Faxi - 01.09.1993, Side 30
Palestínumenn og
ísraelir friðmælast
13. september var undirritaður í
Washington friðarsáttmáli milli Palestínu-
manna og Israela. Samkvæmt samkomu-
laginu verður á kerfisbundinn hátt reynt að
leysa deilumál þjóðanna á næstu árum.
Yasser Arafat, leiðtogi PLO. sagði þjóð sína
vona að nú hæfist endalok tímabils þjáninga
sem staðið hefði alla þessa öld.
Rabin, forsætisráðherra Israels, sagði að
nú yrði reynt að binda enda á átökin.
Undirskrift sáttmálans fór fram á flötinni
framan við Hvíta húsið og var atburðinum
sjónvarpað beint um heim allan.
Yitzhak Rabin (t.v.) og Yasser Arafat
takast í hendur við tilflnningaríka athöfn í
Washington í gær þar sem friðarsam-
komulag Israela og PLO var undirritað. I
fréttaskeytum segir að á stundinni þegar
myndin var lekin hafi verið sem klukkan
stöðvaðist. Míllí Rabins og Arafats stendur
Bill Clinton Bandaríkjaforseti.
Sautján ljóðalög
eftir Kristin Reyr
Sautján Ijóðlalög er heiti á nýjum
geisladiski sem út er kominn á vegum
höfundar, Kristins Reyrs. Geisladiskurinn
hefur að geyma eldri sem nýrri lög
höfundar og hefur ekkert þeirra heyrst
opinberlega fyrr, en nokkur þeirra verið
gefin út í nótnaformi.
Jafnframt því að vera höfundur laganna
hefur Kristinn Reyr samið átta Ijóðanna.
Hin Ijóðskáldin eru Davíð Stefánsson,
Guðmundur Böðvarsson, Jóhann Jónsson,
Karl Isfeld, Magnús Asgeirsson, Steinn
Steinarr, Theódóra Thoroddsen, Þorsteinn
Valdimarsson og Öm Arnarson.
Fjöldi þekktra listamanna sér um flutning
Ijóðalaganna á þessum nýja geisladiski.
Fyrst skal nefna óperusöngvarana Elínu
Ósk Óskarsdóttur sópran, Guðmund
Sigurðsson tenór, Signýju Sæmundsdóttur
sópran, Sigurð S. Steinsgrímsson bassa,
Þorgeir Andrésson tenór og Þóru Einars-
dóttur sópran. Einnig prýða flutninginn
karlaraddir úr Skagfirzku söngsveitinni.
Píanóleikarar eru þau Anna Guðný Guð-
mundsdóttir, Gróa Hreinsdóttir, Hólmfríður
Sigurðardóttir, Lára S. Rafnsdóttir, Ólafur
Vignir Albertsson og Þóra Fríða
Sæmundsdóttir. Sellóleikari er Oliver
Kentish.
Carl Billich og Eyþór Þorláksson útsettu
lögin. Björgvin Þ. Valdimarsson tónlistar-
kennari var höfundi til aðstoðar við val laga
og flytjenda, auk þess sem hann hafði
umsjón með upptökum og útgáfu geisla-
disksins. Hljóðritun Ijóðalaganna fór fram í
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í maí 1993 og
um upptöku þeirra sá Halldór Víkingsson.
Lítlill bæklingur fylgir geisladisknum og
het'ur hann m.a. að geyma öll söngljóðin
geisladiskur og prentun: Nimbus og Prisma
sá um filmuvinnslu. Dreifing í síma 10258.
Kristinn Reyr hefur lengi fengist við
tónsmíðar og hafa mörg laga hans ver flutt
opinberlega, ýmist á hljómplötum eða í
útvarpi. Meðal þeirra sm fleistir þekkja er
Amorella setn Haukur Morthens gerði
víðfrægt á sínum tíma, bæði hér á landi og í
Danmörku. En auk þessa hafa Guðmundur
Jónsson, Kristinn Hallsson, Guðrún Tómas-
dóttir og fleiri listamenn flutt lög höfundar í
gegnum tíðina.
Gefnar hafa verið út fjölmargar
nótnabækur með lögum og Ijóðum Kristins
Reyrs og einnig má nefna ritverkið Leikrit
og Ijóð, auk nýrri Ijóðabóka. Leikrit hans
liafa verið flutt á sviði, í útvarpi og sjón-
varpi.
Kynlíf og
hreyfihömlun
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra,
heldur námskeið um kynlíf og hreyfi-
hömlun dagana, 27. og 28. nóvember næst-
komandi.
Fjallað verður um tengsl fötlunar við
tilfinningalíf og sjálfsmynd, samlífsvanda-
mál, líkamlega áhrif fötlunar á kynlíf,
getnaðarvarnir og kynsjúkdóma, hjálpar-
læki kynlífsins o.fl. Einnig verður boðið
upp á hópefli. Námskeiðið skiptist í fyrir-
lestra og hópstafl'.
Námskeiðið er ætlað hreyfihömluðu
fólki. Makar/sambýlisfólk er einnig vel-
komið.
Meðal fyrirlesara eru Einar Hjörleifsson,
sálfræðingur, Erla Jónsdóttir félagsráðgjafi,
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, hjúkrunar- og
kynfræðingur og Rannveig Pálsdóttir lækn-
ir. Hreyfihamlaðir einstaklingar fjalla um
viðhorf til náinna samskipta og kynlífs.
Námskeiðið verður haldið í húsnæði
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í Reykja-
dal í Mosfellssveit.
Námskeiðsgjaldi verður stillt í hóf og
þátttakendur utan Stór-Reykjavíkur-
svæðisins eru styrktir til þátttöku.
Tilkynnið þátttöku fyrir mánudaginn 15.
nóvember til Lilju Þorgeirsdóttur, félags-
málafulltrúa Sjálfsbjargar, landssambands
fatlaðra í síma 91-29133. Þar fást einnig
nánari upplýsingar um námskeiðið.
BRÓÐURÞEL VORT
Til sœlueyja svífum vér ú burt
á sama tíma er hvorki vott né þurrt
í búðum eða á borði flóttamanns
en blóð og lík sem náðarmeðul hans.
s
I œðri sölum eru veizluhöld
og átvögl svo sem kelturakkafjöld
og menn sem éta meira en yfir sig
unz maginn ríður heilsunni á slig.
Úr austri og vestri andar köldu á ný
en atómsprengjumfjölgað samkvœmt því
að Surtarlogi svelgi allt um kring
og signi að lokum heimsins tortíming.
Svo hermdu fregnir helzt á vorri tíð
af hjálprœði til bjargar þjáðum lýð
og rymja enn þótt rofað hqfi til
og reiðarslagi frestað oss í vil.
En œðrulaus með árdagsroða á kinn
að aftni snýst hún Jörð um möndul sinn.
158 FAXI