Faxi - 01.09.1993, Blaðsíða 28
Stekkjarkotssögnr II
— af Ingibjörgu Guðmundsdóttur og Magnúsi Gíslasyni.
Isíðasta tölublaði Faxa var lýst aðdraganda að
uppbyggingu Stekkjarkots og nágrenni þess á
Fitjum í Njarðvík ásamt sögunni af fyrstu
ábúendunum, þeim heiðurhjónum Jóni Gunnlaugssyni
og Rósu Ásgrímsdóttur. Eftir að búsetu þeirra lauk þar
árið 1887 liðu u.þ.b. 30 ár þar til búseta hófst þar á ný.
Víkur nú sögunni að þeim hjónum
lngibjörgu GuðmundsdóUur og Magnúsi
Gíslasyni. Árið 1917 flutti Ingibjörg í
Stekkjarkot. Kom hún sjóðleiðina frá
Hafnarfirði á árabát með böm þeirra hjóna
þau Alexander Lúðvík 6 ára, Gísla Björgvin
12 ára og Steinunni um tvítugt. Magnús,
maður hennar, stundaði sjó og var á bát sem
var gerður út frá Reykjavík og var til húsa á
Þingholtsstræti 26.
Nú hafði enginn búið í Stekkjarkoti frá
því Jón og Rósa fluttu þaðan eða í um 30 ár.
Aðkoman mun ekki hafa verið gæfuleg því
kotið var í niðurníðslu og þurfti algjörrar
endutTeisnar við. Meðan á uppbyggingunni
stóð, fékk fjölskyldan að búa í fjárhúsinu í
Tjamarkoti í Innri-Njarðvík, en aðstöðu til
að elda fékk Ingibjörg í útieldhúsinu í Akri
þar skammt frá. Ingibjörg var talin
dugnaðar og sóma kona og var jafnan
kölluð Imba í Stekk. Hún taldi ekki eftir sér
að sækja björg í bú og reri stundum sjálf til
fiskjar. Imba var góðum hæfileikum gædd
og sérstaklega hjálpsöm. Oft var hún kölluð
til sjúklinga og líknaði þeim. Állu því
margir henni gott að gjalda.
Steinunn, dóttir Ingibjargar og Magnús-
ar, bjó í Stekkjarkoti ásamt manni sínum,
Sigurði Böðvarssyni, sjómanni. Þar eign-
uðust þau sitt fyrsta barn, Guðmund, árið
1920. Á þessum tíma eru því tvær fjöl-
skyldur búandi í Stekkjarkoti. María, systir
Steinunnar, bjó í Reykjavík og starfaði sem
vinnukona á þessum tíma.
Fjölskyldan lifði á sjósókn. Matar-
kosturinn var fábreytilegur. Lifðu þau
aðallega á trosi, þ.e. fiskihausum og
þynnildum, fuglakjöti, eggjum og
skarfakáli. einnig fengu þau mjólk og aðrar
nauðsynjar í vöruskiptum fyrir fiskinn.
Imba var með hænsni og sjást enn rústimar
af hænsnakofanum sem hún lét smíða rétt
austan við kotið.
Mikill gestagangur var í Stekkjarkoti
enda ysta býlið í Innri-Njarðvíkurhverfinu,
bærinn í alfaraleið og rétt ofan við
þjóðleiðina (gamla Suðurnesjaveginn).
Á þessum tíma gengu börnin í Njarðvík
til skóla í Keflavík og komu þá börn úr
innra hverfinu við í Stekkjarkoti. Urðu þau
samferða á göngu sinni í skólann yfir Fitjar
sem oft á tíðum votxt erfiðar yfirferðar.
Þann tíma sem fjölskyldan bjó í
Stekkjarkoti missti Imba föður sinn og
Magnús, eiginmaður hennar, veiktist og var
lagður á sjúkrahús. Ágústa Sigurjónsdóttir,
þá ung og hressileg heimasæta í Akri,
reyndist Imbu mikil uppörvun og hjálp á
þessum erfiðleikatímum og svaf hún til fóta
í rúminu hjá Imbu í útieldhúsinu, þar sem
þrengsli voru mikil í baðstofunni.
Samanborið við aðstæður í dag, hefur
aðbúnaður verið vægast sagt frumlegur þó
ekki sé nema mannsaldur síðan. Eftir að
maður Imbu var orðinn sjúklingur, flutti
hún til Keflavíkur með fjölskylduna.
Hinn landskynni, keflvíksi söngvari,
Einar Júlíusson, segir svo frá að hann muni
vel eftir Imbu eftir að hún flutti til
Keflavíkur. Sat hann oft hjá henni í
Pálshúsi (það hús stóð á horninu á
Klapparstíg og Túngötu) þegar hún var að
spinna á rokkinn. Söng hann þá jafnvel
fyrir hana. Má segja að hann hafi sungið
sig inn í fjölskylduna, því seinna gekk hann
að eiga dótturdóttur Maríu Magnúsdóttur,
eða langömmubarn Imbu, Olöfu Hafdísi
Ragnarsdóttur. Giftu þau sig í Innri-
Njarðvíkurkirkju þann 26. nóvember 1966.
Við uppbyggingu Stekkjarkots nú var
m.a. stuðst við líkan af kotinu sem Gísli
Björgvin smíðaði en hann var mikill og
góður handverksmaður. Til dæmis er líkan
af Garðskagavita sem hann smíðaði til í
eigu margra Suðumesjamanna.
Magnús lést 4. feb. 1924 en Imba lifði
mann sinn í 39 ár og lést 13. feb. 1963. Þau
hjónin voru jarðsett í kirkjugarðinum í
Innri-Njarðvík.
Ingibjörg Guðmundsdóttir »g Magnús Gíslason
ÞAKKARA VARP
Hjartcins þakklœti fœri ég öllum
Þeim er heiðruðu mig nírœðan með
heimsóknum, gjöfum og skeytum.
Guð blessi ykkur öll, leiði og verndi.
Karvel Ögmundsson
Bjargi, Ytri-Njarðvík.
SókabúÍ KefitaVíkur
Bók mánaðarins
30% afsláttur
papi'oni: hf.
Brekkustfg 39 - 260 Njarðvik - Sími 92-14388 - Fax 92-15266 - Kt. 490588-2139 - Vsk. 9129
156 FAXI