Faxi - 01.05.2007, Side 2
Vegleg gjöf Kaupfélags Suðurnesja og Gunnars Sveinssonar:
Stofna styrktarsjóð fyrir nemendur
Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Á síðasta ári varð Fjölbrautaskóli Suðurnesja 30
ára og um sama leyti hélt Kaupfélag Suðurnesja
upp á 60 ára afmæli sitt. Við þetta tækifæri
ákváðu forystumenn Kaupfélagsins og Gunn-
ar Sveinsson, fyrrverandi kaupfélagsstjóri, að
standa sameiginlega að stofnun styrktarsjóðs
fyrir skólann. Tilgangur hans er að efla og auka
veg skólans með því að styrkja nemendur til
náms, styðja við starfsemi sem eflir félagsþroska
nemenda og veita útskriftanemum viðurkenn-
ingar fyrir frábæran árangur í'námi og starfi.
Stofnfé sjóðsins er 10.000.000 kr. er skipt-
ist þannig að Kaupfélag Suðurnesja greiðir
5.000.000 og Gunnar Sveinsson 5.000.000 kr.
Varsla og ávöxtun sjóðsins verður í Sparisjóðn-
um í Keflavík.
Miklar taugar til skólans
Gunnar afhenti Ólafi J. Arnbjörnssyni skólameist-
ara stofnféð við brautskráningu á vorönn nú í maí og
kynnti jafnframt skipulagsskrá sjóðsins. Þar kemur
fram að sjóðurinn getur tekið við gjöfúm frá fyr-
irtækjum og gömlum nemendum á merkisafmælum
skólans. Gunnar var fyrsti formaður skólanefndar FS
og gegndi því starfi fyrstu tíu árin. Hann segist hafa
miklar taugar til skólans af þessum ástæðum. Gunnar
leggur sjálfúr til helming stofnfjárins á móti Kaupfélagi
Suðurnesja þar sem Gunnar var kaupfélagsstjóri í
fjörutíu ár. Gunnar segir að með góðri ávöxtun ætti að
vera unnt að úthluta einni milljón lcróna úr sjóðnum á
hverju ári. Það verk verður í höndum sérstakrar stjórn-
ar. Hana skipa skólameistari og fulltrúar stofnenda
sjóðsins, Guðbjörg Ingimundardóttur fyrir Kaupfélag-
ið og Ragnheiður Gunnarsdóttir fyrir FS.
Hjónin Fjóla Sigurbjörnsdóttir
og Gunnar Sveinsson
Menntað og þroskað samfélag
í ávarpi sem Gunnar Sveinsson flutti við þetta
tækifæri sagði hann m.a.:
„Mér er það mikil ánægja að vera hér meðal ykkar
í dag. Og ég vil byrja á að óska þeim nýútskrifuðu
sérstaklega til hamingu með þennan áfanga sem þau
nú hafa náð. Tíminn liður hratt. Fjölbrautaskólinn átti
30 ára afmæli s.l. haust. Var þess minnst með glæsilegu
afmælisriti og afmælisveislu. Ég minnist þess oft sem
formaður undirbúningsnefndar hvað gaman var að
vinna að stofnun skólans. Samstaðan var alveg sér-
stök, allir voru svo jákvæðir. Það var sama við hvern
maður talaði. Ég held að ég hafi mætt á nær allar
útskriftarhátíðir skólans síðan hann var stofnaður. Mér
finnst allaf gaman að horfa á þetta glæsilega prúðbúna
unga fólk taka við viðurkenningu fyrir unnin afrek
hver eftir sinni getu. Og ekki er síður gaman að hlusta
á annað efni.
Áhrif Fjölbrautaskólans á mannlíf á Suðurnesjum
hafa verið mikil og þau hafa stuðlað að viðurkenningu
á Suðurnesjum sem menntaðs og þroskaðs samfélags.
Á Suðurnesin er nú ekki lengur litið á stað, þar sem
brauðstritið yfirgnæfi menntun og menningarlíf,
heldur sem menntað samfélag sem vert er að taka tillit
til. Ég vil nota tækifærið og þakka skólameisturum og
nefndarmönnum í skólanefnd, kennurum og öðrum
starfsmönnum skólans, fyrir frábæra samvinnu og
samstöðu meðan ég starfaði í skólanefnd og þá sér-
staklega þeim fóni Böðvarsyni og Hjálmari Árnasyni.
Allt þetta fólk, ekki síður þeir er nú starfa, hefur skapað
mjög góðan skóla sem við Suðurnesjamenn getum
verið hreyknir af.“
Hvarertíkallinn?
Gunnar sagði að lokum i ávarpi sínu:
„Þrjátíu ára afmæli er ekkert stór afmæli en samt
vaknaði spurningin. Hvað á að gefa
afmælisbarninu? Þegar ég var að alast upp voru
barnaafmæli vinsæl eins og þau eru enn í dag og þegar
ég var á Brekkubrautinni og börnin mín voru lítil
var afmælisgjöfin alltaf 10 krónur. Ef lengi dróst að
afhenda gjöfina varð afmælisbarnið áhyggjufúllt og
spurði gestinn “Hvar er tíkallinn”.
Félagsmenn í Kaupfélagi Suðurnesja á svæði fjöl-
brautaskólans eru rúm tvö þúsund.
Gjöfin er þvi ifá öllum byggðum Suðurnesja sem örlít-
ill þakklætisvottur fyrir frábært
þrjátíu ára starf. Ég vil að lokum biðja okkar ágæta
skólameistara Ólaf Jón að koma hingað og talca við
þessari gjöf frá Kaupfélagi Suðurnesja og mér með
árnaðaróskum um bjarta og gifturíka framtíð skólans á
ókomnum árum. Öllum Suðurnesjabúum til heilla.“
Útskriftarnemendur á vorönn 2007
w _ 1.. _ JiL
npp« á m pll IP éWv* V 4M mUM -
BphB 'N iMm M m ^ •§“ TOf 4 I ]ff T, prf 1 l jgjSgA
wmL i i Mfe tlwJhm 1IH\’ íli
2 FAXI
Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík.
Skrifstofa: Grófin 8,230 Reykjanesbær, póstiiólf 182.
Ritstjóri: Eðvarð T. Jónsson, netfang: edvardj@gmail.com
Sími 825 1023.
Blaðstjórn: Karl Steinar Guðnason formaður.
Kristján A. Jónsson, Helgi Hólm, Magnús Haraldsson
og Eðvarð T. Jónsson.
Allir myndatextar í þessu og öðrum heftum Faxa eru
Öll prentvinnsla: Stapaprent ehf. Grófut 13c - 230 Keflavík.
Sími 421 4388 - Nettáng: stapaprent@mitt.is
Netfang v/auglýsinga: helgiholm@vogar.is
Sími vegna auglýsinga 699 2126
Forsíðumynd: Gunnuhver á Reykjanesi.
Ljósmyndina tók Steinþór G. Hafsteinsson, félagi í Ljósopi.