Faxi - 01.05.2007, Page 3
Krakkar í 10. bekk Njarðvíkurskóla tóku þátt
t unglinganámskeið URR veturinn 2006. Með
þeim á myndinni er Sigurður Símonarson,
Rótarýfélagi og annar aftveimur lciðbein-
ettdum á námskeiðinu. Myndina tók binn
leiðbeinandinn, Erlingur J. Leifsson.
Myndirnar tvcersýna tvo upprennandi rœðu-
snillinga á nátnskeiðinu
Nú í byrjun júní var uindæmisþing Rótarý-
umdæmisins á íslandi haldið í Reykjanesbæ í
umsjón Rótarýklúbbs Keflavíkur. Klúbburinn gaf
i þessu tilefni út blað sem dreift var á öll heimili
a ^uðurnesjum og víðar og ætlað var að kynna
•búum svæðisins klúbbinn, félagssvæði hans og
Rótarý-hreyfinguna almennt. Rótarýklúbbur
Keflavíkur hefur beitt sér fyrir margskonar verk-
efnum. Meðal þeirra má nefna átak sem Sam-
fúlagsþjónustunefnd Rótarý á íslandi hefur staðið
fyrir undanfarin tvö ár og felst í því að kenna
grunnskólanemendum að tjá sig opinberlega og
undirbúa þau þannig betur fyrir lífið. Verkefn-
‘ð kallast URR-ið: Unglinganámskeið Rótarý í
ræðulist. Formaður samfélagsþjónustunefndar er
Njarðvíkingurinn Erlingur J. Leifsson. Faxi fékk
góðfúslegt leyfi Erlings til þess að birta eftirfar-
andi upplýsingar þar sem þetta mikilvæga verk-
e'fni er kynnt nánar. Með Erlingi í nefndinni eru
Ragnar J. Gunnarsson, Rótarýklúbbi Keflavíkur
°g Ihomas Möller, Rótarýklúbbi Reykjavíkur-
Nliðborg. Myndirnar með þessari grein eru frá
skólum á Suðurnesjum þar sem þessi námskeið
v°ru haldið.
Hvatt til sjálfsnáms
..Markmiðið er að sérfræðingar í því að tala
- Rótarýfélagar - kenni unglingum að standa við
Pontu og tala við hópinn, halda stutta ræðu, oftast
1 fyrsta sinn og hvetja síðan til sjálfsnáms. Verk-
fuið var kynnt fyrir öllum Rótarýklúbbum á
•slandi haustið 2005. Einnig sendum við bréf til
nmdæmisstjóra og fengum mjög góðan stuðning.
Mikill áhugi er fyrir þessu hjá unglingunum og
skólastjórnendum. Verkefninu var mjög vel tekið
°g nokkrir skólar voru þegar á biðlista að fá það til
s>n haustið 2005.
Við miðum við að það taki einungis 2-3 klukku-
siundir að halda þetta námskeið í hverjum bekk og
aðeins einu sinni með hverjum árgangi, svo þetta
er ekki mjög tímafrekt. Hins vegar er þetta mjög
gefandi fyrir þá sem taka þátt í því og getur orðið
vendipunktur í lífi þeirra ungmenna sem verða þess
aðnjótandi.11
Langtímaverkefni
Nefndin hélt námskeið í Reykjavík 12. október
2005 fyrir væntanlega leiðbeinendur frá hinum
ýmsu rótarýklúbbum og annað leiðbeinendanám-
skeið var haldið fyrir Rótarýklúbb Héraðsbúa á
Egilsstöðum 2. maí 2006. Nefndin setti síðan upp
eigin heimasíðu undir heimasíðu umdæmisins
www.rotary.is og hafa verið settar þar inn upplýs-
ingar um framvindu verkefnisins.
Marlonið nefndarinnar með þessu var að ná til að
minnsta kosti eins skóla í hverju fræðsluumdæmi
og síðar meir að ná til eins skóla í hverju klúbb-
umdærni. Svona verkefni er hins vegar langtíma-
verkefni, sem með tímanum getur náð inn í alla
grunnskóla landsins og komið öllum íslenskum
unglingum af stað í átt að meiri tjáningu. Það má
einnig hugsa sér að kynna þetta fyrir félagsmið-
stöðvum um allt land.
Bætt lífsleikni
Nokkrir klúbbar hafa þegar stigið fyrstu skrefin,
allmargir klúbbar hafa þegar haft samband við
fræðslufulltrúa í sínu byggðarlagi og kynnt málið
fyrir þeim og fengið góðar viðtökur. Haft hefur
verið samband við skólamálayfirvöld til að kynna
það fyrir skólastjórum og kennurum. Þá hafa þegar
nokkur námskeið verið haldin bæði á Suðurnesjum
og á höfuðborgarsvæðinu.
Það er von okkar að þetta verkefni haldi áfram
úti í klúbbunum og verði að árlegu framlagi til
að stuðla að bættri lífsleikni unglinganna okkar.
Nefndin mun áfram verða tilbúin til að aðstoða
félaga við undirbúning og eftir föngurn að halda
kynningar inni í klúbbunum fyrir leiðbeinendur."
FAXI 3