Straumar - 01.07.1927, Side 12
106
STEAUMAR
Prestastefnan 1927
hófst mánudag 27. júní með guðsþjónustu í Dómkirkjunni,
þar sem annar prestur við Dómkirkjuna sr. Friðrik Hall-
grímsson prédikaði út af orðunum í Jóh. 20,21. Því næst
tók vígslubiskup Geir Sæmundsson synoduspresta til altaris.
Kl. 4 e. h. var prestastefnan sett í húsi K. F. U. M.
og voru þá komnir til stefnunnar 8 prófastar, 19 prestar
og allir kennarar guðfræðideildarinnar — alls 30 andlegr-
ar stéttar menn. Síðan bættust níu í hópinn.
í upphafi fundar var sunginn sálmur og bæn flutt af
biskupi, sem að því loknu gaf ítarlegt yfirlit yfir umliðið
fardagaár. Byrjaði hann á því að minnast tveggja látinna
mætispresta, séra Eggerts Pálssonar prófasts á Breiðabóls-
stað og séra Arna Jóhannessonar í Grenivík, er látist höfðu
á fardagaárinu. Af prestsekkjum hefði ein látist á árinu,
frú Valgerður Jónsdóttir, frá Völlum í Svarfaðardal.
Tala þjónandi presta væri nú 107 og auk þess 2 að-
stoðarprestar. Prestaköllin væru alls 111, en 5 væru prests-
laus í bili. Af prestaköllum, sem nú væru, ættu þrjú að
falla úr sögunni við næstu prestaskifti (sem sé Bægisár-,
Sanda- og Lundaprestakall), sainkv. lögum frá 1907; og
yrðu prestaköllin þá alls 108, en embættin 109 (þ. e. 2
við Dómkirkjuna).
Tveir prófastar hefðu beiðst lausnar á árinu (séra
Kjartan í Hruna og séra Páll í Vatnsfirði) og einn látist
(séra Eggert Pálsson). í stað þeirra hefðu verið skipaðir
þeir séra Ólafur Magnússon í Arnarbæli fyrir Árnespró-
fastsdæmi, séra Sigurgeir Sigurðsson fyrir Norður-ísafjarð-
arprófastsdæmi og séra Ófeigur Vigfússon fyrir Rangár-
vallaprófastsdæmi. — Voru þessir nýju prófastar allir við-
staddir á fundinum og bauð biskup þá velkomna í pró-
fastsstöðu. Frá síðustu fardögum hefði séra Stefán Jónsson
próf. á Staðarhrauni fengið lausn frá embætti, en við pró-
fastsstörfum hefði þá tekið, sem settur í bili séra Gísli
Einarsson. Þrír kandidatar hefðu vígst á árinu, Sveinbjörn
Högnason til Laufáss, Sigurður Einarsson til Flateyjar og
Páll Þorleifsson til Skinnastaða.