Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.2007, Blaðsíða 18

Faxi - 01.05.2007, Blaðsíða 18
Garðar Sigurðsson: Allir stofnfélagar Stakks að undanteknum Heimi Stígssyni, sem tók myndina við Skátaheimilið í Keflavík. Björgunarsveitin Stakkur - og þáttur Rótarý í Keflavík í stofnun hennar Fyrsta hugmynd af stofnun björgunarsveit- arinnar í Keflavík kom fram árið 1963 er Garðar Ólafsson tannlæknir úr Keflavík villtist frá félögum sínum á ferð um Stóra- sand norðan Langjökuls. Hópur félaga hans í Rotarýklúbbi Keflavíkur tókst á hendur ferð til Hveravalla og undirbjó þar skipulagða leit að Garðari. Hann birtist heill á húfi við búðir þeirra áður en leitin hófst. I tilefni af þessu eftirminnilega hvarfi og aft- urhvarfi Garðars Ólafssonar orti skáldið Krist- inn Reyr eftirfarandi vísu: Týndurfannst en fundinn hvarf að fundnum týndur leita þarf En týndist þá svo fundinn fer að fínna þann sem týndur er. Fjallaferðir frá Suðurnesjum Frá árinu 1960 hafði hópur manna af Suð- urnesjum komið sér upp vel útbúnum ferða- bifreiðum og stundaði fjallaferðir af miklum áhuga ásamt félögum og fjölskyldum sínum. Allmargir Rotaryfélagar voru í þessum hóp og þeirra á meðal voru nokkrir þeirra er tóku þátt í fyrrnefndri leit að Garðari Ólafssyni, svo sem Garðar Sigurðsson Knútur Höiriis, Helgi S. Jónsson, Jón Tóm- asson og Skafti Friðfinnsson. Síðar bættust í hópinn Brynjar Þórðarson, Gunnar Mattason, Heimir Stígsson, Brynleifur Jóhannesson ásamt Garðari Sigurðssyni o.fl. Á þessum árum voru óbrúuð jökulvötn aðal farartálminn á hálendinu. Að rétta hjálpandi hönd Árið 1966 var ég á ferð norðan Hofsjökuls ásamt félögum mínum og lenti í því að festa bíl minn í austari Jökulsá við Ulviðrahnúka. Þar eð við vorum einir á ferð var talsverð hætta á ferðum. Svo vel bar til að noldcrir ferða- félagar okkar sem voru á ferð um Sprengisand gátu komið okkur til hjálpar. Sögu af atburði þessum sagði ég hér á Rótarýfundi fyrir margt löngu. Sá atburður og fórnfýsi bjargvætta okkar vakti mig og félaga mína til alvarlegr- ar íhugunar um hversu mikilvægt það sé að ferðalangar hafi aðgang að aðstoð fólks með nauðsynlega þekkingu á ferðum um hálendi landsins. Flestir þeirra sem komu mér og félögum mínum til hjálpar í þessu tilfelli voru meðlimir í björgunarsveit Ingólfs hjá SVFl í Reykjavík. Með þessu fólki höfðum við þá oft átt sam- leið á fjöllum og oftar en ekki rétt hvort öðru hjálparhönd. En þarna kom fram svo milcil fórnfýsi að það gat eJdci annað en vakið að- dáun allra viðkomandi. í framhaldi af þessum atburði komst slcriður á umræðuna um hvort við gætum elcki einnig lagt olckar af mörkum í slíkum málum. 18 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.