíð í Norður-Múlasýslu, en fluttist til Keflavíkur, árið 1945, með foreldmm sínum. Hilrnar hóf nám í Menntaskóla Reykjavíkur, árið 1948, en hvarf frá námi þremur árum síðar, vegna heilsubrests. Hann hafði þó ekki sagt alveg skilið við menntagyðjuna. því svo fljótt sem hann hresstist, eða árið 1954, hélt hann að hætti margra ungra manna erlendis, - nánar tiltekið í Svartaskóla í París. Þar kynnti liann sér bókmenntir, heimspeki og stjórnmál, í þeim andlegum hræringum sem efstar vom í heimsborginni á þeim tíma. Þar hefst í rauninni rithöfundarferill Hilmars Jónssonar, því árið 1955 gefur liann út Nýjar hugvekjur og kom efnið mönnum nokkuð á óvart, en hefur staðið tímans tönn, því núna eftir 37 ár, verður varla bent á eina setningu, sem er úrelt eða fer á skjön við sannleikann og þegar grannt er skoðað í þetta rit er engu líkara en Hilmar hafi séð fyrir breytingar þær sem orðið hafa í Austur-Evrópu á seinustu tímum. Nokkur ár líða þar til Hilmar kveður sér hljóðs á ritvellinum, með Rismálum. Að venju er hann baráttuglaður. Leggur til omstu við þekktustu rithöfunda þjóðarinnar, sem em á öndverðum meiði við skoðanir hans í menningu, stjórnmálum, og bókmenntum, sem honum vom mjög hugleiknar og lét best að setja fram í ritgerðarformi. Næsta bók Hilmars, árið 1965, Ijallar um Israelsmenn og Islendinga, - þar sem hann leitast við að rekja saman þætti af sögu menningu Hebrea og Islendinga. Þar bendir hann á að margt sé líkt með ýmsum stöðum í Gamla testamenntinu og stöðum í fombókum íslendinga, svo líkar séu hugsanir í Síraksbók og í Hávamálum. 1 bókinni Foringjar falla, árið 1967, söðlar Hilmar um. Þetta er skáldsaga, - sögusviðið er Hænuvík (KelJavík), sögð í fyrstu persónu. Rauði þráðurinn eru ástir sögumanns og ungrar stúlku, en upp á niilli þeirra kemur harðvítugur bardagi söguhetjunnar við andaverur vonskunnar. I lokin stendur sögumaður einn uppi, en hefur þó von um framtíðina, sem nýráðinn æskulýðsfulltrúi í Hilmar og Elísabet Hænuvík. Söguhetjan er einhverskonar sið- ferðispostuli, sem endað gæti sem um- ferðartrúboði. Bókina „Kannski verður þú“ sendir Hilmar frá sér árið 1970, þar sem hann setur saman frásagnir úr eigin æfi og svo líka frænda síns Runólfs Péturssonar, sem var merkiskall og glúrinn náungi, sem að Hilmar hefur fengið margt að láni frá. Drepið er á atvikum úr lífi skálda og rithöfunda og sú spurning vaknar við lestur þeirrar bókar, hvers vegna Neandersdalurinn ræður mestu í bókmenntum, listum og tjölmiðlun á Islandi. Hilmar leggur verkefnið í hendur þeim sem vilja glíma við það. Eitt frumlegasta verk Hilmars er „Hunda- byltingin", árið 1976. Hundar á Islandi gera uppreisn gegn hundabanni og skipun um að hundar á almannafæri skuli skotnir. Þetta er gaman- og ýkjusaga og hundar stofna samtök sér til verndar og leita aðstoðar erlendis frá. Dragast inn í söguna, hetjur allt frá Rússlandi, Evrópu og Ameríku. Leiðtoginn, hundurinn Pjakkur, féll niður um vök á ís, eftir að hafa bjargað forsætisráðherranum á land. Hann fórnaði líft sínu, en byltingin heppnast og hætt var að drepa hunda. Líklega hefur engin bók Hilmars vakið meiri athygli samtímans og „Fólk án fatá' sem hann sendi frá sér árið 1973. Ýmislegt spaugilegt og alvarlegt gerðist í bæjarlífinu, sem Hilmari fannst ástæða til að fjalla um á gantansaman hátl. Þarna kemur fram nýr tónn í ritstíl Hilmars. Gamanið kárnar að vísu í bókarlok, þegar atburðarrásin fer að færast inn á bókasafnið og á málþing rithöfunda. I greinasafni sem Hiltnar gefur út árið 1977, spannar hann yfir vítt svið. Fjallar um deilur um úthlutun peninga ríkisins til rithöfunda. Ástandið á Keflavíkuiflugvelli fær sinn skammt og bréf er þarna til Úlfars um herinn. Þama eru líka sett á prent erindi sem Hilmar flutti í Ríkisúrvarpið, þar sem hann stingur á kílum þjóðfélagsins, tæpitungulaust. Aftast í þessari bók eru nokkur athyglisverð Ijóð, þar sem Hilmar sýnir á sér nýja hlið, en ekki var vitað fyrr að hann fengist við ljóðskáldskap. Hilmar hefur verið mjög gagnrýninn í 136 FAXI

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.