Faxi - 01.05.2007, Qupperneq 19
Efling björgunarstarfs
á Suðurnesjum
Þrátt fyrir þetta hélt Stakkur ótrauður áfram
sínu striki í þá átt að byggja upp öfluga björg-
unarssveit á Suðurnesjum. Vert er að geta
þess að þegar þetta gerist er engin starfandi
björgunarsveit á svæðinu en þó skráðar sveitir
í Sandgerði og Höfnum. Aðalmarkmiðið með
stofnun Stakks var að byggja upp og efla björg-
unarstarf á Suðurnesjum, sem í dag má sjá að
hefur borið góðan árangur. Sú saga er efni í
frásögn út af fyrir sig sem verður örugglega
sögð síðar.
BJÖRGLNARSVEITIN
STAKKLR
1968 — 1988
Faxi sagði ítarlega frá björgunarsveitinni Stakki
a 20 ára afmœli hennar. Faxi er elsta héraðs-
hmarit ísamfelldri útgáfu á íslandi ogstórmerk
beimild um sögu og mannlíf á Suðurnesjum á
bðinni öld.
Stakksfélagar í œfingarferð
Björn Stefánsson:
Erfið leit
Það var kuldalegt um að litast, er Stakks-
menn voru kallaðir út til leitar aðfaranótt 8.
mars 1969. Frostið var 18°, vindhraði allt að
12 stigum og tveir bátar týndir einhvers stað-
ar út af Garðskaga, að talið var. Bátar þessir
voru Fagranes frá Akranesi, sem var að
korna úr róðri og Dagný á leið frá Hornafirði
til nýrrar heimahafnar í Stykkishólmi. Mikil ísing var, og þeir bátar sem náð höíðu landi,
voru hjúpaðir tuga tonna klakabrynjum.
Talið var, að rekald og gúmbáta gæti borið að landi einhversstaðar á svæðinu frá Stafnesi
til Keflavíkur, og var björgunarsveitum raðað á þessi svæði til leitar, því miklu skipti að ná
til þeirra sem hugsanlega hefðu komist í björgunarbáta áður en þá ræki upp í kletta.
Stakksfélögum var falið það hlutverk að fylgjast með svæðinu milli Garðs og Keflavíkur.
Það lenti í hlut okkar Gunnars Mattasonar að vakta þann hluta Bergsins, sem hæst stendur
og mest áveðurs, en á hluta þess svæðis er nú að rísa höfn.
Þarna þræddum við bergbrúnina fram og aftur í samtals 18 klukkustundir og skyggndumst
eftir reka. Aðstæður voru eins og þær gerast allra verstar. Stöðug ágjöf og sjórok var yfir
brúnina og allt sýlað og svellbólgið, en eins og fyrr segir var afspyrnurok og brunagaddur.
Erfitt var að fóta sig á flughálu grjótinu og iðulega urðum við að fleygja okkur niður á milli
steina og ríghalda hvor um annan, til að vindhviðurnar feyktu okkur ekki fram af brúninni.
Við áðum nokkrum sinnum smástund í dyraskoti vitans og nörtuðum í beinfreðnar
appelsínur en þar kom að Gunnar varð að hætta þeirri iðju, því svo var fast frosið saman
anorakshettan og hár Gunnars og skegg, að hann gat ekki lengur opnað munninn nægilega
til að geta bitið í appelsínuna.
Því miður bar þessi erfiða leit ekki árangur, en þó fundum við, undir það að leit var hætt,
gaskút og lestarborð í hellisskúta í Bergvík. Var það talið vera úr öðrum livorum bátnum.
Einnig fundu Eldeyjarmenn úr Höfnum björgunarhring úr Fagranesinu við Garðskaga.
Fleira er mér ekki kunnugt um að fundist hafi.
í þessum hörmulegu sjóslysum týndust sex vaskir sjómenn..
1 SBK hópferðir / bílaleiga / feröaskrifstofa • Grófin 2-4 • 230 Keflavík • Reykjanesbær • Sími 420 6000 • Fax 420 6009 • sbk@sbk.is
53 c 0 i hópferöir • bílaleiga • ferðaskrifstofa
FAXI 19