Faxi - 01.05.2007, Qupperneq 13
aðir til samveru, þá er léttur hádegisverður og
eftir hádegi er lögð áhersla á að allir íinni sér
eitthvað til afþreyingar. Sem dæmi má nefna
gönguferðir, ferðir á kafhhús og listasöfn,
föndur, bingó, billiard, handavinna og margt
fleira. Fyrir tilstilli styrkja frá félagasamtökum,
fyrirtækjum og einstaklingum hefur Björgin
getað eflt starfsemina en nú síðast voru keypt
líkamsræktartæki, enda vel þekkt að hreyf-
ing hefur jákvæð áhrif á andlega líðan. Eitt af
meginmarkmiðum Bjargarinnar er að auka
virkni félaganna í samfélaginu. Þetta er gert
með því að stuðla að þróun starfsendurhæf-
mgar og endurhæfingu innan og utan stofn-
anna. Björgin reynir einnig að hjálpa félögum
út á vinnumarkaðinn aftur, en til mikils er að
vinna ef næst að virkja þann mannauð sem býr
1 hverju samfélagi. Með starfsemi Bjargarinn-
ar er meðal annars reynt að koma í veg fyrir
félagslega einangrun, sem er einn áhrifaþáttur
sem leiðir til og viðheldur geðröskunum.
Sjálfshjálparhópar í Björginni
I húsnæði Bjargarinnar eru starfræktir
sjálfshjálparhópar. Sjálfshjálparhópur fyrir þá
sem kljást við geðraskanir hittist á hverjum
fimmtudegi kl 20:00 en aðstandendahópurinn
hittist fyrsta þriðjudag í mánuði kl: 20:00. Allir
eru velkomnir sem telja sig geta notið góðs af.
I Björginni er unnið
á jafningjagrundvelli
I Björginni er unnið eftir aðferðafræði um
notendasamráð og valdeflingu einstaklinganna
en það er lykilþáttur í því að virkja þá og hjálpa
þeim að vera hluti af samfélaginu. Starfsemin
er byggð þannig upp að allt starf er unnið á
jafningjagrundvelli, félagar og starfsfólk vinna
sameiginlega að öllum verkefnum. Vikulega
eru húsfundir þar sem farið er yfir verkefni
sem unnið er að hverju sinni. Þannig eru félag-
ar jafnt og þétt upplýstir um það sem er að ger-
ast og þeir hvattir til að koma með hugmyndir,
Frá íþróttasalnum í Björginni. Hœgt var að kaupa þessiþrektœki í salinn með samfélagslegum
stuðningi ónafngreindra aðila.
athugasemdir eða annað sem þeim liggur á
hjarta varðandi starfsemina. Engar meiriháttar
ákvarðanir eru teknar án samráðs við félagana.
Markmiðið með öllu þessu er að fá félagana
til að vera virka í uppbyggingu starfseminnar.
Reynslan sýnir að því meira traust sem félög-
unum er veitt því meiri ábyrgð taka þeir.
Félögum í Björginni fjölgar ört
í Björgina kemur fólk frá öllum sveita-
félögum á Suðurnesjum. Fjöldi þeirra sem
sækir sér þjónustu í Björginni er stöðugt að
aukast og eru félagar nú orðnir um 70 talsins,
en á hverjum degi koma að meðaltali um 20
manns. Gera má ráð fyrir að þörfin aukist
enn frekar.
Það geta allir lent í því að missa geð-
heilsuna um lengri eða skemmri tíma
Fólk sem kemur í Björgina í fyrsta skipti
spyr oft “Hvernig fólk er hér?” svarið við því
er einfalt, það er bara venjulegt fólk eins og
ég og þú. Það geta allir lent í því að missa
geðheilsuna. Þeir sem sækja Björgina eru
komnir mislangt í sínu bataferli. Surnir hafa
glímt við veikindi í rnörg ár og þurfa stað eins
FAXI 13