Straumar - 01.07.1927, Page 10
104
STEAUMAR
orði hans, og í hverju húsi sátu þeir, sem geymdu minn-
ing Jóns biskups en lítilsvirtu Ólaf og lögðu fæð á þann
sið, sem hann boðaði.
Það var vandasamt sæti fyrir ungling á þrítugs aldri
að setjast í. En menn fundu fljótt, að í það var setst fast
og óhikað. Þórunn á Grund fær bréf frá unga biskupin-
um, er sýna henni, að bezt muni fyrir hana að hafa sig
hæga. Og aðrir komust vonum bráðar að hinu sama. Hér
var kominn alt annar maður en Ólafur Hjaltason.
Gfuðbrandur biskup er engin dýrlingsmynd, tær og
lýtalaus, með geislabaug um höfuðið. Hann er kynborinn
íslenzkur stórhöfðingi með skörpum dráttum, fögrum og
mikilúðlegum en alls ekki lýtalausum. Ekki verður um
það deilt, að hann er að gáfum, starfsþoli og viljaþreki
einn í fremstu röð þeirra, sem uppi hafa verið á íslandi
á öllum öldum. jEn það verður ekki af honum skafið, að
sorglega mikið af þessum miklu guðs gáfum eyddist í mála-
þras fyrii sjálfan hann og aðrar þarflausar og hugsjóna-
snauðar ýfingar við höfðingja landsins. Dekur hans við
konungsvaldið var og stórum vítavert og það, hve oft
hann gekk á snið við alþingi og sjálfræði landsmanna,
enda var ekki yfir því þagað.
En alt þetta verður smátt við hlið hinnar risavöxnu
aflraunar í þágu hans miklu hugsjónar: Að efla guðs ríki
og hans dýrð með þjóð sinni. I þágu þeirrar hugsjónar
brautst hann í því, að fullkomna sem bezt prentsmiðju
þá, sem hér var til áður. Og svo hóf hann bókaútgáfu í
svo stórum stíl, að enginn maður einn á Norðurlöndum
mun fyr né síðar hafa verið þar jafnoki hans að tiltölu.
Má sérstaklega nefna þar þýðing hans og útgáfu á allri
biblíunni 1584 og sæg allskonar guðsorðabóka í bundnu
máli og óbundnu.
En starf mikilmennanna er ekki bundið við það eitt,
sem þeir vinna sjálfir, heldur hleypa þeir krafti gróand-
ans í alt, sem umhverfis þá er. Svo var og um Guðbrand.
Ágætir starfsmenn spruttu upp alt umhverfis hann, knúð-
ir fram af áhuga hans og þeim starfsmöguleikum, sem
hann skapaði þeim, menn eins og Arngrímur lærði, frændi