Straumar - 01.07.1927, Side 7
STRAUMAR
101
prófessor, dr. phil., Pál Eggert Ólason (sjá Menn og mennt-
ir IV, bls. 651—655).
Kveðskapur síra Jóns sýnir oss innilegan trúmann,
gæddan miklum mannkostum. Eigi þykja ljóð hans þó
ávalt sem vönduðust að formi. Samtíð hans hefir metið
þau mikils, en nú heillar megnið af andlegum kveðskap
þeirrar aldar lítt hugi annara en fræðimanna.
Síra Jón var talinn mikill gáfumaður og afbragðs
ræðumaður. Synir hans voru merkir gáfumenn, síra .Tón
á Melum, síra Þorsteinn í Holti undir Eyjafjöllum og Jón
Vestmann, sem Tyrkir námu á brott ásamt móður hans.
Hann þótti hugvitsmaður mikill og komst til vegs syðra,
en fór síðan tíl Danmerkur og gekk þar í konungsþjón-
ustu (sbr. Tyrkjaránið á íslandi 1627, Rv. 1906—9, bls.
317—33^ (Jtalinn er þó einn frægur niðji síra Jóns, .éótt-
-»ísona^sonur hans, sem virðist hafa kipt í kynið til lang-
afa síns um mælskulist, Jón Skálholtsbiskup Vídalín.
Sigurður Skúlason
mag. art.
Gluðbrandur biskup Þorláksson,
dáinn 20. júlí 1627.
Á þessu sumri, 20. júlí, eru þrjár aldir liðnar síðan
Guðbrandur Hólabiskup Þorláksson andaðist.
Hann sat lengst á biskupsstóli allra þeirra, sem bisk-
upar hafa verið á landi hjer, 56 ár. Og á hverju starfs-
ári afkastaði hann meiru en flestum öðrum auðnast, svo
að”eigi er kyn, þótt viða sæist eftir hann sporin, og margt
bæri menjar hans.
Æfi hans var svo viðburðarík, að þess er enginn kost-
ur, að segja sögu hans í stuttri grein. Hann er fæddur
1542 (eða 1541) á Staðarbakka í Miðfirði. Var hann af
mjög góðum kominn í föðurætt, en í móðurætt var hann