Straumar - 01.07.1927, Side 14
108
STBAUMAR
Þriðjudag 28. júní hófst fundur að nýju kl. 9 árd.
með venjulegum hætti.
Þar gaf biskup skýrslu um störf handbókarnefndar
(frá 1925) og lagði fram „Bráðabirgðatillöguru prentaðar
frá nefndinni. Var kosin 3 manna nefnd til að athuga þær
(sérstaklega guðsþjónustuformið) og í hana kosnir þeir
vígslubiskup Geir, séra Kjartan í Hruna og séra Gísli á
Stóra Hrauni og skildu þeir skila áliti sínu á síðdegisfundi
stefnunnar þann dag. Síðan hófst „prestafélagsfundur11 og
stóð fram yfir hádegi.
Kl. 4 var aftur settur fundur, og hófst með því, að
séra Guðmundur Einarsson á Þingvöllum skýrði frá gerð-
um nefndar, sem kosin hafði verið 1926, í „barnaheimil-
ismálinuu. Urðu um það allmiklar umræður, sem allar
hnigu að því, að kirkju landsins og prestum bæri sérstök
skylda til að vinna að því, að ráðin yrði bót á uppeldi
vanræktra barna. Var samþykt á fundinum tillaga um 1)
kosningu sérstakrar starfsnefndar, sem falin sé yfirumsjón
þessa máls og starfi í nafni prestastéttarinnar að því að
vekja áhuga manna fyrir þessum málum út á við, afla
fjár til starfsins og reyna að koma á föstu skipulagi um
land alt til hjálpar börnunum og til eftirlits með uppeldi
þeirra, 2) að fermingardagurinn í hverri sókn sé ákveð- ,
inn með leyfi landsstjórnar, til þess að afla fjár í þessu
skyni og 3) að kosin sé sérstök nefnd til þess í samráði
við starfsnefndina, að undirbúa og koma á framfæri við
alþingi barnauppeldislöggjöf, er sniðin sé eftir staðháttum
og þörf lands vors, og henni heimilað að bæta við sig
mönnum utan prestastéttar.
Þá hófust umræður um breytingu á guðsþjónustuformi
samkv. tillögum handbókarnefndar. Nefndin, sem kosin
hafði verið til að athuga tillögurnar gerði grein fyrir áliti
sínu og kom fram með ýmsar athugasemdir, sem þó að-
allega hnigu að breytingum á orðfæri. Urðu allmiklar um-
ræður um tillögurnar, en yfirleitt lýstu ræðumenn ánægju
sinni yfir þeim. Tillögurnar þóttu til bóta og mundu gera
guðsþjónustuna hátíðlegri og hluttöku safnaðarins meiri
en hingað til hefði átt sér stað. Lofaði nefndin sem unnið